Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ólafur Guðmundsson, leikari og leiklistarkennari: Hjálpaði mér einna mest að fá að orða skömmina

Ólafur Guðmundsson, leikari og leiklistarkennari: Hjálpaði mér einna mest að fá að orða skömmina
Ólafur Guð­munds­son

„Þetta er níunda ráð­stefna alþjóð­legra sam­taka, IDEA (IDEA International Drama/Theatre and Education Association), sem voru stofnuð árið 1992 og hafa það á stefnu­skránni að efla leik­list í mennt­un­ar­legu sam­hengi í skóla­starfi og einnig í mennta­legu sam­hengi úti í sam­fé­lag­inu,“ segir Ólafur Guð­munds­son, leik­ari og leik­list­ar­kenn­ari, um ráð­stefn­una sem haldin er hér á landi þessa dag­ana. „Það er FLISS, Félag um leik­list í skóla­starfi, sem tók þetta að sér og Mennta­vís­inda­svið Háskóla Íslands  auk þess sem þetta er haldið í sam­starfi við Mennta­vís­inda­stofnun sem er í raun­inni bak­hjarl starfs­manna Mennta­vís­inda­sviðs í sam­bandi við skipu­lag á alls konar við­burðum og ráð­stefnum.“

Ólafur er leik­ari að mennt og vann sem slíkur í 14 ár en söðl­aði þá um og varð sér úti um kennslu­rétt­indi, kenndi í grunn­skólum í níu ár og síðan í 10 ár við fram­halds­skóla og í dag er hann að kenna við Mennta­vís­inda­svið Háskóla Íslands og kennir til­von­andi kenn­urum leik­list. „Þá eru það kenn­ara­nemar sem velja sér leik­list sem kjör­svið og eru þá að sér­hæfa sig í kennslu leik­listar í grunn­skólum og leik­skólum, bæði leik­list sem náms­grein auk þess sem leik­list er stundum notuð í tungu­mála­kennslu, sam­fé­lags­greinum og nátt­úru­greinum.“

Það er bland í poka á dag­skránni.

Fólk frá öllum heim­inum er komið til lands­ins og segir Ólafur að það vinni við leik­list í mennt­un­ar­legu sam­hengi. „Það sem er sér­stakt við þessa ráð­stefnu er að þar er mikið af smiðjum auk fyr­ir­lestra af ýmsu tagi og svo eru haldnar kynn­ingar á rann­sóknum og þró­un­ar­verk­efnum. Leik­sýn­ingar eru á kvöldin. Þannig að það er bland í poka á dag­skránni.“

Skapandi flæði

Áhugi Ólafs á leik­list kvikn­aði snemma og seg­ist hann hafa verið far­inn að setja upp leik­rit ásamt vin­konum sínum á Lauf­ás­borg sem þá kall­að­ist barna­heim­ili. Árin liðu og hann tók þátt í leik­ritum í grunn­skóla og svo í Mennta­skól­anum við Hamra­hlíð.

Ég held að leik­listin geti hjálpað fólki mjög mikið til þess að tengj­ast sjálfu sér.

„Ég var alltaf ein­hvern veg­inn við­loð­andi leik­list og svo sótti ég um að kom­ast í Leik­list­ar­skóla Íslands. Líklega teng­ist þetta þörf minni fyrir að vera innan um fólk og tengj­ast; vera með hópum og skapa með öðru fólki. Tjá mig og vera í skap­andi flæði. Ég hef alltaf haft mik­inn áhuga á hreyf­ingu og fór til dæmis í eins árs nám í Frakk­landi í Leik­list­ar­skóla Jaques Lecoq sem er skóli sem leggur áherslu á lík­amann í leik­hús­vinnu. Svo hef ég stundað mikið í gegnum árin Taijiog-jóga. Ég hef líka mik­inn áhuga á skap­andi dansi. Ég hef samt ekki lengur áhuga á að vera sjálfur að per­for­mera heldur vil ég laða fram í öðrum það sem fólk vill tjá og opna fyrir ein­hvers konar skap­andi flæði sem og per­sónu­legan þroska í gegnum leik­list­ina. Það er aðal­lega þess vegna sem ég er í leik­list­ar­kennslu; ég held að leik­listin geti hjálpað fólki mjög mikið til þess að tengj­ast sjálfu sér og finna ork­una fyrir tján­ingu sína og hrein­lega opna og finna teng­ingar við tauga­kerfið og skyn­færin og ná jarð­sam­bandi. Ég er mjög mikið að hugsa um það í dag.“

Kvíðinn

Ólafur sagð­ist halda að leik­listin geti hjálpað fólki. Hefur hún hjálpað honum og ef svo er – hvernig?

„Á mjög margan hátt; við að takast á við mig og glíma við það að vera mann­eskja. Einhvern veg­inn að læra að slaka á og lifa með sjálfum sér. Það er kannski aðal­lega það.“

Maður er að vinna með sjálfs­skoðun í gegnum hlut­verkið.

Takast á við sig. Hvað á hann við með því?

„Til dæmis að takast á við eig­in­girni; ég er ekki númer eitt. Hlut­irnir ganga alveg þótt ég sé kannski ekki alveg með þá á hreinu. Ég kannski fyllist kvíða yfir ein­hverjum hlutum. En ef ég bara geng inn í kvíð­ann og mæti og er í sam­skiptum við fólk þá fæ ég ein­hverja speglun á að þetta sé nú kannski alveg yfir­stíg­an­legt og ég geti lært að deila því sem ég þarf að deila með öðru fólki í sam­skiptum. Svo nátt­úr­lega speglar maður sig líka í þeim hlut­verkum sem maður er að vinna með og nátt­úr­lega líka í leik­list­inni er maður alltaf að vinna beint í gegnum hlut­verk sem maður leikur. Maður er að vinna með sjálfs­skoðun í gegnum hlut­verkið. Maður er að skoða hvernig sál­ar­líf ann­arra per­sóna en um leið sitt eigið. Þannig að við­fangs­efnið er alltaf mann­eskjan.“

Hefur Ólafur barist við kvíða?

„Já, ég hef þurft að gera það í gegnum tíð­ina. Talandi um leik­list; hún getur líka verið upp­spretta fyrir kvíða: Að glíma við það að per­for­mera fyrir framan fólk og fá gagn­rýni og allir hafa skoðun á manni þegar maður stígur á svið og er í ein­hverju hlut­verki. Þetta er eitt­hvað sem mjög margir og örugg­lega allir leik­arar þurfa að glíma við og ég var alveg þar hérna áður en ég fór bara ákveðna leið í það að glíma við minn kvíða. Og kannski er ég þá að hjálpa fólki í dag að glíma við sinn kvíða í gegnum leik­list­ar­vinnu; að tengj­ast sjálfum sér í lík­am­anum og vinna með núvit­und í gegnum hreyf­ingu. Það er það sem hefur hjálpað mér mjög mikið. Þannig að bara að stíga inn í kvíða­til­finn­ingar og ein­hvern veg­inn skora svo­lítið kvíð­ann sinn á hólm og gef­ast ekki upp gagn­vart því að vera ofur­seldur þess­ari til­finn­ingu.“

Ætla ég að láta sigra mig, láta þessa til­finn­ingu sigra mig, eða ætla ég að skora hana á hólm og halda áfram?

Ólafur er spurður um erf­ið­ustu augna­blikin þegar hann hefur barist við kvíða.

„Ég hugsa að margir hafi upp­lifað svona augna­blik þar sem maður veit ekki hvað maður á að gera; hvernig maður á að halda áfram og veit ekki hvað ger­ist næst. Þá er það spurn­ingin um að taka ákvörðun eða það var alla­vega í mínu til­viki; ætla ég að láta sigra mig, láta þessa til­finn­ingu sigra mig, eða ætla ég að skora hana á hólm og halda áfram?“

Og Ólafur hélt áfram.

„Já, ég tók ákvörðun. Ég get alveg við­ur­kennt það að ég hef þurft að glíma við kvíða. Ég var kannski ekk­ert svaka­lega alvar­legt til­felli en ég við­ur­kenni að ég hef þurft að glíma við kvíða og það hefur verið áskorun að takast á við það; mjög mikil oft og tíðum. Ég reyndi að miðla því til nem­enda minna þegar ég kenndi í fram­halds­skóla en sumir sögð­ust glíma við kvíða og þá sagð­ist ég hafa gert það líka og að ég skildi hvað þeir voru að ganga í gegnum og reyndi að hvetja þau áfram.“

Höfnun og einelti

Ólafur segir að það sem hafi mótað hann mikið sé glíma hans við að vera mann­eskja og glíman við til­finn­ingar sínar. „Kannski í raun­inni mín glíma við að vera sam­kyn­hneigður og sú höfnun sem maður mætti á árum áður og í raun­inni þessi felu­leikur sem mót­aði ung­lings­árin mikið.“ Hann upp­lifði for­dóma sem strákur og þeim fylgdu ein­elti í skóla. „Það voru móment í skóla sem voru svo­lítið erfið; þau sitja svo­lítið í manni. Það voru erfið móment þar sem maður upp­lifði ákveðna höfnun frá krökk­unum sem voru með manni í skóla.“

Maður var hress og svona en svo var kannski allt í klessu undir niðri.

Hann segir að skömmin sem hann upp­lifði hafi verið sterk til­finn­ing; að finn­ast hann sjálfur ekki vera boð­legur og ekki eiga rétt og geta ekki komið hreint fram. „Ég hef svo sem aldrei verið beint óheið­ar­legur en ein­hvern veg­inn alltaf að hliðra til­finn­ingum mínum og halda þeim til hlés og það hefur mótað allt.“ Hann seg­ist þó hafa verið „sur­vi­vor“; lenti aldrei undir. „Maður var hress og svona en svo var kannski allt í klessu undir niðri. En maður bara hélt and­lit­inu og mætti keikur. Maður stóð ein­hvern veg­inn keikur og sendi bara „fuck you“-merki; kannski bjarg­aði það manni.

Það voru vinir mínir sem hjálp­uðu mér mest sem ung­lingi þegar ég var að upp­götva hvernig þetta er allt saman – hvernig maður væri og til­finn­ing­arnar og það að vera í felum. Ég eign­að­ist mjög góða trún­að­ar­vini þegar ég var ung­lingur og var  ég sam­þykktur af þeim. Ég var ekk­ert sá eini í hópnum sem var að glíma við eitt­hvað; ég var ekk­ert sá eini sem var að upp­lifa höfnun. Ég á mjög góða vini í dag sem eru ennþá vinir mínir sem ég eign­að­ist á þessum tíma og við höfum náð að þroskast saman og hjálpað hvert öðru að takast á við alls konar áföll í líf­inu. Ég held að það skipti máli að fá tæki­færi til að orða það sem maður er að glíma við; að það sé ein­hver sem hlusti. Að fá tæki­færi til að orða það sem er að bögga mann. Eitt af því sem hjálp­aði mér mest í minni glímu við mína sam­kyn­hneigð var að fá að orða skömm­ina. Það var frelsun fyrir mig.“ Hann talar um aðstoð fag­fólks; mik­il­vægi þess. „Það að fá tæki­færi til að nefna til dæmis skömm­ina, frels­aði mig frá henni.“

Eigin fordómar

Ólafur við­ur­kennir að hafa sjálfur verið með for­dóma gagn­vart sam­kyn­hneigð sinni sem ung­lingur. „Já, ég held að það sé það sem er í raun­inni kannski aðal­at­riðið. Maður speglar alltaf sam­fé­lagið. Maður upp­lifir ein­hverja hluti og maður er með for­dóma gagn­vart sjálfum sér; maður vill ekki vera eins og maður er. Maður hatar sjálfan sig af því að manni finnst maður ekki fitta inn. Það getur farið út í alls konar og komið út í kvíða. Það getur komið út í alls konar óreglu. Maður vill bara losna við þetta.“

Fór Ólafur út í óreglu?

„Nei, mér hefur borið gæfa til þess að fara ekki út í mikla óreglu. Ég hef haft ein­hvern þrösk­uld. Ég djamm­aði eins og ung­lingar gerðu í gamla daga; djamm­aði mikið og svona en ég hafði alltaf ein­hvern þrösk­uld á mér. Ég vildi standa mína pligt eins og maður segir.“

Það fylgdi því stress að vera sam­kyn­hneigður.

Ólafur seg­ist hafa fundið fyrir for­dómum í eigin garð þegar hann var far­inn að vinna sem leik­ari.

„Það fylgdi því stress að vera sam­kyn­hneigður. Manni fannst maður aldrei ein­hvern veg­inn vera á réttum stað. Mér fannst eins og það væru gerðar aðrar kröfur til mín heldur en var og svo fann ég fyrir óör­yggi. Maður gat ein­hvern veg­inn aldrei slakað almenni­lega á. Mér fannst ég til dæmis ekki geta leikið gagn­kyn­hneigða menn.“

Er Ólafur laus við eigin for­dóma í dag?

„Nei, alls ekki. Það sem er í raun­inni svo frá­bært er að það væri ekk­ert varið í að lifa líf­inu ef það væri ekk­ert til að glíma við. Það fer eng­inn í gegnum lífið án þess að þurfa að glíma við eitt­hvað. Þetta er það sem ég hef verið að glíma við og mér finnst það hafa gengið ágæt­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi