Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stökk 15 metra og „sprengdi“ í sér hrygginn: „Ekki gera þetta“

Stökk 15 metra og „sprengdi“ í sér hrygginn: „Ekki gera þetta“
Libby og hund­ur­inn hennar, Sahara.

Libby Sinden, 22 ára gömul kona, hefur birt mynd­band af sér á TikTok þar sem hún sést stökkva 15 metra niður af brú og ofan í á fyrir neðan. Þetta stökk átti eftir að verða henni örlaga­ríkt. Eins og Libby lýsir því sjálf þá „sprengdi“ hún í sér hrygg­inn með þessu upp­á­tæki. Þetta kemur fram í breska blað­inu The Sun.

Nú er liðið ár síðan Libby stökk niður í ána Lune til þess að kæla sig á heitum sum­ar­degi. Vinir hennar náðu stökk­inu á mynd­band, en hún lýsir því sjálf að þegar hún lenti í vatn­inu hafi það verið eins og að lenda á stein­vegg. Hún bak­brotn­aði við höggið. Hún birti mynd­bandið nú ári síðar til þess að vara aðra við því að gera sömu mis­tök og hún sjálf.

Höggið við lend­ing­una olli sprungnum hryggjalið.

Í mynd­band­inu heyr­ist Libby öskra: „Ég slas­aði mig í bak­inu“, á meðan henni tekst að draga sig í skjól. Libby beið í sárs­auka í þrjá og hálfan tíma á meðan slökkvi­lið, sjúkra­bíll og fjalla­björg­un­ar­að­ilar komu henni til hjálpar. Hún var í vatn­inu þar til hægt var að lyfta henni þaðan á börum, en við það þurfti að fara afar var­lega vegna bak­meiðsl­anna, sem ekki var vitað hvers eðlis voru.

Skjáskot úr mynd­band­inu.

Hún þurfti að gang­ast undir sex klukku­stunda aðgerð á hrygg og mænu þar sem málm­plötu og skrúfum var komið fyrir í hrygg hennar til þess að festa hann aftur saman. Í öðru mynd­bandi sem hún birti á TikTok sýnir hún frá veg­ferð sinni.

Libby eyddi viku á sjúkra­húsi og var síðan bundin við hjóla­stól í fjóra mán­uði. Hún þurfti að læra að ganga upp á nýtt. Hún seg­ist heppin að hafa ekki lam­ast var­an­lega og að ekki hafi verið steinar undir yfir­borð­inu þar sem hún lenti.

Hryggur Libby eftir aðgerð.

„Það er fullt af fólki sem stekkur oft af þess­ari brú. Ég hef séð ansi marga stökkva þarna, meðal ann­ars börn, sem var allt í lagi með.

„Ég hafði fylgst með tveimur öðrum stökkva, en ég veit að í gegnum árin hafa hund­ruðir, jafn­vel þús­undir gert það sama. Þar sem ég stóð uppi á brúnni fann ég adrena­lín­inu í bland við smá stress.

Um leið og ég lét vaða fann ég fyrir ótta, áður en ég lenti í vatn­inu, þegar ég átt­aði mig á því hversu hátt þetta var í raun. Þetta voru um 15 metrar.“

Stökkið örlaga­ríka.

Libby seg­ist hafa verið óheppin. „Það hvernig ég lenti í vatn­inu og sú stað­reynd að það var stillt í stað þess að vera á ferð, varð til þess að þetta var eins og að lenda á stein­vegg.“

Libby sprengdi í sér hryggjalið við höggið og hluti af beini hennar fór inn í mænu­göngin, sem aftur setti þrýst­ing á annað nýra hennar. Hún seg­ist hafa verið afar nálægt því að lam­ast eða láta lífið.

„Það getur komið fyrir hvern sem er, hvenær sem er, að ein lítil ákvörðun breyti lífi þínu algjör­lega,“ segir Libby.

„Ekki gera þetta. Það gera allir mis­tök og ég vil vekja athygli á þessu.“

Libby er enn í end­ur­hæf­ingu og má ekki ennþá reyna á sig með því að hlaupa eða stunda aðrar áreynslu­í­þróttir, sem hefur verið henni erfitt, þar sem hún var afar virk áður en hún lenti í slys­inu.

Libby segir hund­inn sinn, Sahara, hafa hjálpað henni mikið á veg­ferð­inni og aðstoðað hana við jákvæðni.

„Ég fer með hana út að ganga og það hefur verið aðal hvatn­ingin mín – að geta farið að ganga og leika við hana.

Libby þegar hún var bundin við hjóla­stól­inn.

Nú er liðið ár. Ég finn enn fyrir sárs­auka en mér tókst að ganga aftur með miklum vilja­styrk. Mér hefur tek­ist að gera aftur marga af þeim sömu hlutum og ég gat áður gert, þrátt fyrir að ég sé tak­mörkuð.

Vinir mínir hafa verið alveg ótrú­lega stuðn­ings­ríkir; ég hefði ekki getað kom­ist í gegn um þetta án vina minna og fjöl­skyldu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta