Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fannar vonar að fyrirheit Samherja gangi eftir í Grindavík: „Þetta kemur svona flatt upp á okkur“

Fannar vonar að fyrirheit Samherja gangi eftir í Grindavík: „Þetta kemur svona flatt upp á okkur“

Í gær bár­ust fregnir af því að Síld­ar­vinnslan, sem félög í eigu útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Samherja eiga ráð­andi hlut í, sé komin á fremsta hlunn með að kaupa útgerð­ar­fyr­ir­tækið Vísi í Grinda­vík. Kaupverð er 31 millj­arður króna. Fullyrt hefur verið að Vísir og kvót­inn verði áfram í Grinda­vík og hags­munir bæj­ar­búa í for­grunni. Stjórn Vísis muni sitja áfram og fyr­ir­tækið verða dótt­ur­fé­lag Síld­ar­vinnsl­unnar. Bæj­ar­stjóri Grinda­víkur segir söl­una hafa komið flatt upp á sig, en vonar að fyr­ir­heit gangi eftir.

Kaup Síl­ar­vinnsl­unnar á Vísi eru háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, að hlut­hafar Síld­ar­vinnsl­unnar sam­þykki kaupin og því að áreið­an­leika­könnun skili full­nægj­andi nið­ur­stöðu. Gangi það eftir munu fisk­veiði­heim­ildir Síld­ar­vinnsl­unnar fara yfir það tólf pró­senta hámark sem hver útgerð má sam­kvæmt lögum eiga af úthlut­uðum kvóta.

„Það sem skiptir mestu máli fyrir bæj­ar­fé­lagið og íbú­ana er að starf­semin þarna haldi áfram hjá þessu öfl­uga og góða fyr­ir­tæki sem Vísir er, og verður núna dótt­ur­fé­lag,“ segir Fannar Jónasson, bæj­ar­stjóri í Grinda­vík.

„Það er það sem auð­vitað skiptir bara öllu máli fyrir okkur og miðað við það sem við heyrum, og komið hefur fram í fréttum líka, er að það standi til að efla starf­sem­ina á svæð­inu, meðal ann­ars með fisk­eldi á landi. Ef þau áform ganga eftir og fyr­ir­tækið heldur áfram að sinna byggð­ar­lag­inu og land­inu í heild sinni, eins og gert hefur verið, þá getum við svo sem ekki gert neinar athuga­semdir, enda hefur bær­inn enga aðkomu að þessu máli á nokkurn hátt.“

Treystir þú því að þetta gangi eftir?

„Það verður tím­inn auð­vitað bara að leiða í ljós, hvernig fram­tíðin mun spil­ast áfram en ég hef enga ástæðu til þess á þessu stigi, fyr­ir­fram, að van­treysta því sem sagt hefur verið og þeim áformum sem uppi eru. Þetta er auð­vitað bara alveg nýtt fyrir okkur. Ég frétti þetta fyrst í gær, þannig að þetta kemur svona flatt upp á okkur, en við erum svona smám saman að fá frek­ari upp­lýs­ingar hjá stjórn­endum fyr­ir­tæk­is­ins og nýjum eig­endum, og gömlu eig­end­unum líka. Þeir eru fullir bjart­sýni, þannig að við verðum bara að vona að það ræt­ist allt saman.“

Finnst þér þetta vera skellur fyrir bæj­ar­búa í Grinda­vík?

„Nei, ég held bara að öll óvissa geti verið þess vald­andi að fólk ótt­ast kannski að eitt­hvað alvar­legt eða nei­kvætt kunni að vera framundan. En við höfum engar for­sendur til þess að ætla að svo verði. Við verðum að treysta því bara að þessi áform stand­ist. Það er ekki verið að gera þetta nema trú­lega vegna þess að fyr­ir­tækið er bara mjög sterkt, með allra öfl­ug­ustu útgerð­ar­fyr­ir­tækjum á land­inu og eitt allra tækni­væddasta fisk­vinnslu­fyr­ir­tæki lands­ins að auki. Þannig að það þykir örugg­lega mik­ill fengur í því að fá þetta fyr­ir­tæki inn í þetta öfl­uga fyr­ir­tæki sem Síld­ar­vinnslan er.“

Fannar segir lík­legt að ástæðan fyrir kaup­unum séu góðar aðstæður í Vísi og Grinda­vík, en bær­inn sé til að mynda vel stað­settur land­fræði­lega. „Tækja­bún­aður sem þar er til staðar er með því allra besta sem fyr­ir­finnst. Það er hvergi meiri þorskafla landað í öðrum höfnum, ann­ars­staðar á land­inu, heldur en í Grinda­vík, þannig að við erum mjög öfl­ugt sveit­ar­fé­lag og vonum að það verði bara áfram.“

Nú hefur Samherji ákveðna sögu þegar kemur að lof­orðum sem þessum.

„Já, já. Fólk getur svo sem haft sínar hug­myndir um það hvernig þetta kunni að ger­ast hér. Við verðum bara að láta tím­ann skera úr um það, við höfum engar aðrar for­sendur. Bærinn mun bara leggja sitt af mörkum, fram­vegis sem hingað til, til þess að reyna að gera aðstæður sem allra bestar hvað varðar sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, bæði varð­andi land­vinnu og ekki síst höfn­ina okkar, sem er mjög góð nú þegar, en við höfum verið að vinna að því und­an­farin mörg ár og munum gera enn betur í þeim efnum. Við höfum átt í góðum við­ræðum við Vega­gerð­ina um það og munum halda því áfram, og kannski bara með auknum krafti þegar það liggur fyrir að það geti vel verið að starf­semin þarna verði efld og fleiri skip sem landa. Auðvitað von­umst við til þess að það verði.

Hefur þú sjálfur rætt við ein­hvern frá Síld­ar­vinnsl­unni og Samherja?

„Nei. Ég frétti þetta bara frá eig­endum Vísis í gær, sem höfðu sam­band við mig og bæj­ar­yf­ir­völd. Þannig að við höfum ekki rætt við nýja eig­endur nema þá óform­lega og síðan er held ég tíu mán­aða bið eftir því að Sam­keppn­is­eft­ir­litið muni stað­festa þessi kaup. Þannig að það er ekk­ert sér­stakt að ger­ast. Það eru sömu lyk­il­stjórn­endur hjá Vísi og verið hefur, og sami for­stjóri sem verður áfram og mik­ill mannauður þarna á svæð­inu. Þannig að Vísir verður, eins og hefur komið fram, dótt­ur­fé­lag og heldur bara sínu striki. Fram­kvæmda­stjór­inn verður þarna áfram og allir lyk­il­stjórn­endur og þarna eru ein­hver 250 ársí­gildi starfs­manna. Það er engin breyt­ing þessa dag­ana.“

„Þetta er bara nýtt fyrir okkur og við höfum engar for­sendur til ann­ars en að bara treysta því og trúa sem sagt hefur verið um áfram­hald­andi upp­bygg­ingu. Ég held það og trúi því. Þetta von­andi verður til góðs fyrir bæinn,“ segir Fannar að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi