Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Twitter fer í mál við Elon Musk – Segja hann hafa dregið úr virði fyrirtækisins

Twitter fer í mál við Elon Musk – Segja hann hafa dregið úr virði fyrirtækisins
Elon Musk, rík­asti maður heims.

Stjórn­endur Twitter hafa ákveðið að höfða mál gegn auð­jöfr­inum Elon Musk, eftir að hann hætti við kaup sín á fyr­ir­tæk­inu. For­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins höfða málið fyrir dóm­stólum í Delaware, með það fyrir augum að láta Musk standa við 44 millj­arða dala yfir­töku sína á fyr­ir­tæk­inu, en til­boð hans hljóð­aði upp á 54 dali á hvern hlut.

Musk, sem er í dag rík­asti maður heims, sam­þykkti að festa kaup á sam­fé­lags­miðl­aris­anum í apríl síð­ast­liðnum. Í síð­ustu viku til­kynnti hann hins vegar að hann ætl­aði sér að hætta við kaupin.

Dóm­stóll­inn í Delaware þarf að skera úr um það hvort Musk sé sann­ar­lega skuld­bund­inn til kaupanna, eða hvort stjórn­endur Twitter hafi í raun brotið gegn skyldum sínum til þess að veita Musk þau gögn sem hann óskaði eftir, sem hafi þá veitt honum rétt til þess að hætta við kaupin.

Í kæru Twitter er Musk sak­aður um að hafa viljað hætta við kaupin vegna breyt­inga á hluta­bréfa­mark­aði, sem hafi haft áhrif á fjár­magn hans. Hluta­bréf í Tesla, fyr­ir­tæki Musk, hafa fallið á und­an­förnum mán­uðum.

Musk er í kærunni sagður telja sig geta skipt um skoðun og vera þannig und­an­skil­inn lögum. Hann telji sig geta „talað illa um fyr­ir­tækið, raskað starf­semi þess, dregið úr virði hluta­bréfa þess og gengið svo á braut.“

Musk telur sig geta hætt við kaupin vegna þess að stjórn­endur Twitter hafi ekki veitt honum þau gögn sem hann óskaði eftir vegna gervi­að­ganga, eða „bots“, en Musk hefur farið mik­inn í tengslum við slíka aðganga í færslum sínum á Twitter. Hann hefur sagst ætla að vinna bug á gervi­að­göng­unum og eyða þeim af sam­fé­lags­miðl­inum. Hann trúði ekki stað­hæf­ingum stjórn­enda Twitter um það að um 5 pró­sent virkra not­enda mið­ils­ins væru gervi­að­gangar og sagði stjórn­end­urna hafa komið í veg fyrir að hann fengi frek­ari upp­lýs­ingar á bak við töl­una.

Stjórn­endur Twitter segja rök­stuðn­ing Musk ein­ungis yfir­varp, svo hann geti „smokrað sér út úr samn­ingnum.“

Frá und­ir­skrift til­boðs Musk upp á 54,20 dali á hluta hefur hluta­bréfa­verð Twitter fallið um meira en 35 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta