Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dularfullt mannshvarf varð er Thomas Bjerco strandaði við Ísland – Þorði ekki að fara frá borði

Dularfullt mannshvarf varð er Thomas Bjerco strandaði við Ísland – Þorði ekki að fara frá borði
Thomas Bjerco Mynd: Shipspotting.com

Í mars­mán­uði árið 1973 strand­aði hið danska flutn­inga­skip Thomas Bjerco á Eyja­fjalla­sandi. Tókst að koma allri áhöfn­inni, sem taldi 11 manns frá borði að und­an­skildum einum, honum John Albech Adelund, sem þorði ekki frá borði. Var því ákveðið að koma öllum nema honum, fyrsta vél­stjóra og skip­stjór­anum frá borði og sækja síð­ustu þrjá síðar. Þegar sækja átti þre­menn­ing­anna fannst John Albech ekki.

Tíminn sagði svo frá strand­inu:

Dul­ar­fullt manns­hvarf við Eyja­fjalla­sand: DANSKT SKIP STRANDAÐI. EINN SKIPVERJA TÝNDUR

Reykja­vík. Á föstu­dags­kvöldið um klukkan níu strand­aði danska flutn­inga­skipið, Thomas Bjerco frá Árósum, á Eyja­fjalla­sandi fyrir vestan Holtsós. Var skipið í leigu­flutn­ingum á vegum Hafskips og var það á leið til Reykja­víkur með um 500 lestir af vörum, mest jap­anska bíla. Björg­un­ar­sveitir frá Vestur-Land­eyjum og Hvols­velli fóru þegar til aðstoðar og skip lón­uðu fyrir utan strand­stað­inn. Áhöfn skips­ins var 11 menn, og var ákveðið skömmu eftir strandið, að senda 9 þeirra í land í gúmm­báti. Þegar til kom þorði einn skip­verja ekki að fara í bát­inn, en nokkur kvika var þá við skips­hlið. Fékk þá maður þessi leyfi til að vera eftir um borð ásamt skip­stjór­anum og 1. vél­stjóra. Þegar þessir tveir menn ætl­uðu að yfir­gefa skipið fannst mað­ur­inn hvergi, þrátt fyrir víð­tæka leit þeirra um borð.

Við náðum í gær­morgun tali af séra Halldóri Gunn­ars­syni, sókn­ar­presti að Holti undir Eyja­fjöllum, en hann var á strand­staðnum alla nótt­ina. Sagði hann okkur, að búið væri að fara aftur út í skipið og leita að þessum manni, sem er fer­tugur Kaup­manna­hafn­ar­búi, en hann hefði ekki fundizt þar. Einnig væri búið að ganga fjörur og leita þarna í næsta nágrenni, en allt hefði komið fyrir ekki. Væri hvarf þessa manns und­ar­legt í alla staði. Halldór sagði okkur, að þegar bátnum með mönn­unum 8 um borð var ýtt frá skip­inu, hefði þetta litið illa út í fyrstu, því að bát­ur­inn sog­að­ist út og var mesta mildi, að ekki fór verr en á horfð­ist í fyrstu. Halldór sagði, að veður á strand­staðnum væri gott. Margt manna hefði verið á staðnum í morgun. Þar á meðal væri menn frá Björgun, og væru þeir að kanna aðstæður til að bjarga skip­inu eða bíl­unum úr þvi. Stórt gat er komið á síð­una sjáv­ar­megin, en skipið liggur þarna flatt fyrir á rifi í um það bil 150 til 200 metra frá landi. Skip­brots­mönn­unum líður öllum vel, en þeim hefur verið komið fyrir á bæjum þarna í nágrenn­inu.

Lík Johns Albech, fannst 1. apríl sama ár á sönd­unum vestan við Dyr­hólaey. John var 45 ára að aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi