Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Drífa gerir upp andlát Halla á Tenerife: „Einn dagur í einu og bara vona það besta“

Drífa gerir upp andlát Halla á Tenerife: „Einn dagur í einu og bara vona það besta“
Haraldur Logi

Drífa Björk Linnet hefur fundið sig knúna til að segja frá því hvernig and­lát eig­in­manns hennar, Haraldar Loga Hrafn­kels­sonar, bar að en hann lést í elds­voða á Tenerife fyrr á árinu.

Drífa útskýrir í löngu máli á Instagram-reikn­ingi sínum, hvernig and­látið bar að og af hverju það hefur gengið svona hægt að fá almenni­leg svör frá yfir­völdum á eyj­unni. Segir Drífa að fólk hafi síðan slysið varð, búið til alls­konar ósmekk­legar útgáfur af mál­inu og það sé sér­lega leið­in­legt í ljósi þess að börn séu á heim­il­inu sem mega ekki við því að heyra upp­lognar sögur af látnum pabba þeirra. Því hafi hún ákveðið að segja frá því hvað gerð­ist. Drífa gaf Mannlífi góð­fús­legt leyfi til að fjalla um málið.

6. febrúar 2022

„Frétt­irnar eru ein­fald­lega þær að það eru engar end­an­legar fréttir enn sem komið er en það sem hefur gerst sl. 6 mán­uði er í grófum þetta,“ skrifar Drífa og lýsir svo þessum afdríf­a­ríka degi á Tenerife, þann 6. febr­úar 2022.

„Við fjöl­skyldan vöknum á sunnu­dags­morgun við að það er komin upp eldur í hús­inu okkar á Tenerife. Eftir að Sara Jasmín elsta dóttir mín vaknar og hleypur í panikki út og nán­ast inní eld­inn – kallar hún á mig að það sé kviknað í. Ég hringi í geðs­hrær­ingu á 112 og lög­regla og slökkvi­lið mæta, koma okkur út og fara að ráða nið­ur­lögum elds­ins. Þegar það er búið, koma þeir til mín og segj­ast hafa fundið mann­inn minn í einni af tveimur bif­reiðum í bíl­skúrnum og hafi hann strax verið úrskurð­aður lát­inn. Ég fer strax uppá lög­reglu­stöð þar sem skýrsla er tekin af okkur öllum og fer svo að reyna að finna hót­el­her­bergi fyrir okkur, enda var bæði húsið óíbúð­ar­hæft og báðir bíl­arnir ónýtir. Á meðan ég er að reyna að finna hótel, vissu börnin ekk­ert og spurðu í sífellu hvort ég ætl­aði ekki að hringja í pabba þeirra og segja honum að það hafi kviknað í. Eftir að ég er búin að inn­rita mig á hót­elið segi ég börn­unum frétt­irnar um að pabbi þeirra sé dáinn.“

Við tók bið eftir að skýrsla lög­reglu um bráða­birgða nið­ur­stöðu í mál­inu yrði lesin af dóm­ara og þá ann­að­hvort sam­þykkt eða ekki en þá þyrfti að rann­saka eitt­hvað betur. „Skýrslan beið í ein­hverjar vikur/mán­uði á borði dóm­ara þangað til að hún var lesin enda fer málið bara í röð­ina eins og önnur mál.“

Næstu þrjá mán­uði dvaldi fjöl­skyldan á hót­el­inu en Drífa, ásamt móður hennar, lágu á spænskum yfir­völdum um það hvað hefði gerst og hvenær hún gæti fengið mann­inn sinn aftur og veitt honum jarða­för. „Að þessum 3 mán­uðum loknum var ég komin með nokk­urn­vegin mynd á hvað hefði gerst þessa nótt en þó ekki komin með full­nægj­andi svör hvort ég mætti taka hann með mér og því gat ég ekki gert börn­unum það lengur að búa við þessar aðstæður og ákveð að bóka okkur til Íslands.“

Á Íslandi hélt Drífa svo áfram að reyna að knýja fram svör frá yfir­völdum á Spáni. „Dómstóll göt­unnar pass­aði að vera alltaf á vakt­inni til að gera harm­leik­inn okkar enn sorg­legri á meðan ég reyndi að gera allt sem ég gæti í að kalla fram bros eins oft og ég gæti á lítil hjörtu sem enn voru í sjokki.“

Hvorki saknæmt né sjálfsvíg

Drífa segir svo frá því sem vitað er um and­látið.

„Fyrst var skoðað hvort eitt­hvað sak­næmt hefði átt sér stað eða hvort um sjálfs­víg hafi verið að ræða. Það var stað­fest eftir 2 vikur frá slys­inu að hvor­ugt þetta átti sér stað. Enda allt mor­andi í mynda­vélum og auð­velt að sjá hvað gekk á. Það var eng­inn annar en Halli á staðnum og ekk­ert sem hann gerði sem benti til þess heldur að þetta hafi verið hans eigin vilji. Svo nú er verið að rann­saka upp­tök elds­ins. Hvaðan kom eld­ur­inn ef Halli kveikti ekki í sjálfur, né ein­hver annar? Getur það verið vind­ill eða ofhitn­aði bíll­inn? Þeir eru ein­fald­lega ekki búnir enn að átta sig á því og því er málið enn til rann­sóknar. Búið er að rann­saka lifr­ina í honum til að athuga hvort honum hafi verið byrlað í drykk á ein­hverjum stað því þá hefði verið hægt að draga við­kom­andi til saka og hægt væri að kenna við­kom­andi um að Halli hafi ekki vaknað við eld­inn. En það fannst ekk­ert í lifr­inni… annað en dass af rauð­víni hjá okkar manni enda vorum við í afmæli hjá góðum vini okkar um kvöldið og ekk­ert óeðli­legt við það. Örygg­is­mynda­vélar voru skoð­aðar bæði sem eru all­staðar á hús­inu okkar og í göt­unni okkar og þar sést mjög greini­lega að Halli kom einn heim seint um nótt­ina, lykla­laus og vildi senni­lega ekki vekja okkur og hann sest inn í bíl, ræsir vél­ina, kemur sér fyrir í sæt­inu og leggur sig. 20 mín­útum síðar fer hann að hús­inu til að athuga hvort ein­hver sé vakn­aður en allir eru sof­andi svo hann sest aftur inn í bíl­inn og sofnar. Tæplega 2 klukku­stundum seinna byrjar reykur að koma frá bílnum, svo eldur og síðan spreng­ing og þá vöknum við öll og martröðin hefst sem við erum enn í.“

Púslar fjölskyldunni saman

Segist Drífa vera búin að draga sex lög­fræði­stofur í málið, bæði á Spáni og á Íslandi en einnig hefur hún verið í sam­bandi við ræð­is­menn úti sem og dóms­mála­ráðu­neytið. Þá hefur yfir­maður rann­sókn­ar­innar reynst henni mjög vel. Segir hún alla vera að gera sitt besta og séu með alla anga úti í til­raun til að flýta fyrir mál­inu. „Svörin eru bara „þetta tekur tíma“ ég hef ekki geta sætt mig við það en núna er svo komið að ég verð geð­heilsu minnar og barn­anna vegna að sætta mig við það svar og bíða bara. Ég nota tím­ann á meðan ég bíð í að púsla okkur saman og byggja okkar litlu fjöl­skyld­una upp og von­ast ég að með þessum pósti geti ég tak­markað spurn­ing­ar­flóðið úr öllum áttum og fengið and­rými til að tala um eitt­hvað annað í smá stund þangað til fleiri fréttir koma.“

Þá seg­ist Drífa hafa kraf­ist þess nú að fá jarð­neskar leifar eig­in­manns­ins til Íslands svo hægt verði að halda jarða­för en í tvo mán­uði hefur hún heyrt að hún ætti að geta fengið hann fljót­lega en svo hefur ekk­ert orðið úr því ennþá. „Ég er núna í Madríd og fer til Tenerife í næstu viku. Kannski fæ ég að taka hann með mér heim. Vonandi. Einn dagur í einu og bara vona það besta er eina sem hægt er að vinna með í stöð­unni.“

Halli vildi ekkert drama, bara hlátur og gott rauðvín

Að sögn Drífu er búið að stað­festa að minn­ing­ar­at­höfn og jarða­för verði haldin á Íslandi 23. ágúst næst­kom­andi en það er afmæl­is­dagur Halla. „Hann var mjög spenntur fyrir þessum degi og hlakk­aði mikið til að halda uppá fimm­tugs­af­mælið sitt. Ég bið ykkur af öllu hjarta að koma og vera með mér þennan dag svo við getum öll kvatt þennan eðal­mann sem við elskuðum öll svo heitt.“ Bætti hún því við að Halli hafi oft rætt við hana um það hvernig jarða­för hans ætti að vera, ef hann myndi deyja á undan henni. „Ekkert drama, bara hlátur, mikið af músík og gott rauð­vín til að skála fyrir líf­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi