Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sturla er læknirinn sem er borinn þungum sökum: „Ekki sæmandi að ávarpa allar konur sem prinsessur“

Sturla er læknirinn sem er borinn þungum sökum: „Ekki sæmandi að ávarpa allar konur sem prinsessur“

Sturla B. Johnsen heim­il­is­læknir seg­ist aldrei hafa brotið kyn­ferð­is­lega á sjúk­lingi né öðru fólki. Hann virð­ur­kennir þó að hann hafi verið ónær­gæt­inn í orða­vali. DV greindi fyrr í dag frá því að hann sé kom­inn í leyfi frá störfum vegna slíkra ásak­ana.

Sturla segir í yfir­lýs­ingu að auð­velt hafi verið fyrir fólk að kom­ast að því um hvern var að ræða í nafn­lausum ásök­unum. „19. júlí síð­ast­lið­inn birt­ist nafn­laus færsla inni á Facebook hópnum Bar­áttu­hópur gegn ofbeld­is­menn­ingu þar sem bornar eru þungar sakir, meðal ann­ars nauðgun, á heim­il­is­lækni og honum lýst þannig að þeir sem vilja vita eiga auð­velt með að kom­ast að því um hvern ræðir. Síðar í umræðu­þræð­inum er ég svo nafn­greindur sem sá læknir. Ég vil byrja á því að taka hér fram að ég hef aldrei brotið kyn­ferð­is­lega gegn öðrum ein­stak­lingi. Aldrei. Né hef ég nýtt starf mitt sem læknir til að brjóta á eða mis­not­aða aðstöðu mína á nokkurn hátt gegn sjúk­lingum mínum eða öðrum ein­stak­lingum. Aldrei,“ segir Sturla.

Hann við­ur­kennir þó óvandað orða­val. „Ég get samt ekki skor­ast undan því, þó ég ætli ekki að fela mig á bak­við þá stað­reynd, að ég er mann­legur. Mann­leg­heitum fylgir breysk­leiki og ég get játað mig sekan um það að ég hef mátt vera nær­gætn­ari í orða­vali við konur því það er ekki full­orðnum karl­manni sæm­andi að ávarpa allar konur til dæmis sem prinsessur eða kalla þær elsku­legar. Ég tek það til mín og mun vanda betur orða­val mitt í fram­tíð­inni og vil biðja þær konur sem ég hef sært blygð­un­ar­kennd­ina hjá með orðum mínum inni­lega afsök­unar,“ segir Sturla.

Hann seg­ist ætla taka sér leyfi frá störfum. „Því fylgir mikil ábyrgð að eiga í sam­skiptum við aðra mann­eskju og á það við í starfi og í líf­inu almennt. Því fylgir einnig mikil ábyrgð að bera aðra mann­eskju þungum sökum í skjóli nafn­leyndar á sam­fé­lags­miðlum. Ég, bæði sem læknir og sem mann­eskja, hef ekk­ert að fela. Það breytir því þó ekki að því fylgir einnig mikil ábyrgð að reka heilsu­gæslu og snýr sú ábyrgð bæði að sam­starfs­fólki mínu og þeim sjúk­lingum sem heilsu­gæsl­una sækja. Af virð­ingu við fyr­ir­tækið sem ég hef ásamt öðrum lagt hart að mér að byggja upp og einnig af virð­ingu við það góða fólk sem þar vinnur og þangað sækir ákvað ég að taka mér leyfi frá störfum. Það erf­iða skref tek ég vit­andi að ég hef aldrei gerst sekur um þær þungu sakir sem á mig eru bornar. Aldrei.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi