Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gefur ferðalöngum helgarinnar góð ráð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gefur ferðalöngum helgarinnar góð ráð
Lög­reglan

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fer yfir kom­andi Versl­un­ar­manna­helgi í frétta­til­kynn­ingu.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sendi fyrir stundu frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem hún fer yfir kom­andi Versl­un­ar­manna­helgi. Fer hún yfir örygg­is­mál öku­manna enda ein stærsta ferða­helgi árs­ins framundan. Þá hvetur hún fólk til að líta til veð­urs áður en lagt er af stað og láta lög­reglu vita ef sést til grun­sam­legra manna­ferða í íbúð­ar­hverfum.

Hér er frétta­til­kynn­ingin í heild sinni:

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verður með hefð­bundið eft­ir­lit um versl­un­ar­manna­helg­ina eins og jafnan áður. Áherslan í sumar hefur m.a. verið á eft­ir­lit með hraðakstri, notkun far­síma við akstur án hand­frjáls bún­aðar, ferða­vögnum/eft­ir­vögnum og hættu­legum fram­úr­akstri. Það er ánægju­legt að sjaldn­ast hefur verið ástæða fyrir lög­reglu til að kæra fyrir van­búnað eft­ir­vagna/ferða­vagna, en í nokkrum til­vikum hefur öku­mönnum verið bent á atriði sem þeir þurfa að laga, t.d. að fram­lengja hlið­ar­spegla þegar öku­tæki draga breiða eft­ir­vagna. Því miður eru líka alltaf ein­hverjir sem leyfa sér að virða ekki reglur um hámarks­hraða, auk þess að nota far­síma án hand­frjáls bún­aðar við akstur en ekki þarf að fjöl­yrða um þá hættu sem það skapar í umferð­inni. Flestar aðfinnslur gátu öku­menn lagað á vett­vangi eða ábend­ing­arnar fóru með ferða­löng­unum sem gott vega­nesti. Í flestum til­vikum virð­ast ferða­langar því huga vel að ástandi ferða­vagna/öku­tækja og passa að fyllsta öryggis sé gætt. Ekki má heldur gleyma mik­il­vægi þess að þeir sem eru með ferða­vagna/eft­ir­vagna í eft­ir­dragi virði reglur um hámarks­hraða, en þeir geta nú ekið á allt að 90 km hraða þar sem slíkt er leyfi­legt á þjóð­vegi, en þá er miðað við bestu aðstæður og nauð­syn­legt að hafa það í huga.

Veð­ur­spáin fyrir þessa versl­un­ar­manna­helgi er ann­ars mis­góð (eða misslæm!) eftir lands­hlutum, en ferða­langar eru hvattir til að kynna sér veð­ur­spár í þaula áður en lagt er af stað. Auk akst­urs á lög­legum hraða er líka nauð­syn­legt að öku­menn og far­þegar spenni ávallt beltin, yngri börnin séu í þar til gerðum barna­bíl­stólum og að sjálf­sögðu eiga allir öku­menn að vera alls­gáðir. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hvetur alla veg­far­endur til þess að sýna þol­in­mæði, sem er ómissandi í umferð­inni, og gæta skal sér­stakrar var­úðar við fram­úr­akstur. Með ósk um vel­farnað í umferð­inni.

Jafn­framt þessu verður haldið úti eft­ir­liti í hverfum í umdæm­inu og því vill lög­reglan ítreka að fólk láti vita um grun­sam­legar manna­ferðir (taki ljós­myndir ef slíkt er mögu­legt) og að það skrifi líka hjá sér, t.d. bíl­númer eða jafn­vel lýs­ingar á fólki, ef eitt­hvað óvenju­legt á sér stað í nán­asta umhverfi þess. Inn­brots­þjófar fylgj­ast gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða, hringja jafn­vel dyra­bjöll­unni og þykj­ast vera að spyrja eftir ein­hverjum, og því er mik­il­vægt að hafa þessi atriði í huga. Munið að það er betra að hringja einu sinni of oft í lög­regl­una með upp­lýs­ingar af þessu tagi en einu sinni of sjaldan. Lög­reglan vill enn­fremur minna á mik­il­vægi þess að fólk gangi tryggi­lega frá heim­ilum sínum, t.d. að loka gluggum, þegar það fer að heiman og ekki er úr vegi að til­kynna nágrönnum um slíkt, en nágranna­varsla getur skipt sköpum þegar kemur að því að upp­lýsa inn­brot eða koma í veg fyrir þau. Sér­stak­lega er minnt á að úti­ljós séu kveikt þar sem þau eru til staðar, hvort sem um ræðir baka­til við hús eða að fram­an­verðu. Slíkt ein­faldar nágrönnum að sjá umferð/manna­ferðir við húsin. Sömu­leiðis er mik­il­vægt að fólk upp­lýsi ekki um fjar­veru sína fyrir allra augum þegar farið er í frí, t.d. með til­kynn­ingu á sam­fé­lags­miðlum. Lög­reglan verður með hefð­bundið eft­ir­lit um versl­un­ar­manna­helg­ina, en áhersla verður lögð á að fylgj­ast með íbúð­ar­hús­næði eins og kostur er. Upp­lýs­ingum má koma á fram­færi í síma 444 1000 eða í tölvu­pósti á net­fangið [email protected] Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lög­reglu vegna yfir­stand­andi inn­brots skal und­an­tekn­ing­ar­laust hringja í 112.

Við óskum ferða­löngum góðrar ferðar og minnum alla á að sýna þol­in­mæði og til­lits­semi í umferð­inni. Við munum að sjálf­sögðu standa vakt­ina á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nú sem endranær, en von­andi verður sem allra minnst að gera hjá lög­reglu­mönnum í öllum umdæmum lands­ins!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi