Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ragnar þvertekur fyrir að bróðir hans hafi framið sjálfsmorð: „Logið að mér um dauða bróður míns“

Ragnar þvertekur fyrir að bróðir hans hafi framið sjálfsmorð: „Logið að mér um dauða bróður míns“
Ragnar Agn­ars­son og Margrét Esther Erlu­dóttur, eig­in­kona hans.

„Þriðji maður. Það var grunur og hefur alla tíð verið grunur um hann og við vitum hver hann er í dag án þess að það sé ástæða til að nafn­greina eða aðhaf­ast við hann. Það er bara þannig ástand hjá honum að okkar mati og langt um liðið og hann faðir barns eða barna. Þannig að við aðstand­end­urnir höfum ekki viljað hreyfa við honum,“ segir Ragnar Agn­ars­son í við­tali við Hildi Maríu Sæv­ars­dóttur. Ragnar var bróðir Einars Þórs Agn­ars­sonar sem fannst lát­inn í bíl ásamt félaga sínum, Sturlu Steins­syni, í Dan­í­els­slipp 1. mars árið 1985. Nið­ur­staða rann­sóknar var að þeir hefðu svipt sig lífi en Ragnar er ekki á því.

„Okkur var til­kynnt um lát Einars, bróður míns, og Sturlu, vinar okkar, og að þeir hefðu fund­ist í bif­reið niðri í Dan­í­els­slipp og þeir tekið sitt eigið líf,“ segir Ragnar Agn­ars­son, bróðir Einars heit­ins, en fél­garnir fund­ust 1. mars árið 1985. Ragnar segir að þeir Einar og Sturla hafi kynnst í með­ferð. „Það var það fyrsta sem skeður þarna og ekk­ert nema sorg­ar­sjokk sem varð næst. Næst var þetta ferli sem var kistu­lagn­ing og jarð­ar­för.

Ég átti sam­tal við rann­sókn­ar­lög­reglu rík­is­ins, sem var for­veri rík­is­lög­reglu­stjóra, og þar æxl­uð­ust málin þannig að ég var feng­inn til að jarð­setja Sturlu, vin okkar, á þeirri for­sendu að hann hefði verið ein­stæð­ingur og lög­reglan fyndi engan aðstand­anda. Svo kom heldur betur annað í ljós. Sturla var tveggja barna faðir og hann átti fóst­ur­móður. Það var ákveðið drama í kringum þetta allt. Það var séra Hjalti í Landa­koti sem vís­aði mér á móður Sturlu. Það var margt sem skeði og margt í milli­tíð­inni og er ekki hægt að segja frá öllu í stuttu máli.

Svo var jarð­ar­för og allt gott um það að segja. Foss­vog­skapella var full út úr dyrum og rúm­lega það því að það var mjög stór hópur fyrir utan kirkj­una.“

Þvergirðingsháttur

Svo leið vika til 10 dagar.

„Ég fékk senda heim frá Kirkju­görðum Reykja­víkur tvo svarta rusla­poka með fötum strák­anna. Annar pok­inn var merktur Einari. Hinn Sturlu. Systir mín og vin­kona okkar voru hjá mér þegar ég fékk þessa poka. Ég opn­aði pok­ann með fötum bróður míns og sturt­aði úr honum og þá gaus upp mikil gas­lykt. Bens­ín­lykt. Annars var ekk­ert á föt­unum að sjá sem voru hrein. Það var bara þessi ofsa­lega lykt. Ég tók þetta síðan saman og fór með pok­ann inn í sturtu.

Við sögðum að menn­irnir hafi ekki dáið saman.

Svo opn­aði ég poka Sturlu og ultu fötin út. Þá var enga lykt að finna annað en ferska lykt. Ferska mold­ar­lykt; enda fötin velt úr mold og í þeim tals­vert blóð. Við sögðum að menn­irnir hafi ekki dáið saman. Þetta varð til þess að ég fór illur næsta morgun á fund Hauks Bjarna­sonar hjá rann­sókn­ar­lög­regl­unni og sagði við hann að ég vildi ekki hafa það að það væri logið að mér um dauða bróður míns. Haukur róaði mig. Hann sagði að ég vissi orðið það mikið að það væri ekki hægt að fela fyrir mér. Sturla átti í miklum átökum þarna, hann varð fyrir kæf­ingu, lungna­pípur sprungu og hann gubb­aði blóði. Hann vildi ekki segja mér um and­lát bróður míns þar sem ég væri of náinn honum.

Einu og hálfu ári síðar komu krufn­ings­skýrslur loks í ljós og þá stauð­festi krufn­ings­skýrsla Sturlu blóðið sem kom upp úr honum. Þannig að ég hafði ekk­ert í hönd­unum þegar ég sagði frá þessu en krufings­skýrslur styðja það.

Það sem skeði í þessu næst var að það varð alger þver­girð­ings­háttur rík­is­lög­reglu­stjóra varð­andi það að við fengjum vit­neskju um dauða strák­anna. Bogi Nilsson (rík­is­sak­sókn­ari) lok­aði og skellti í lás ef svo má segja en þarna um ára­mótin 2007/2008 lét hann af störfum, umboðs­maður Alþingis var kom­inn í leik­inn og Valtýr Sig­urðs­son tók við sem ríks­issak­sókn­ari og umboðs­maður Alþingis hrein­lega gerði Valtý það að opna þetta mál þannig að við fengjum aðgengi að krufn­ings­skýrslum. Það var 3. jan­úar minnir mig sem umboðs­maður Alþingis, Tryggvi Gunn­ars­son, gerði Valtý það að afhenda okkur krufn­ings­skýrslur. Og það var í ágúst sama ár sem þeir hjá rík­is­lög­reglu­stjóra afhentu okkur skýrsl­urnar.“

Þriðji maðurinn?

Ragnar talar um þriðja mann­inn.

„Þriðji maður. Það var grunur og hefur alla tíð verið grunur um hann og við vitum hver hann er í dag án þess að það sé ástæða til að nafn­greina eða aðhaf­ast við hann. Það er bara þannig ástand hjá honum að okkar mati og langt um liðið og hann faðir barns eða barna. Þannig að við aðstand­end­urnir höfum ekki viljað hreyfa við honum.“

Hvers vegna slapp þriðji maður?

Hann var þá þriðji mað­ur­inn inni í bílnum?

„Já, en lög­reglan hefur aldrei við­ur­kennt það frekar en annað í þessu máli. Þeir við­ur­kenndu ekki krufn­ings­skýrslur fyrr en ég fann þær sjálfur. Þeir hafa ekki við­ur­kennt neitt. Þeir hafa bara logið. Það voru engin gögn og það var ekki fyrr en Kristinn Hrafns­son (hjá Kompási) tók myndir af gögn­unum, altso möpp­unum, með þeirra máls­núm­eri uppi í vist­uðum geymslum í Þjóð­skjala­safni; þá fyrst við­ur­kenndu þeir að það væri eitt­hvað til um gögn. Það var alltaf bara skrökvað.

Ég hef ákveðnar vís­bend­ingar frá mönnum sem full­yrða.

Hvers vegna slapp þriðji maður? Við skulum spyrja okkur að því. Var verið að kaupa eitt­hvað eða hvað var í gangi? Í rann­sókn­ar­lög­regl­unni voru almennt ómennt­aðir rann­sókn­ar­lög­reglu­menn og oft með ákveðið flokks­merki á sér. Þeir komu inn í lög­regl­una á flokkspóli­tík en ekki á verð­leikum þess að hafa lært til starfs. Það er bara þannig. Ég lít ekki á þetta sem mál sem hafi orðið þöggun að bráð vegna þess að þeir hafi verið eins og þeir voru, svona ódælir, heldur vegna þess að þarna voru ein­hver sjón­ar­mið og ein­stak­lingar sem komu nærri sem ekki mátti velta upp. Og ég hef ákveðin rök fyrir því sem ég get eig­in­lega ekki nafn­greint vegna þess að ég hef ekki undir höndum en ég hef ákveðnar vís­bend­ingar frá mönnum sem full­yrða. Leigu­bíl­stjórar gefa vitn­is­burð um að þeir komu inn á Kaffi­vagn­inn og drukku kaffi og þá var allt í lagi með þá. Þeir fóru út af Kaffi­vagn­inum lík­lega fyrir klukkan sex; þá fara vís­bend­ingar að benda til þess að eitt­hvað sé í gangi hjá lög­reglu. 06.15 var okkur sagt að fyrsta tillkynn­ing inn í bókun lög­reglu í dag­bók hafi orðið; þessar dag­bækur höfum við aldrei fengið að sjá en þær eru til. Þannig að þarna er eitt­hvað að ske og þarna dettur manni í hug: Það er stað­setn­ingin á þeim, þeir eru þekktir af lög­reglu­mönnum fyrir ólæti og drykkju­skap án þess að vera í beinum afbrotum, þeir voru á hafn­ar­svæði og hafn­ar­svæði þýðir: Er það mögu­legt að þeir hafi verið tengdir ein­hverju ólög­legu varð­andi inn­flutn­ing?“

Ragnar er spurður hvort Einar hafi átt óvini.

„Nei, hann átti ekki óvini. Ég held hann hafi verið frekar vina­margur vegna þess að hann þótti ein­stak­lega skemmti­legur og hafði mikla kímni­gáfu. Sturla var kannski öðru­vísi. Hann var vinur vina sinna og mér er sagt of snöggur upp á lagið og sterkur maður frekar og átti til í að lenda í kít­ingi en aldrei alvar­legum sem ég veit um.“

Sömu niðurstöðutölur

Við krufn­ingu kom í ljós blóð á kyn­færum Einars.

„Það eru til­gátur sem aldrei fást svör við um blóð á kyn­færum bróður míns. Annars vegar kann þetta að hafa verið höggá­verki sem er ekk­ert ólík­legt miðað við það sem Haukur Bjarna­son hefur um Sturlu að segja um að þarna hafi átt sér átök en höggá­verki hefði getað orðið þar. En svo var hinn mögu­leik­inn líka sem er að þarna hefði orðið blóð­leki því bróðir minn var nýkom­inn úr aðgerð þar sem bein­flís var tekin úr mjöðm og færð upp í öxl til að hann færi ekki úr axl­ar­lið. Þetta er mögu­leiki sem er órann­sak­aður.“

Lík Einars var með opin augu. Ef þú ert inni í bíl og andar að þér koltví­sýr­ingi þá hlýtur þú að kreista augun því þetta ertir.

„Það er ekki bara ert­ingin. Hitinn frá púst­inu er alla­vega yfir 100 gráður.“

Þeir sjá ekk­ert á heila­bast­inu þótt að koltví­sýr­ingur hafi átt að dæl­ast inn.

„Nei, en það var samt lit­róf hjá bróður mínum sem segir mér að þarna hafi eitt­hvað verið sem var ekki hreint súr­efni. Það er það eina. En ef við skoðum blóð­rann­sókn hjá strák­unum, Sturlu og svo Einari, þá eru sömu nið­ur­stöðu­tölur hjá báðum mönn­unum sem mér finnst allund­ar­legt.“

Þetta var ekki hálft milli­gramm.

Und­ar­legt að það skuli vera í báðum til­fellum sama magn í báðum mönnum.

„Þannig að þetta er ekk­ert sem gefur ástæðu til að vera ástæða eða með­virk ástæða til dauðs­falls. Hins vegar er það und­ar­legt að það skuli vera í báðum til­fellum sama magn í báðum mönnum. Er þetta hægt?“

Þetta átti að hafa verið í stolnum bíl. Lyk­ill­inn var í sviss­inum en bíll­inn var ekki öku­hæfur.

„Hann er tal­inn hafa verið óöku­hæfur og sá sem tók myndir af vett­vangi sagði að bíll­inn hafi verið í slæmu ásig­komu­lagi; hann var dreg­inn ógang­fær úr porti lög­reglu­stöð­ar­innar upp á Smiðju­veg í Kópavogi og þar var bíll­inn grand­skoð­aður og þeir komu honum ekki í gang þar.“

Samt átti hann að hafa dælt koltví­sýr­ingi inn.

„Já, og það er til­gáta sem við höfum heyrt en er ekki rann­sökuð sem er að þeir hafi verið ferjaðir á milli bíla. Það á að hafa verið grár Evr­ópu­bíll en þessi var rauður og amer­ískur og þarna skilur mikið á milli. En þetta er óstað­fest og ekki rann­sakað. Þannig að við getum ekk­ert full­yrt. Hins vegar skrif­aði Björn Ó. Helgason lög­reglu­maður ágætis grein­ar­gerð sem hann sendi þáver­andi ráð­herra, Ögmundi Jónassyni, þar sem hann gerði athuga­semdir þar sem hann hefði komið að þó nokkrum til­fellum þar sem menn hefðu lát­ist inni í bif­reið og hann var þekktur fyrir það að vera kall­aður út við vofei­lega atburði. Nú ætla ég að lesa:“

Úr greinargerð

Og Ragnar les:

„Rúður bif­reið­ar­innar eru ekki sótugar. Aðeins morg­un­dögg á þeim að sjá. Við aðkomu þar sem þess háttar hefur orðið að útblástur bif­reiðar er leiddur inn í bif­reið þá er án und­an­tekn­inga ljóst að rúður verða sótugar. Þó mis­mikið eftir þeim tíma sem útblást­ur­inn hefur lekið inn í bif­reið­ina.“ Þetta er fyrsta athuga­semd. Síðan er hann með þessa athuga­semd: „Slanga leidd upp í útblást­urs­rör bif­reiðar. Engin merki eru um sót á slöngu þótt óþétt rými sé sjá­an­legt á milli slöngu og útblást­urs.“ Sem sagt það segir okkur að bif­reiðin var aldrei í gangi. „Slanga er heil­leg að sjá en sam­sett með grænu lím­bandi um miðju.

Og því eru tíma­setn­ingar í lög­reglu­skýrslu hans rangar.

Á myndum má sjá að neðan við bens­ín­lok bif­reiðar er merki um umtals­verðan bens­ín­leka. Vakin er athygli á að föt Einars höfðu mik­inn anga af mik­illi bens­ín­lykt. Fötin bár­ust aðstand­endum en föt Sturlu höfðu enga slíka lykt.“ Einnig er vakin athygli á að í ótrú­verð­ugri lög­reglu­skýrslu er sagt að mjög sterk gas­lykt hafi verið í bif­reið­inni. Hér vil ég skjóta inn í: Eftir að hafa skoðað málið og eftir að Björn Ó. Helgason lést þá er ég þess full­viss að Haukur Bjarna­son birt­ist starx um morg­un­inn eftir and­lát mann­anna. Og því eru tíma­setn­ingar í lög­reglu­skýrslu hans rangar. Jón Fr. Bjarna­son, nú yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, kom lík­lega á vett­vang þarna undir hádegi og hann skrif­aði þá tíma­setn­ingu þegar hann kom á vett­vang, hvað hann sá og síðan var hann far­inn. Hann var ekki að skrökva neinu. Hann sagði bara frá því hvenær hann kom og hvað hann sá og ekk­ert meira.“

Það var um 11.35.

„Já. Hins vegar eigum við vitn­is­burð sem er vitn­is­burður Hans Markúsar Haf­steins­sonar sem fyrst sagði Kristni Hrafns­syni frá. Kristinn lét mig strax vita og ég hringdi í Hans Markús Haf­steins­son. Með okkur tókst sam­tal og síðan ákvörðun um fund næsta dag en af þeim fundi varð ekki þar sem rík­is­lög­reglu­stjóri gaf Hans Markúsi þau fyr­ir­mæli að eiga ekki orða­stað við okkur þar sem hann væri bund­inn trún­aði lög­reglu. Og við það stóð. En Hans Markús er lát­inn og því erfitt að leita til hans um vitn­is­burð en orð mín getur Kristinn Hrafns­son ásamt Ernu, systur minni, borið vitni um.

Þetta hefur Björn Helgason fengið frá Kristni: „Vakin er athygli á vitn­is­burðum tveggja vitna sem sjá menn­ina látna inni í bif­reið­inni. Það er Hans Markús Haf­steins­son sem segir að mað­ur­inn í fram­sæti far­þega­megin hafi bók­staf­lega verið svartur og greini­lega lát­inn. Maðurinn í aft­ur­sæti var frekar eins og sof­andi og hafði eðli­legt útlit. Hans Markús segir sig hafa athugað lífs­mörk á honum en sín nið­ur­staða hafi verið að dauð­inn hefði þegar tekið hann.“ Ragnar talar um annað vitni, leigu­bíl­stjóra, sem hafi sagt að mað­ur­inn í fram­sæt­inu hafi verið grænn en mað­ur­inn í aft­ur­sæt­inu bara dáinn.

Hafi lög­regla áhuga á að rifja málið upp þá fá þeir öll nöfn upp á borð.

„Sævar Jóhann­es­son frá tækni­deild rann­sókn­ar­lög­reglu rík­is­ins mun hafa komið á vett­vang 11.30. Tók hann ljós­myndir og var hans hlut­verki þar með lokið. Hann sem sé varð ekki vitni að því hvort að vett­vangi hafi verið raskað eða hvort þessum vett­vangi hafi verið breytt. En um það eigum við vitn­is­burð sem eru hjá lög­reglu­mönnum sem við höfum ekki gefið upp nöfnin á enda þeir við almenn lög­gæslu­störf og við höfum viljað halda verndi yfir þeim mönnum og öllum þeim mönnum sem heið­ar­lega unnu sitt starf. Það er við rann­sókn­ar­lög­regl­una að sakast en ekki lög­regl­una eða lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hafi lög­regla áhuga á að rifja málið upp þá fá þeir öll nöfn upp á borð, hvort það er þriðji mað­ur­inn í bílnum eða nöfn lög­reglu­manna sem gættu vett­vangs þennan morgun.“

Ragnar seg­ist vera í jafn­mik­illi óvissu í dag og árið 1985

„Hvað átti sér stað þarna?“

Hann nefnir að eftir að málið fór til lög­reglu hafi það síðan farið til umboðs­manns Alþingis og síðan til rík­is­sak­sókn­ara.

Skömm að þessu

Ragnar er spurður hvort hann haldi að dóms­mála­ráð­herra og rík­is­lög­reglu­stjóri gætu tekið málið upp aftur og rann­sakað það betur.

„Aðvitað vildi ég það. Ef ég ætti orða­stað við ráð­herra í dag þá vildi ég gjarnan að hann færi aftur í bréfa­safnið og læsi bréf umboðs­manns Alþingis um það hvert hlut­verk hans er í máli þegar svo háttar sem í þessu máli. Inn­an­rík­is­ráð­herra eða dóms­mála­ráð­herra er yfir rík­is­sak­sókn­ara sem er æðstur lög­reglu­manna og hann á að hafa valdið. En við lokun ráðu­neytis þá var ítrekað sagt að ráðu­neytið hefði ekki haft hæfi til að fást við málið. Hvað er verið að gera? Hvaða bull er í gangi? Það er skömm að þessu.“

Ragnari er bent á að við lifum á tímum þar sem auð­veld­ara er að þrýsta á yfir­völd heldur en fyrir 37 árum.

„Ég er búinn að fást við yfir­völd frá því ég var barn. Fyrst yfir­völd barna­verndar og síðan starfði ég lengi innan land­helg­is­gæsl­unnar og ég fór í margar skoð­anir og leið­angra á vegum hennar. Síðan kom þetta upp og ég eftir að hafa skoðað allt ferlið og veit um margar mis­fell­urnar hvort sem það er barna­vernd, gæslan – þar sem ég vann með ein­stökum mönnum en samt voru þar mis­fellur sem ég veit um – og síðan þetta mál þá ef ég ekk­ert álit á stjórn­sýsl­unni. Ekkert. Því að þetta fólk er til að þiggja laun. Ég hef álit á lög­reglu; ef rík­is­lög­reglu­stjóri stendur fram og leggur málin upp þá er ég til­bú­inn að vinna með honum. En ekki ráðu­neyti. Og ekki stjórn­sýslu; við stefnum í efna­hags­hrun og þá leikur þetta fólk sér úti í heimi. Það er ekki að vinna vinn­una sína.“

Þar er komið fólk með metnað.

Núna er nýtt fólk og nýir tímar hjá lög­regl­unni.

„Það sem hefur gerst innan lög­regl­unnar er að þar er komið vel menntað fólk. Þar er komið fólk með metnað. Það er fólk sem lætur ekki segja sér. Og það er akkúrat þetta sem hefur skeð innan lög­regl­unnar.“

Ragnar segir að það sé rík­is­sak­sókn­ari eða rík­is­lög­reglu­stjóri sem hafi vald til að taka málið upp á for­sendum þeirrar lok­unar sem Ögmundur Jónasson gerði. „Og það eru allar for­sendur. Þetta yrði þá opnun í þeim til­gangi að gefa börnum Sturlu færi á því að vita hvað varð föður þeirra að ald­urtila og gefa þeim frið í hjarta. Gefa þeim látnu má segja sak­ar­upp­gjöf og síðan okkur aðstand­endum Einars frið í hjarta. Það er það sem það hefði með sér. Mest þykir mér til um það að börn Sturlu fái vissu og síðan hitt að hinir látnu fái upp­reisn þess að vera kall­aðir illum nöfnum. Fái sína hvíld og sína réttu máls­með­ferð. Þeir eiga rétt á því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi