Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ótrúleg nótt fyrir norðan: Sauð upp úr á Sjallanum: Hnífamaður á Siglufirði: Ungur drengur stal bíl

Ótrúleg nótt fyrir norðan: Sauð upp úr á Sjallanum: Hnífamaður á Siglufirði: Ungur drengur stal bíl
Lög­reglan á Norð­ur­landi eystra. Mynd: Facebook.

Lög­reglan á Norð­ur­landi virð­ist hafa átt tals­vert verri nótt en lög­reglan í Reykja­vík. Í það minnsta ef dag­bækur umdæm­anna eru bornar saman. Auk þess hefur lög­reglan á Norð­ur­landi ekki lagt í vana sinn að birta dag­bækur opin­ber­lega, þar til nú.

Það er áber­andi að lög­reglan fyrir norðan skrifar í öðrum stíl en sú í Reykja­vík. Sú norð­lenska er tals­vert ítar­legri og sagt frá atvikum á manna­máli. Ólíkt í Reykja­vík þar fáorður, knappur og nán­ast vél­rænn stíll virð­ist ríkj­andi.

Málin sem lög­regla fyrir norðan tókst á við í nótt og í gær­kvöldi voru fjöl­breytt og krefj­andi. Fyrsta dæmið um það hljóðar svo:

„Um kl. 20:30 í gær­kvöldi fékk lög­regla til­kynn­ingu um mögu­lega vím­aðan öku­mann á ferð­inni þar sem mað­ur­inn hafði einnig veist að konu og síðan ekið í burtu eftir það. Lög­reglu­menn sáu bif­reið­ina, gáfu stöðv­un­ar­merki sem öku­maður sinnti ekki og ók áfram á miklum hraða og skap­aði með akst­urs­lagi sínu mikla hættu og við­hafði víta­verðan akstur mót ein­stefnu og yfir umferð­ar­eyjar. Eftir nokk­urra mín­útna eft­ir­för sem end­aði við iðn­að­ar­bíl í bænum, stökk mað­ur­inn út úr bif­reið­inni en náð­ist skömmu síðar og var hand­tek­inn og færður á lög­reglu­stöð og síðan vistaður í fanga­geymslum v. rann­sóknar máls­ins.“

Rétt fyrir mið­nætti barst svo til­kynn­ing um alvar­legt slys í Fjalla­byggð. „Lög­reglan í Fjalla­byggð fékk til­kynn­ingu um kl. 23:30 í gær­kvöldi um slys þar sem kona hafði fallið um fjóra metra af bakka og niður í fjöru við Hauganes. Betur fór en á horfð­ist og konan lítið slösuð. Björg­un­ar­sveitir voru kall­aðar út vegna slyss­ins en afboð­aðar stuttu síðar þegar ljóst þótti að hægt var að koma kon­unni til aðstoðar frá landi en mögu­lega var talið að sækja þyrfti hana í fjör­una, frá sjó,“ lýstir norð­lenska lög­reglan.

Á sama tíma á Siglu­firði þurfti að hand­taka óðan mann með hníf. „Rétt eftir mið­nætti var maður hand­tek­inn á Siglu­firði en hann hafði verið til­kynntur með ógn­andi til­burði og sagð­ist vera vopn­aður hnífi. Sérsveit RLS á Akureyri var kölluð út vegna manns­ins og hélt af stað á vett­vang en stuttu síðar náðu lög­reglu­menn á Siglu­firði að hand­taka hann án vand­kvæða og var hann færður á lög­reglu­stöð­ina á Akureyri og vistaður þar.“

Svo voru margir ofurölvi á Akureyri og til vand­ræða. „Lögregla á Akureyri fékk til­kynn­ingu um ölvun og ágrein­ing á tjald­svæð­inu við Hamra, um kl. 02:30 og fóru á vett­vang og náð­ist að leysa þann ágrein­ing milli aðila án þess að fjar­lægja þyrfti fólk eða setja í fanga­geymslur,“ segir í dag­bók­inni.

Klukkan þrjú sauð svo upp úr á Sjall­anum. „Um kl. 03:00 var til­kynnt um ógn­andi fram­komu gestar í Sjall­anum gegn dyra­verði. Það mál leyst­ist á staðnum. Lögregla ók nokkrum ofurölvi ein­stak­lingum heim á leið sem höfðu fengið sér heldur mikið ,,neðan í því“ og voru orðnir frekar lasnir af þeim sökum,“ lýsir lög­regla.

Stuttu síðar þurfti að róa sauð­drukk­inn mann á sjúkra­hús­inu. „Lögregla fékk um kl. 04:00 beiðni frá bráða­mót­töku sjúkra­húss­ins á Akureyri vegna manns sem þar var óstýri­látur. Sá hafði verið fluttur þangað af lög­reglu stuttu áður vegna ástands. Það leyst­ist með sam­vinnu lög­reglu og heil­brigð­is­starfs­manna.“

Einnig réð­ust margir menn á einn við Götu­bar­inn. Heppnin var þó með honum og slapp hann vel miðað við aðstæður. „Einhver hiti var í mönnum við Götu­bar­inn í Hafn­ar­stræti um kl. 04:00 og veitt­ust þar nokkrir menn að einum sem tókst að koma sér í skjól á veit­inga­staðnum og biðja um aðstoð. Maðurinn var fluttur á bráða­mót­töku SAk.“

Síðasta verk­efni næt­urnar var svo að eiga við ungan óþekkt­ar­orm. „Tilkynnt var um ungan dreng á ferð­inni á bif­reið sem hann hafði tekið í óleyfi snemma í morgun en þegar lög­regla kom á stað­inn hafði hann skilað bif­reið­inni til eig­anda síns óskemmdri. Verður hátta­lag hans til­kynnt barna­vernd­ar­yf­ir­völdum.“

Hér fyrir neðan má svo til sam­an­burðar lesa lýs­ingu Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á því sem gerð­ist í mið­bænum í nótt.

„Tveir öku­menn stöðv­aðir grun­aðir um ölvun við akstur. Hefð­bundið ferli hjá lög­reglu.

Ökumaður stöðv­aður grun­aður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkni­efna. Hefð­bundið ferli hjá lög­reglu.

Tilkynnt um að maður hafði dottið á raf­skútu í hverfi 104. Minni­háttar meiðsl en mað­ur­inn mjög ölv­aður.

Tilkynnt um vopnað rán í hverfi 105 en þarf hafði maður rænt síma af konu og ógnað henni með hníf. Hann hand­tek­inn og vistaður fanga­geymsu lög­reglu í þágu rann­sóknar máls.

Ökumaður stöðv­aður í akstri án gildra öku­rétt­inda. Sektaður.

Tilkynnt um ölv­aðan ógn­andi mann á tjald­svæð­inu í Laug­ar­dal. Lögregla á vett­vang og fannst mað­ur­inn ekki.

Tilkynnt um hópslags­mál í mið­bænum. Einn gisti fanga­geymslu lög­reglu.

Tilkynnt um aðila í floga­kasti í mið­bænum. Fluttur á slysa­deild til aðhlynn­ingar.

Tilkynnt um ofurölvi aðila í mið­bænum. Honum ekið heim til sín en hann gat ekki gengið sjálfur vegna ölv­unar og hafði kastað upp yfir sig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi