Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fjölmiðlapistillinn – TikTok – Tifandi tímaþjófur

Fjölmiðlapistillinn – TikTok – Tifandi tímaþjófur
TikTok er ávana­bind­andi Mynd: Ashutosh

Hvað í fjand­anum er þetta TikTok? er spurn­ing sem mið­aldra fólk eins og ég hefur sjálf­sagt spurt sig síðan þetta fyr­ir­bæri kom fram á sjón­ar­sviðið. Við vitum að Facebook er eitt stórt mark­aðs­torg, þar sem við sjálf erum varan, og að Instagram er aðal­lega vett­vangur þar sem sjálf­mið­aðir fá allt sem þeir þrá; athygli og sam­þykki. Þá vita líka flestir að Twitter er partí vin­sæla og flotta fólks­ins sem venju­legu fólki var ekki boðið í. En hvað í fjand­anum er þetta TikTok?

Dóttir mín er algjör­lega ofur­seld TikTok og erum við for­eldr­arnir í miklu basli við að hafa hemil á notkun hennar en náðum því þó í gegn að hún sé bara með vini sína sem fylgj­endur, til að reyna að koma í veg fyrir net­ein­elti sem ku þríf­ast á miðl­inum. Dóttir mín hjálp­aði mér, tækni­heftum pabba sínum, að búa til aðgang á þennan miðil sem er það vin­sæll að lag frá níunda ára­tug síð­ustu aldar, toppar aftur vin­sælda­lista heims eftir að hafa birst í mynd­böndum á TikTok. Valdi hún frekar óheppi­legt nafn handa mér, en það fatt­aði ég eftir á. Nafnið er pabbigamli… Ekki stefni ég á heims­frægð, vildi bara athuga af hverju dóttir mín á erfitt með að stjórna notkun sinni á miðl­inum og hvaða læti þetta væru eig­in­lega.

Nú hef ég notað TikTok í nokkra mán­uði og get sagt að ég sé kom­inn með und­ir­stöðu­skiln­ing á þessu fyr­ir­bæri. Þetta er sem sagt ekki bara kjána­legir TikTok-dansar sem gerir flinka dans­ara að millj­arða­mær­ingum heldur er þetta tals­vert meira en það. Þetta er helsti tíma­þjófur inter­nets­ins í dag. Nafnið á miðl­inum er því afar vel við­eig­andi þar sem klukkan tikkar og tokkar ansi oft á meðan maður er fastur þar. Ef maður vill sem sagt slökkva á heil­anum og gleyma stund og stað, er TikTok til­val­inn vett­vangur. Þar er hægt að sjá fólk remb­ast við að vera fyndið, sumum tekst það, öðrum ekki eins og gengur og ger­ist, svo eru það beinu útsend­ing­arnar sem sumar eru það furðu­leg­asta sem ég hef séð, en þar er fólk til dæmis að strjúka míkró­fón­inum sínum og hvísla í hann og smella tung­unni og gefa frá sér furðu­leg hljóð, en þetta finnst mörgum þægi­legt. Ég er ekki einn af þeim. Svo eru það smakk-mynd­böndin þar sem fólk smakkar hitt og þetta og gefur því ein­kunn. Ég við­ur­kenni að ég hef lúm­skt gaman af slíku. Margt annað má finna þarna sem festir mann í vef heila­lausrar skemmt­unar, hvort sem það er gott eða slæmt. Svo að les­endur fái skýr­ari hug­mynd um TikTok ákvað ég að kíkja á tíu mynd­bönd af handa­hófi og lýsa þeim í stuttu máli.

1. Amer­ískur maður í yfir­vigt segir brand­ara. Ég er feitur en ég auð­kenni mig ekki sem feitan, ég er trans-slinder. Drep­fyndið…
2. Banda­rískur grínisti bregst við skrítnu mat­reiðslu­mynd­bandi. Hann hefur verið fyndn­ari.
3. Bein útsend­ing þar sem bresk stelpa talar um naggrís­inn sinn og sýnir búrið hans. Afar áhuga­vert.
4. Hinn íslenski Maggi Mix er staddur í skóg­lendi og segir að það sé í lagi að vera aum­ingi, en reynir svo við að lyfta upp trjá­drumbi og tekst það að lokum. Vel gert.
5. Myndband frá Grinda­vík sem sýnir jarð­skjálfta í verslun. Svaka­legt.
6. Hin íslenska Thelma keppir við vin sinn í lyft­ingum, þyk­ist taka 100 kíló. Nokkuð fyndið.
7. The Lovely Boys-gríntvíeykið með fyndið hnerr­mynd­band. Guð hjálpi þeim.
8. Breskur maður bregst við mat­ar­s­makk­mynd­bandi og er alveg stein­hissa. Ég setti ekki „like“ við það.
9. Grínist­inn Jesse Joseph spyr spurn­inga sem fá heil­ann til að taka helj­ar­stökk. „Ef þú kýlir þig í and­litið og þú meiðir þig, ertu þá sterkur eða aumur?“ Gott stöff.
10. Kafari skoðar skrít­inn fisk. Dýr eru alltaf skemmti­leg.

Ég ætla hvorki að mæla með TikTok né hitt, þetta er fínt ef maður þarf ekk­ert að nota heil­ann í ein­hvern tíma eða er búinn með púslið og leið­ist. En þarna þríf­ast líka alls konar leið­indi heyrir maður, þótt ég hafi ekki tekið eftir því. Allt er gott í hófi sagði skáldið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi