Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gunnar Jóhannsson hrefnuveiðimaður í Hveravík: „Ég hef alltaf verið í vinnu hjá mömmu“

Gunnar Jóhannsson hrefnuveiðimaður í Hveravík: „Ég hef alltaf verið í vinnu hjá mömmu“
Gunnar Jóhanns­son fyrir utan heim­ili sitt í Hveravík.

„Það eru nátt­úr­lega gallar á því sem erfitt er að sníða af,“ segir Gunnar Jóhanns­son, fyrr­ver­andi sjó­maður, um kvóta­kerfið í við­tali við Reyni Trausta­son. „En mér finnt oft að menn gleymi því að ef að bátur var kannski keyptur áður en kvóta­kerfið var sett á sem kost­aði kannski 25 millj­ónir þá var hægt eftir þrjú eða fjögur ár að fá eina og hálfa til tvær millj­ónir fyrir hann. Þá var búið að færa verð­mætin á bátnum sem keyptur var yfir á fisk­inn í sjónum. Og allt í einu var búið að gera þessa eigna­upp­töku af þessu fólki sem átti þessa báta eða þessi skip. Því það er ekk­ert annað en eigna­upp­taka.“

En þú varst á móti þessu í upp­hafi eins og Vest­firð­ingar er það ekki?

„Jú, ætli það ekki.“

Skip­stjór­inn í gróð­ur­hús­inu í Hveravík.

Gunnar fædd­ist og ólst upp á Hólmavík. Það er áhuga­vert hvernig veiði­heim­ildir hafa sog­ast eitt­hvað annað; Hólmavík er að mestu leyti án veiði­heim­ilda í dag. Er það ekki?

„Jú, það er ekki mikið.“

Samherji á rækju­vinnsl­una.

„Ég segi það er bara gott, Samherji á hana ekki. Það er Snæfell.“

En ég segi það er happ fyrir Hólmavík að hafa fengið Þorstein Má eða svona öfl­ugan aðila til þess að taka þessa rækju­vinnslu.

Dótt­ur­fyr­ir­tæki.

„Hann á það held ég hann Mái sjálfur, for­stjór­inn. En ég segi það er happ fyrir Hólmavík að hafa fengið Þorstein Má eða svona öfl­ugan aðila til þess að taka þessa rækju­vinnslu,“ segir Gunnar og bætir síðar við að þarna væri ann­ars engin rækju­vinnsla.

Þannig að hann hefur komið því til bjargar.

„Það er ekki spurn­ing. Það er mín skoðun.“

Gunnar er spurður hvernig hann myndi vilja sjá strand­veiði­kerfið þró­ast.

Við þurfum að hafa þetta svæða­skipt.

„Ég hef ekk­ert verið Jóns­maður í þessu; sem var sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra á sínum tíma sem kom þessu á, Jón Bjarna­son. Ég er hrif­inn af því. Ég er mjög hrif­inn af því. Hér voru allar bryggjur dauðar. Það var ekk­ert að ger­ast í þessum plássum. En þetta bara gerði það að vekum að það var líf í pláss­unum. Og við megum ekki koma strand­veiði­kerf­inu þannig fyrir að allir bát­arnir hóp­ist saman þar sem mest hefur verið veiðin og þar verði líf á bryggj­unum en ekk­ert á hinum. Við þurfum að hafa þetta svæða­skipt. Ég held það. Eða ein­hverja skipt­ingu. Menn hljóta að geta fundið eitt­hvað út úr því.“

Að lesa í ölduna

Gunnar Jóhanns­son fædd­ist og ólst upp á Hólmavík eins og þegar hefur komið fram. Sonur Sig­ur­bjargar Jóns­dóttur og Jóhanns Guð­munds­sonar.

„Pabbi var í útgerð og byrj­aði snemma í útgerð á smærri bátum. Stærsti bát­ur­inn sem hann var með var 37 tonn.“

Sjórinn tog­aði fljótt í Gunnar

„Ég held maður hafi byrjað á tunnu­flekum og dívan eða ein­hverju slíku í höfn­inni á Hólmavík og oft fór maður nú á bólakaf í sjó­inn.“

Gunnar byrj­aði á sjó með föður sínum og seg­ist mest alla sína sjó­mennsku hafa verið á sjó með honum.

„Ég man þegar við vorum að sigla ein­hvers staðar út af Gjögri og hann var að sýna mér til miða. Ég sagði „þetta þarf nú kannski ekki í dag, pabbi, nú erum við með lóra og allar græjur“. Þá horfði hann á mig og sagði „hvað ætlar þú að gera þegar tækin bila því að þau bila?““

Hann hefur verið að benda þér á að það er viss­ara að bera eitt­hvað skyn­bragð á umhverfið.

„Já, bæði sjó­lag og annað slíkt. Hvernig sjó­lag breyt­ist eftir botn­lagi. Lesa í það hvernig aldan hagar sér. Þetta virt­ist vera honum alveg í blóð borið.“

Verðin voru greini­lega svo góð að menn lifðu á því að fara kannski tvsi­var þrisvar á sjó í viku.

Gunnar seg­ist hafa verið á þessum bátum með föður sínum mest á inn­fjarð­ar­rækju og grá­slepp­unni.

„Þetta var svo skrýtið. Það var ekki mikið sem við máttum veiða en verðin voru greini­lega svo góð að menn lifðu á því að fara kannski tvsi­var þrisvar á sjó í viku. Því að vinnslan réði ekki við meira miðað við báta­fjöld­ann og menn máttu veiða kannski tvo til í mesta lagi fimm tonn á viku á bát af rækju.“

Ráðherralaun

Svo voru það hrefnu­veiðar; Gunnar seg­ist hafa verið byrj­aður á hrefnu­veiðum með föður sínum árið 1972.

„Pabbi var skip­stjóri. Við vorum með Norðmann með okkur gamlan sem bjó á Hólmavík, Einar Hansen, og hann var skyttan og var nátt­úru­barn í skot­veiði. Og það gekk nú á ýmsu. Virki­lega gaman. Það var mikið adrena­lín sem flæddi um æðar ungs manns þegar var verið að elt­ast við hval­inn eða hrefn­una.“

Var þetta aðal­lega nýtt til mann­eldis?

Gunnar Jóhanns­son útgerð­ar­maður og ferða­bóndi í Hveravík.

„Fyrst var það þannig. Fyrst var þetta nýtt bara hér heima. Við fórum á bryggj­urnar á Hvamms­tanga og Skaga­strönd og seldum kjötið beint upp úr bát. Og svo nátt­úr­lega Hólmavík og Drangs­nesi. En svo kom Jap­ans­mark­aður til fyrir hrefnu­veið­arnar 1976 og það voru bara algjör umskipti. Verðin nátt­úr­lega ruku upp og nýt­ingin á hvalnum miklu meiri. Það var allt nýtt nema bara beina­grindin.“

Hörku­tekjur.

„Já, miklar tekjur. Það voru ráð­herra­laun á þessu og aldrei róið nema í blanka­logni.“

Hvernig leit­uðið þið uppi dýrin?

„Þá þarf maður að líta í kringum sig. Og líta eftir fugla­gerjum og svart­fugli á sjónum og öðru slíku. Og þá eru miklar líkur á að það sé hvalur ein­hvers staðar á því svæði.

Svo komu hrefn­urnar eins og járn­braut­ar­lest.

Einu sinni vorum við að koma frá Skaga­strönd frá því að skera hval, hrefnu, og ég man að við vorum þreyttir. Það var siglt út um kvöldið eftir að hafa landað deg­inum áður. Við vorum komnir norður undir Selskerið og sá ég mikið af fugli en enga hrefnu. Þannig að ég stopp­aði og drap á og þá fóru að mynd­ast fugla­ger. Svo komu hrefn­urnar eins og járn­braut­ar­lest. Svo var reynt að mjaka sér nær ger­inu. Þá var ég far­inn að skjóta og mestu áhyggj­urnar sem ég hafði voru hvort skut­ull­inn skyldi fara í gegnum tvær í einu. Hvað gerði ég þá?“

Það var problemið.

„Það hefði verið ávísun á vand­ræði. En það varð nú ekki.“

Þið hafið fengið góða veiði þarna.

„Já, við gerðum það og vorum farnir af stað aftur fljót­lega á Skaga­strönd.“

Svo lögð­ust þessar veiðar af.

„Já.“

Var það út af ein­hverjum frið­un­ar­sjón­ar­miðum?

„Já, ég held að það sé nú. Það voru engin vís­inda­leg rök fyrir því að hætta. En það var nátt­úr­lega frið­un­ar­sjón­ar­mið og það fór fyrir Alþingi og það féll á einu atkvæði má segja; það mun­aði einu atkvæði að við gætum haldið áfram eins og Norðmenn gerðu og hafa gert og Japanir.“

Og gera enn.

„Og gera enn.“

Þeir kaupa stór­hvali af Krist­jáni en ekki hrefnu­kjöt af okkur.

Gunnar bendir á að bannið gildi ekki lengur þar sem það mega vera atvinnu­veiðar á Íslandi í dag en að mark­að­ur­inn leyfi þetta ekki. „Japanir kaupa ekki af okkur hrefnu­jöt. Þeir kaupa stór­hvali af Krist­jáni en ekki hrefnu­kjöt af okkur þannig að inn­an­lands­mark­að­ur­inn er ekki nógu burð­ugur til þess að halda úti bæði veiðum og vinnslu.“

Er ekki þekk­ingin að hverfa af þessu veiði­skap?

„Jú, það eru ein­staka gaml­ingjar eins og ég sem þekkja þetta en við erum ekk­ert að veiða. Og auð­vitað hverfur þetta smám saman. Það er hætt við því. En það eru engin rök fyrir því að gera það ekki nema þá bara efna­hags­leg rök; að maður geti ekki selt þetta.“

Það er nóg af þessu dýri segir þú?

„Já, ann­ars hefur þetta verið svo­lítið skrýtið ástand und­an­farin ár og engin hrefna veidd en þeim hefur fækkað. Það er miklu sjaldnar sem maður sér hrefnu úti á sjó heldur en var áður. Í kringum 1972-3 sá maður aldrei hval hér inn­fjarðar. Aldrei nokkurn tím­ann. En krökkt af hrefnu. En núna er fullt af hnúfu­bak hér inn um alla firði en engin hrefna. Við nátt­úr­lega sáum það í gegnum tíð­ina að hrefnan vildi ekk­ert vera á þeim svæðum sem hnúfu­bak­ur­inn var á. Þannig að hnúfu­bak­ur­inn er búinn að taka yfir þessi svæði. Hann ræðst ekki á hana en hann ein­hvern veg­inn stuggar henni frá. Bæði hnúfu­bakur og hrefna eru tæki­fær­is­sinnar í fæðu­vali þannig að ef það er ein­hvers staðar torfa eða torfa af þorski þá renna þeir sér í torfu af þorski. Það gerir hrefnan líka. Við höfum tínt bæði stórufsa og góða, væna ýsu úr hrefnu­mögum. Og bara hell­ing.“

Þannig að það skiptir máli að hafa jafn­vægi í líf­rík­inu og nýta þetta jöfnum höndum?

„Ég veit ekki hvort það breytir öllu. Miðað við mass­ann af hval sem er í haf­inu þá breyta litlar veiðar hér á Íslandi sára­litlu um það. En ef má skjóta önnur dýr og deyða önnur dýr þá sé ég engan mun á að deyða hval sér til matar eða kind.“

Hvað veldur að þetta verður ofan á; þessi frið­un­ar­sjón­ar­mið þó það sé búið að leyfa í ein­hverjum mæli? Hvernig metur þú það?

Ef það er vel hanteruð hval­kjöts­steik þá gefur hún ekk­ert eftir nauta­steik.

„Þetta snýst nátt­úr­lega um umhvef­is­sam­tökin í Banda­ríkj­unum fyrst og fremst og margir hafa talað um byssu­sam­tökin í Banda­ríkj­unum og naut­gripa­sam­tökin sér­stak­lega; að þeir voru hræddir við það að missa spón úr aski sínum við að selja nauta­kjöt því hval­kjötið er öðru­vísi en það er ekk­ert ósvipað nauta­kjöt­inu. Ef það er vel hanteruð hval­kjöts­steik þá gefur hún ekk­ert eftir nauta­steik. Kannski hefur þetta byrjað þar. Svo var þetta að mann­gera skepn­una. Að hún hugs­aði eins og maður og það væri ljótt að skjóta hval. Það gerð­ist ein­hvern veg­inn svo­leiðis. Það var Greenpeace og Sea Shepherd og þessi öfga­sam­tök sem ég segi að séu öfga­sam­tök.“

Gunnar seg­ist ein­stöku sinnum borða hvefnu­kjöt en ekk­ert í neinum mæli miðað við það sem hann gerði áður. „Þetta er ein­stöku sinnum til hátíða­brigða.“

Búinn að fá nóg

Gunnar varð skip­stóri upp úr 1984-5.

Keyptir þú þinn eigin bát?

„Nei, ég hef alltaf verið í vinnu hjá mömmu.“

Faðir Gunnars lést árið 1989.

„Mamma seldi ekk­ert útgerð­ina. Hún hélt bara áfram. Hún fór svo reglu­lega á mið­ils­fundi til að spyrja hvort hún ætti að selja. Og það kom alltaf „nei, nei, þetta er í lagi“.“

Hvað fannst þér um það? Trúir þú því?

„Nei, ég hef aldrei trúað á þetta en hún trúði þessu.“

Trúir þú á fram­halds­líf?

„Já, ég geri það.“

En ekk­ert endi­lega að þú munir geta haft sam­band við jarð­ar­búa?

„Nei, það held ég ekki. En það er þá ein­hverjum snill­ingum gefið að geta gert það. Og öðrum snill­ingum að taka við því.“

Útgerðin var svo seld eftir að móðir Gunnars lést.

„Svo var ég far­inn að drekka of mikið brenni­vín og ég fór í með­ferð 2004 og síðan hefur allt gengið alveg dásam­lega.“

Besta skref sem ég hef tekið á ævinni er að hætta að drekka brenni­vín.

Það er gott skref að hætta að drekka brenni­vín.

„Besta skref sem ég hef tekið á ævinni er að hætta að drekka brenni­vín.“

Gunnar bauð á sínum tíma í haf­rann­sókn­ar­skipið Dröfn og fylgdu því verk­efni til tveggja ára sem var svo fram­lengt. „Ég hefði aldrei fengið það hefði ég ekki verið hættur að drekka. Ég er alveg sann­færður um það. Og ég fékk það og var að vinna fyrir Hafró í nærri 13 ár.

Ég var skip­stjóri á Dröfn­inni í rann­sóknum, rækju­rann­sóknum, síld­ar­rann­sóknum, skel og fleiri verk­efnum. Svo var ég í vit­unum um tíma; 10-12 ár. Að þjón­usta þá vita sem ekki var hægt að þjón­usta á landi. Og það er eitt það skemmti­leg­asta verk­efni sem ég hef kom­ist í.“

Gunnar hætti svo á sjónum.

„Það var bara eitt­hvað sem kall­aði á mig í landi. Og svo var ég búinn að fá nóg.

Svo flutti Gunnar til Hvera­víkur á Ströndum.

„Við keyptum þessa jörð, ég og félagi minn, Magnús Magn­ús­son. Við vorum ákveðnir í að koma heitu vatni til Hólma­víkur og bor­uðum eftir heitu vatni. Við fengum mikið af heitu vatni. 45 lítra var giskað á að þetta væri eða mælt í upp­hafi af tæp­lega 80 gráðu heitu vatni. Og það var hell­ingur. Hólmavík þarf ekki nema kannski 10-12 lítra. En það var ekki borun sem gert var til að dæla úr. En alla­vega sýndu vís­bend­ingar að það er nóg af heitu vatni hér í Hveravík. En við reyndum allt hvað við gátum til að koma þessu til Hólma­víkur. Svo er hlé á þessu og ein­hvern veg­inn glöpt­ust þeir ekki á því að taka heitt vatn hver sem ástæðan er fyrir því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi