Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Safna fyrir sjúkrabörum á Hornstrandir: „Annað hvort er Ingibjörg aumingi eða hún er brotin“

Safna fyrir sjúkrabörum á Hornstrandir: „Annað hvort er Ingibjörg aumingi eða hún er brotin“
Ingi­björg er eng­inn aum­ingi. Mynd: Facebook-skjáskot

„Þann 10. júlí lögðu 18 konur upp í ævin­týra­för til Reykj­ar­fjarðar á Horn­ströndum. Sumar þekkt­ust, aðrar ekki en sam­veran og und­ur­sam­leg nátt­úran við Dranga­jökul sá til þess að allar nutu sín og bund­ust þær sterkum vina­böndum þarna við jök­ul­rönd­ina. Gleðin var við völd og nutu kon­urnar bæði úti­vistar og afslöpp­unar í gömlu heitu laug­inni. Góður matur, söngur og sam­vera batt svo allt saman í dásam­lega upp­lifun.“

Þannig byrjar Facebook-færsla Ragn­hildar Vig­fús­dóttur en hún, ásamt hópi ævin­týra­kvenna standa nú fyrir söfnun svo hægt sé að kaupa sjúkra­börur, spelkum og sjúkra­kassa fyrir íbúa Reykja­fjarðar á Ströndum en þar eru þekktar göngu­leiðir. Ástæða söfn­un­ar­innar er sú að í ferð­inni sem minnst er á hér fyrir ofan, slas­að­ist ein kvenn­anna, Ingi­björg Greta Gísla­dóttir en hún tví ökla­brotn­aði í göng­unni. Engar sjúkra­börur voru á svæð­inu en brugðið var á það ráð að útbúa börur úr árum og flot­galla. Ragn­hildur gaf Mannlífi góð­fús­legt leyfi til að birta færsl­una.

„Það óhapp varð að ein úr hópnum Ingi­bjorg Gréta Gisla­dottir ökkla­brotn­aði í einni göng­unni. Heima­menn brugð­ust skjótt við, sýndu snar­ræði og hug­myndauðgi, með því að útbúa börur úr árum og flot­galla. Því næst komu þau henni fyrir á fjór­hjóli sem flutti hana í hús til frek­ari aðhlynn­ingar þar til þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar náði í hana.“

Í við­tali í Síð­deg­is­út­varp­inu á Rás 2 í dag segir Ragn­hildur frá því að þegar hóp­ur­inn hringdi eftir sjúkra­þyrlu var þeim sagt að helst þyrfti ein­hvern lækni eða hjúkr­un­ar­mennt­aðan til að stað­festa að Ingi­björg væri brotin. „Og við vorum svo heppnar að vera með ljós­móður, sem er jafn­framt hjúkr­un­ar­fræð­ingur,“ sagði Ragn­hildur í við­tal­inu og hélt áfram: „Hún sagði „annað hvort er Ingi­björg aum­ingi eða hún er brotin“, og Ingi­björg er eng­inn aum­ingi og var tví­mæla­laust brotin og þyrlan kom.“

Í færsl­unni segir Ragn­hildur að hóp­ur­inn hafi ákveðið að safna fyrir heima­menn í Reykj­ar­firði.

„Hópurinn varð vitni að ein­stökum sam­taka­mætti og hug­mynda­auðgi heima­manna í erf­iðum aðstæðum.“

Bætti hún svo við: „Það var því sam­þykkt ein­róma að safnað yrði fyrir sjúkra­börum sem myndu þjóna mik­il­vægum björg­un­ar­störfum heima­manna um ókomna tíð ásamt margnota spelkum og góðum sjúkra­kassa. Það kom nefni­lega upp úr kaf­inu að Ingi­björg var ekki sú fyrsta sem slas­að­ist í firð­inum fal­lega en svona slys eru óhjá­kvæmi­legur fylgi­fiskur göngu­ferða í nátt­úru Íslands.“

Þeir sem vilja styrkja hóp­inn er beðið um að leggja inn á reikn­ing: 515-14-609066 kt. 311066-5609. Merkið fram­lagið ykkar með orð­inu “börur” Söfnunin stendur yfir til 15. ágúst. Mark­miðið er að safna 250.000 kr. fyrir sjúkra­börum, spelkum og sjúkra­kassa.

„Þeir fjár­munir sem safn­ast umfram, renna til Lands­bjargar með þakk­læti fyrir þeirra óbil­gjarna fram­lag til öryggis okkar allra.“

Færsluna ásamt mynd­bandi frá björg­un­ar­að­gerð­unum í Reykj­ar­firði má sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi