Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sölvi ræðir við Söru Odds: „Erum enn að vinna úr sameiginlegri áfallastreitu fyrri kynslóða“

Sölvi ræðir við Söru Odds: „Erum enn að vinna úr sameiginlegri áfallastreitu fyrri kynslóða“

Margrét Sara Odds­dóttir, mark­þjálfi og lög­fræð­ingur, er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar. Margrét Sara, oft­ast kölluð Sara Odds, seg­ist finna það sterkt í störfum sínum við að mark­þjálfa fólk að fólk yfir ákveðnum aldri á Íslandi sé upp til hópa að díla við afleið­ingar af til­finn­in­inga­lega lok­uðu upp­eldi. Ísland hafi í gegnum tíð­ina verið sam­fé­lag þar sem ekki mátti ræða til­finn­ingar og allt átti að vera full­komið á yfir­borð­inu.

Tók U-beygju eftir að hún sá að það vantaði ástríðuna

„Það átti allt að vera fínt og hreint heima. Ef að amma þurfti að sækja afa fullan úti í bæ var beðið eftir að það væri búið að slökkva öll ljósin í göt­unni áður en honum var dröslað inn um úti­dyrnar og dag­inn eftir var svo látið eins og ekk­ert hefði gerst. Það mátti ekki ræða um neitt óþægi­legt, en samt var fólk upp­fullt af brestum í hverju ein­asta húsi. Við megum ekki gleyma því að þetta er stað­ur­inn sem við erum að koma frá. Lífið var hart á Íslandi fyrir ekki svo löngu síðan og þessi þjóð er enn að vinna úr sam­eig­in­legri áfallastreitu,“ segir Sara, sem seg­ist sjá að yngri kyn­slóð­iðin hafi upp til hópa fengið allt ann­ars konar til­finn­inga­legt upp­eldi og sé á margan hátt mun heil­brigð­ari.

Sara hefur unnið með miklum fjölda fólks und­an­farin ár og segir algengt að fólk kveiki á því á milli þrí­tugs og fer­tugs að það vilji ekki starfa við það sem það mennt­aði sig til, en oftar en ekki sé ótt­inn við hið óþekkta of sterkur til að taka stökkið.

„Það getur auð­vitað verið mjög erfitt að taka áhættu þegar fólk er með börn og þarf að borga reikn­inga, en ef við leyfum okkur að gera það sem við elskum falla hlut­irnir oftar en ekki með okkur ef við erum þol­in­móð,“ segir Sara, sem sjálf hefur oftar en einu sinni tekið stökkið út í óviss­una. Meðal ann­ars þegar hún sagði skilið við fata­hönnun eftir að hafa verið komin inn í drauma­námið sitt:

„Ég ólst upp í tísku­geir­anum af því að mamma og pabbi ráku tísku­versl­anir og fór til dæmis ekki í ung­linga­vinnu, heldur vann í búð­unum. Svo fór ég sjálf að reka tísku­verslun og hélt að ég yrði í þessu það sem eftir væri, eftir að ég fékk inn­göngu í nám í drauma­skól­ann í fata­hönnun í Bret­landi. En svo á ein­hverjum punkti í nám­inu úti fatt­aði ég að þetta var ekki það sem ég vildi gera til fram­tíðar. Ég átt­aði mig á því að þetta var bara eitt­hvað sem ég var alin upp við og mér hafði verið kennt, en í hjart­anu fann ég að ég vildi gera eitt­hvað annað,“ segir Sara, sem þurfti ung að læra að taka ábyrgð, eftir að hún varð ólétt aðeins 18 ára gömul. Það hjálp­aði henni að skipta um takt í líf­inu:

„Ég fékk reyndar smá aðstoð við að taka þá ákvörðun að hætta í þessum geira, þar sem ég varð ólétt á meðan ég var í nám­inu. Það gerði mér auð­veld­ara að ákveða að skilja við þetta. Ég var bara nýorðin 19 ára þegar ég átti dóttur mína og það breytti mjög miklu. En það var skrýtið að átta sig á því að draum­ur­inn sem ég hafði átt svona lengi um að kom­ast í einn flottasta hönn­un­ar­skóla í Evrópu, var ekki það sem ég raun­veru­lega vildi. En eins og ég segi átt­aði ég mig á því á ákveðnum punkti að þetta var bara gam­all draumur sem tengd­ist minni­mátt­ar­kennd úr æsku.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Söru og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi