Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leikskólaumræðan: „Ekkert 12 mánaða barn er til­búið til þess að vera í burtu 8 klst á dag

Leikskólaumræðan: „Ekkert 12 mánaða barn er til­búið til þess að vera í burtu 8 klst á dag

Langar alla for­eldra að senda börnin sín svo ung á leik­skóla? Um­fjöll­unin um þessi mál hefur lengi verið ein­hliða og því þarf að breyta,“ skrifar Hólm­fríður Krist­jáns­dóttir, graf­ískur hönn­uður, ljós­mynd­ari og móðir, á Vísi.

„Málið er nefni­lega að það vilja ekki allir for­eldrar senda barnið sitt 12 mán­aða gam­alt í dag­vistun. Sjálf er ég ein af þeim og ég veit að við erum mörg. Raunar er það svo að mig langar ekk­ert meira en að verja dög­unum með 14 mán­aða gömlu barni mínu og um­fram það veit ég að barnið mitt þarf enn á mér að halda megin­þorra dags­ins. Ég er öryggið hennar. Ég er mamma hennar. Fengi ég ein­hverju ráðið yrði ég heima með hana til tveggja ára ald­urs og aftur veit ég að margir for­eldrar eru á sama máli.“

„Enn einu sinni eru leik­skóla­málin í brenni­depli. Fyrir­heit borgar­stjórnar um að öll 12 mán­aða börn og eldri fái leik­skóla­pláss í haust virð­ast ekki ætla að ganga eftir og for­eldrar eru ugg­andi.

„Ég spyr því fyrir hönd þeirra for­eldra sem eru í sömu stöðu og ég en fyrst og fremst spyr ég fyrir hönd barn­anna okkar; Hve­nær ætla stjórn­völd að taka mark á þeim fjölda for­eldra sem ekki vill setja börnin sín svo ung á leik­skóla? Hve­nær ætla stjórn­völd að taka mark á hags­muna­sam­tökum eins og Fyrstu Fimm og sér­fræð­ingum eins og Sæunni Kjartans sem virki­lega bera hag barn­anna okkar fyrir brjósti?“

Hólm­fríður talar fyrir því að börn þurfi meiri tíma, ró og sam­veru með for­eldrum sínum. „Hve­nær ætla stjórn­völd að opna augun fyrir mikil­vægi tengsla­mynd­unar fyrstu árin í lífi barn­anna okkar? Hve­nær ætla stjórn­völd að opna augun fyrir því að kulnun for­eldra er ört vax­andi vanda­mál? Hve­nær ætla stjórn­völd að opna augun fyrir því að börn þurfa tíma, ró og sam­veru með for­eldrum til þess að vaxa, dafna og þroskast? Hve­nær á að taka mark á þeirri stað­reynd að tengsla­myndun hefur bein á­hrif á tauga­kerfi og heila­þroska barna til fram­búðar? Hve­nær á að taka mark á þeirri stað­reynd að streita hefur bein á­hrif á tauga­kerfi og heila­þroska barna og það til fram­búðar?“

„Hve­nær ætlar fólk að átta sig á því að við lifum í sam­fé­lagi sem verður hrað­ara og hrað­ara og firrt­ara og firrt­ara með nán­ast hverjum deg­inum og börnin okkar verða sokkn­ari og sokkn­ari í tæki og tól og sömu­leiðis upp­gefnir for­eldr­arnir? Hve­nær ætla stjórn­völd að opna augun fyrir því að geð­heil­brigði á þessu landi fer versn­andi og versn­andi, sér­stak­lega hjá ungu fólki? Hvers vegna ætli það sé og hvar skyldi það byrja? Í æsku mögu­lega? Við búum í sam­fé­lagi sem ýtir undir að­skilnað og ýtir undir kvíða. Við búum í sam­fé­lagi sem er upp­fullt af streitu. Ég get lofað því að ekk­ert 12 mán­aða barn er til­búið til þess að vera í burtu frá for­eldrum sínum átta klukku­stundir á dag í leik­skóla innan um fjölda ann­arra barna. Ekki eitt ein­asta.“

„Þessi enda­lausu lof­orð og til­lögur um pláss á leik­skóla fyrir korn­ung börn er löngu úr­elt dæmi. Það er árið 2022 og það er tími til kom­inn að horfa fram á við, líta inn á við, hægja á og leggja við hlustir. Það er tími til kom­inn að setja börnin okkar í fyrsta sæti. Hvernig væri að bjóða for­eldrum ungra barna greiðslur til þess að vera heima með börnin sín lengur, kjósi þau svo? Og viti menn, undur og stór­merki munu þá ger­ast – fögru fyrir­heitin ræt­ast og leik­skóla­plássin losna hvert af fætur öðru fyrir börn þeirra sem þurfa og/eða kjósa!“ skrifar Hólm­fríður að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi