Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Auðunn hleypur í minningu Orra sem féll fyrir eigin hendi: „Hann skildi eftir sig mikla sorg“

Auðunn hleypur í minningu Orra sem féll fyrir eigin hendi: „Hann skildi eftir sig mikla sorg“
Auðunn Lúth­ers­son

Tón­list­ar­mað­ur­inn Auðunn Lúth­ers­son, betur þekktur undir nafn­inu Auður, ætlar að hlaupa hálf­mara­þon í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu næsta laug­ar­dag. Hann hleypur fyrir Minn­ing­ar­sjóð Orra Ómars­sonar. Málefnið stendur Auðunni nærri, en Orri var honum kær. Hann lést í sjálfs­vígi.

„Ég hleyp í minn­ingu Orra Ómars­sonar vinar míns sem féll fyrir eigin hendi. Hann skildi eftir sig mikla sorg sem fjöl­skylda hans hefur umbreytt í stuðn­ing við aðra aðstand­endur sjálfs­víga og for­varn­ar­starf,“ segir í til­kynn­ingu sem Auðunn sendi frá sér.

„Hann fór alltof ungur og ég sakna hans mikið. Orri var 10x betri en ég í fót­bolta og hand­bolta svo ég mun leggja mig allan fram við að heiðra minn­ingu hans, keppn­is­skapið og það góða starf sem Minn­ing­ar­sjóð­ur­inn og Sorg­ar­mið­stöðin hafa unnið. Orri, þetta er fyrir þig!“

Líkt og áður sagði féll Orri fyrir eigin hendi. Hann var þá ein­ungis 16 ára gam­all, stund­aði nám í Mennta­skól­anum í Reykja­vík og spil­aði knatt­spyrnu með FH.

Sjóð­ur­inn var stofn­aður í minn­ingu Orra og er mark­mið hans að vinna að for­vörnum gegn sjálfs­vígum, auk þess að veita aðstand­endum stuðn­ing sem missa ást­vin með þeim hætti. Sjóð­ur­inn styrkir ýmis verk­efni sem styðja við sömu mark­mið.

„Sjóð­ur­inn í sam­vinnu við önnur félög og stofn­anir þ.e. Rauða kross­inn, Heilsu­gæsl­urnar, Pieta, Geðhjálp, Sorg­ar­mið­stöð, Land­spít­ala, Þjóð­kirkj­una og Embætti land­læknis vill stuðla að ábyrgri umræðu um sjálfs­víg, vinna að for­vörnum, benda á úrræði fyrir þá sem upp­lifa sál­arkvöl og auka umræðu um mik­il­vægi þess að styðja við aðstand­endur sem missa nákom­inn fyrir eigin hendi,“ segir í lýs­ingu á minn­ing­ar­sjóðnum.

Hægt er að heita á Auðunn og styrkja Minn­ing­ar­sjóð­inn hér.

Auðunn hleypur í minn­ingu vinar síns.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi