Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslensk kona myrt: „Lögreglan vinnur nú að því að skoða gögn í máli Hrafnhildar“

Íslensk kona myrt: „Lögreglan vinnur nú að því að skoða gögn í máli Hrafnhildar“
Hrafn­hildur Lilja Georgs­dóttir. Mynd/ski­já­skot. RÚV

Engin nið­ur­staða hefur feng­ist í rann­sókn á morði íslenskrar stúlku sem myrt var í Dóminíska lýð­veld­inu árið 2008, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Alþjóða­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra. Hrafn­hildur var myrt á hót­el­her­bergi þar sem hún starf­aði sem fram­kvæmda­stjóri. Hún var stungin með hníf og lamin í höf­uðið með bar­efli.

Faðir Hrafn­hildar sagði árið 2009 að form­legri rann­sókn á morð­inu væri hætt án þess að morð­ing­inn hafi fund­ist. Þrír hafi þó enn rétt­ar­stöðu grun­aðra sam­kvæmt lög­reglu­skýrslu sem hann fékk í hend­urnar á þeim tíma.

Upp­lýs­ingar frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu eru þær, að þrátt fyrir að form­legri rann­sókn væri lokið, verður mál­inu haldið opnu ef að frek­ari vís­bend­ingar skyldu ber­ast. Ræð­is­maður Íslands í Dóminíska lýð­veld­inu, sem hafði verið í viku­legu sam­bandi við lög­regl­una þar í landi á þeim tíma, sagð­ist myndi fylgj­ast áfram með gangi mála.

Lést af völdum höfuðhöggs

Hrafn­hildur starf­aði sem hót­el­stýra á íbúð­ar­hót­el­inu Extreme Cabarete og bjó jafn­framt þar. Þegar ekk­ert hafði spurst til hennar fór vin­kona hennar inn á her­bergi til hennar og var Hrafn­hildur þá látin.Hrafn­hildur fannst látin í her­bergi sínu og leiddi krufn­ingin í ljós að hún hefði lát­ist af völdum höf­uð­höggs. Hrafn­hildur var 29 ára, barn­laus og ógift.

Rafael Calderon, yfir­maður lög­regl­unnar í Puerto Plata, stað­festi það að Hrafn­hildur hefði lát­ist eftir þungt höf­uð­högg. Hann segir að lík­lega hafi hún verið slegin í höf­uðið með ein­hvers konar kylfu. Grunn stungu­sár eftir hníf voru einnig á lík­ama hennar.

Reynt að þagga niður málið

Junior Enrique, rann­sókn­ar­blaða­maður dag­blaðs­ins El Nuevo Norte í Cabarete segir lög­regl­una hafa reynt að þagga málið niður eftir að það kom upp með því að segja fjöl­miðlum fyrst að um sjálfs­morð hafi verið að ræða.

Honum hafi hins vegar borist myndir af líki Hrafn­hildar sem bentu ótví­rætt til þess að hún hafi verið myrt. Mynd­irnar voru birtar á frétta­vef dag­blaðs­ins en eftir það við­ur­kenndi lög­reglan fyrst að um morð hafi verið að ræða. Enrique segir mynd­birt­ing­unni að þakka að lög­reglan hafi rann­sakað málið betur.

Þegar haft var sam­band við lög­reglu til að kanna ásak­anir blaða­manns­ins, afsak­aði hún svörin sem upp­haf­lega gefin voru fjöl­miðlum og sagði málið nú rann­sakað sem morð.

Fyrstu stig rannsóknar

Fjórir voru hand­teknir í tengslum við málið á sínum tíma, þrir karl­menn og ein konu. Var eitt þeirra grunað um morðið, en hin þrjú talin vita mála­vöxt. Tvö þeirra voru starfs­menn hót­els­ins sem Hrafn­hildur vann hjá á Cabarete-strönd­inni, en tveir voru kunn­ingjar hennar.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá lög­regl­unni í Dóminíska lýð­veld­inu tóku 9 lög­reglu­menn þátt í rann­sókn­inni auk rík­is­lög­reglu­stjóra.

Hrafn­hildur var myrt í strand­bænum Cabarete í Dóminíska lýð­veld­inu á sunn­dags­kvöldi en fannst ekki fyrr en eftir hádegi dag­inn eftir.

Lög­reglan grunar að Hrafn­hildur hafi átti í ást­ar­sam­bandi við hinn meinta morð­ingja, Franklin Genao Alias og að morðið hefði verið „ástríðu­glæpur.“

Sá grunaði

Í fyrstu var haldið að félagar í alþjóð­legu glæpa­sam­tök­unum Hells Angels hefðu átt þátt í morð­inu, en þeir höfðu verið að koma sér fyrir í smá­bænum Cabarete í Dóminíska lýð­veld­inu, en svo virt­ist ekki vera.

Maðurinn sem grun­aður var um morðið á Hrafn­hildi heitir Frederick Franklin Genao. Hann var yfir­heyrðu af lög­regl­unni í Puerto Plata, en svo ekk­ert meira.

Auk hans voru í haldi lög­reglu þau Kelvin Corniel Fermín sem tal­inn var fyrrum kær­asti Hrafn­hildar og starfs­stúlka á hót­el­inu, Paola Jimenez Rodriguez.

Samkvæmt frétta­vefnum El Nuevo Norte var rann­sakað hvort þau síð­ar­nefndu hefðu verið í vit­orði með meintum morð­ingja Hrafn­hildar.

Á ferðalagi um heiminn

Hrafn­hildur hélt í ferða­lag um heim­inn í apríl 2008. Á blogg­síðu sem hún hélt úti sagð­ist hún vera að ferð­ast án til­tek­innar stefnu eða enda­dag­setn­ingar. Hrafn­hildur hóf ferða­lag sitt í Ástralíu. Á leið sinni til Dóminíska lýð­veld­is­ins kom hún víða við, meðal ann­ars í Dubai, Oman og New York. Til Dóminíska lýð­veld­is­ins kom hún svo um miðjan júlí og hóf störf á hót­el­inu um svipað leyti. Þar ætl­aði hún dvelj­ast út jan­úar en fram­haldið var óákveðið.

Íslensk stjórnvöld brugðust fjölskyldunni

Í gær á Vísi, sagði móðir stúlkunnar, að íslensk stjórn­völd hefðu brugð­ist fjöl­skyld­unni með því að beita sér aldrei fyrir rann­sókn máls­ins. Hún vill að málið verði opnað á ný og rann­sókn tekin upp, en morð­ing­inn gengur enn laus.

Karl Steinar Valsson, yfir­lög­reglu­þjónn alþjóða­sviðs rík­is­lög­reglu­stjóra horfði á við­talið í gær og segir að í kjöl­far þess hafi lög­reglan ákveðið að óska eftir upp­lýs­ingum um málið.

„Lög­reglan á Íslandi vinnur nú að því að skoða gögn í máli Hrafn­hildar Lilju Georgs­dóttur sem myrt var í Dóminíska lýð­veld­inu fyrir fjórtán árum. Lög­reglan mun senda fyr­ir­spurnir út og óska eftir upp­lýs­ingum um málið. Þetta segir yfir­lög­reglu­þjónn alþjóða­sviðs rík­is­lög­reglu­stjóra sem telur lög­regl­una ekki hafa þær upp­lýs­ingar sem hún óskaði eftir í mál­inu á sínum tíma.“

Árið 2013, fimm árum eftir morðið, gagn­rýndu for­eldrar Hrafn­hildar rann­sókn­ina og segj­ast aldrei hafa haft trú á henni eða því að morð­ing­inn myndi nást. Þau sögðu þá að sú stað­reynd að málið sé óleyst hafi gert þeim nán­ast ókleyft að syrgja dóttur sína. Þau þurfi að sjá að allt sé reynt til að upp­lýsa hver myrti Hrafn­hildi og þannig geti þau syrgt hana á eðli­legan hátt.

Heim­ildir:

Elísabet Inga Sig­urð­ar­dóttir. 16. ágúst 2022. Lög­reglan mun skoða gögn í máli Hrafn­hildar Lilju og óska eftir upp­lýs­ingum frá Dóminíska lýð­veld­inu. Vísir.

Innlent. 24. sept­em­ber 2008. Hrafn­hildur lést af völdum höf­uð­höggs – Fjórir í haldi. Vísir.

Kastljós. 01. jan­úar 2013. Þrá að finna morð­ingja dóttur sinnar. RÚV.

Styrkt­ar­sjóður Hrafn­hildar. 25. sept­em­ber 2008. Einn grun­aður um morðið, fjórir yfir­heyrðir. MBL

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi