Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tvö varðskip sem börðust í þorskastríðunum seld: „Hin mestu happafley“

Tvö varðskip sem börðust í þorskastríðunum seld: „Hin mestu happafley“

Búið er að afhenda nýjum eig­anda hin forn­frægu varð­skip, Tý og Ægi.

Hin sögu­legu tíma­mót urðu hjá Land­helg­is­gæslu Íslands á mánu­dag­inn er gengið var form­lega frá sölu varð­skip­anna Týs og Ægis og þau afhent nýjum eig­anda.

Samkvæmt vef Land­helg­is­gæsl­unnar var afsal vegna sölu skip­anna und­ir­ritað á skrif­stofu Gæsl­unnar í Skóg­ar­hlíð en að lokun und­ir­ritun, fór fram virðu­leg kveðju­at­höfn um borð í Ægi og Tý við Sunda­höfn. Fyrr­ver­andi skip­verjar drógu skut­fán­ann niður á meðan starfs­menn Gæsl­unnar stóðu heið­ursvörð. Tók Georg Kr. Lárusson, for­stjóri Gæsl­unnar við fána Ægis og Ásgrímur L. Ásgríms­son, fram­kvæmd­ar­stjóri aðgerða­svið, tók við fána Týs. Lauk þar með ára­tuga far­sælli sögu skip­anna í þágu íslensku þjóð­ar­innar en bæði skiptin reynd­ust þjóð­inni vel í Þorska­stríð­inu við Breta.

Ægir var smíð­aður í Álaborg í Danmörku árið 1968 og var í rekstri Gæsl­unnar til árs­ins 2015. Tók Ægir þátt í 50 og 200 mílna þorska­stríð­unum og var það áhöfn hans sem beitti leyni­vopni flot­ans, tog­víra­klipp­unum frægu, á breskan tog­ara í fyrsta sinn þann 5. sept­em­ber árið 1972.

Varð­skipið Týr var afhent Land­helg­is­gæslu Íslands í mars árið 1975 og kom mikið við sögu í 200 mílna þorska­stríð­inu. Klippti áhöfn Týs á tog­víra fjölda tog­ara, bæði breskra og þýskra. Fór Týr nán­ast alveg á hlið­ina er breska frei­gátan Falmouth sigldi tví­vegis á Tý og laskaði veru­lega.

Þá tóku áhafnir beggja skipa þátt í fjöl­mörgum eft­ir­minni­legum björg­un­ara­frekum að því er segir á vef Gæsl­unnar. „Ægis og Týs bíður nú nýtt hlut­verk og óhætt er að segja að þau hafi reynst hin mestu happafley,“ segir á vef Land­helg­is­gæsl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi