Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tilkynningum um heimilisofbeldi og kynferðisofbeldi fækkað – Beiðnir um leit að börnum fjölgað

Tilkynningum um heimilisofbeldi og kynferðisofbeldi fækkað – Beiðnir um leit að börnum fjölgað
Mennta­setur Lögreglu. Mynd/skjá­skot.

Mán­að­ar­skýrsla lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir júlí 2022 sýnir að hegn­ing­ar­laga­brotum hefur fækkað lít­il­lega.

Skráð voru 765 hegn­ing­ar­laga­brot á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í júlí og fækk­aði þessum brotum lít­il­lega á milli mán­aða.

Sláandi er að sjá fjölgun í beiðnum um leit að börnum og ung­mennum. Alls bár­ust 15 beiðnir um leit að börnum og ung­mennum í júlí, sem er fjölgun á milli mán­aða.

Heilt yfir hafa þó borist um 34% færri beiðnir það sem af er ári miðað við síð­ustu þrjú ár á undan.

Þjófnaður og innbrot

Til­kynn­ingum um þjófnað fækk­aði lít­il­lega á milli mán­aða. Heilt yfir bár­ust þó álíka margar til­kynn­ingar og hafa borist að með­al­tali síð­ustu 12 mán­uði á undan. Af þjófn­að­ar­brotum fækk­aði inn­brotum mest á milli mán­aða. Alls bár­ust 82 til­kynn­ingar um inn­brot í júlí miðað við 105 til­kynn­ingar í júní.

Það sem af er ári hafa þó borist álíka margar til­kynn­ingar um inn­brot líkt og bár­ust að með­al­tali fyrir sama tíma­bil síð­ustu þriggja ára á undan.

Þónokkur fjölgun var á til­kynn­ingum um nytja­stuld öku­tækja í júlí. Alls bár­ust 32 til­kynn­ingar sem eru um 44 pró­sent fleiri til­kynn­ingar en að með­al­tali síð­ustu sex mán­uði á undan.

Það sem af er ári hafa þó borist færri til­kynn­ingar um nytja­stuld en árin á undan.

Ofbeldis- fíkniefnabrotum fækkar

Alls barst 121 til­kynn­ing um ofbeld­is­brot í júlí og fækk­aði þessum til­kynn­ingum á milli mán­aða. Til­kynn­ingum um heim­il­is­of­beldi fækk­aði einnig á milli mán­aða. Í júlí var til­kynnt um 19 kyn­ferð­is­brot, er það þónokkur fækkun til­kynn­inga miðað við síð­ustu mán­uði á undan.

Það sem af er ári hafa verið skráð um 13 pró­sent færri kyn­ferð­is­brot á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­an­borið við með­al­tal á sama tíma­bili síð­ustu þrjú ár á undan.

Skráðum fíkni­efna­brotum fækk­aði á milli mán­aða og var eitt stór­fellt fíkni­efna­brot skráð í júlí.  Til­kynn­ingum þar sem öku­maður var grun­aður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkni­efna fækk­aði á milli mán­aða en til­kynn­ingum þar sem öku­maður var grun­aður um ölvun við akstur fjölg­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi