Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bílaviðskipti enduðu með ofbeldi: Stungu kaupandanum undir kalda sturtu

Bílaviðskipti enduðu með ofbeldi: Stungu kaupandanum undir kalda sturtu

Það er víst öruggt að við­skipti manna á milli ganga ekki alltaf snuðru­laust fyrir sig. Sem betur fer endar þó lík­lega minni­hluti þeirra með handa­lög­málum, en það gerð­ist þó einmitt í Sel­ás­hverfi í Reykja­vík, þegar selj­andi bif­reiðar taldi kaup­and­ann hafa svindlað á sér. Selj­and­inn og föru­neyti hans gripu til heldur óhefðs­bundna aðferða, en kaup­and­inn var á end­anum settur í sturtu.

Sakaði kaupandann um að hafa falsað bankaskjal

„Allsérstæðar inn­heimtu­að­gerðir vegna bílavið­skipta voru við­hafðar í húsi einu í Seláshverfi um helg­ina. Þær end­uðu með því að ráðist var að bílkaup­and­anum á heim­ili hans og honum stungið undir kalda sturtu,“ segir í frétt DV um málið. Atvikið sem um ræðir átti sér stað í jan­ú­ar­mán­uði árið 1990.

Forsaga máls­ins er sú að selj­andi bíls­ins hafði ekki fengið greitt fyrir far­ar­skjót­ann, sem hann hafði selt manni búsettum í Sel­ás­hverfi í Reykja­vík.

Blaðið kemur út laug­ar­dag­inn 20. jan­úar, en selj­andi bíls­ins hafði farið, heldur ósáttur, við annan mann til að krefja kaup­and­ann um pen­ing­ana kvöldið áður. Svör kaup­and­ans voru á þá leið að hann hefði pen­ing­ana ekki til­tæka. Seljandi bíls­ins vildi þá að kaupin gengju til baka og sak­aði kaup­and­ann um að hafa falsað banka­skjal fyrir kaupin. Kaup­and­inn gekkst ekki við þessu. Eftir það virð­ist selj­and­inn hafa misst þol­in­mæð­ina.

„Tvímenn­inga­mir réðust þá á kaup­and­ann, rifu fötin af honum og tusk­uðu hann til í íbúðinni. Honum var einnig hótað lífláti ef hann segði lögregl­unni frá. Að lokum var mað­ur­inn færður undir kalda sturtu.“ (DV)

Árbær, hvar Sel­ás­hverfi er að finna.

Sagði seljandann hafa stolið bílnum

Eftir að hafa stungið kaup­and­anum í kalda sturt­una tók selj­and­inn og föru­neyti hans lyklana að bílnum úr vörslu kaup­and­ans og keyrðu feng­inn á brott. Kaup­and­inn lét aðfarir selj­and­ans ekki yfir sig ganga, heldur til­kynnti hann lög­reglu um árás mann­anna, sem og að búið væri að stela bílnum hans. Þótt lík­lega hafi eign­ar­haldið verið á gráu svæði.

Lögregla hafði uppi á selj­and­anum, sem fékkst til að afhenda lög­reglu bíllyklana, án þess þó að gefa það upp hvar grip­ur­inn væri niður kom­inn. Selj­and­inn er sagður hafa til­kynnt lög­reglu að hann ætl­aði sér að geyma bíl­inn í öruggri vörslu sinni þar til málið væri leyst og hann fengi sína greiðslu fyrir fák­inn.

„Kaupandi bílsins gaf skýrslu til lögreglu en hann hefur ekki kært selj­and­ann fyrir líkamsárás né heldur stuld á bif­reið. Lögreglan hefur ekki frek­ari afskipti af einka­við­skiptum sem þessum nema að kæra liggi fyrir. Bíllinn umdeildi er enn í vörslu selj­and­ans,“ segir í frétt DV.

Í frétt­inni kemur einnig fram að nokkuð algengt sé að selj­endur, sem telji sig svikna í bíla­við­skiptum, „grípi til róttækra ráða til að nálgast þau verð­mæti aftur sem þeir fá ekki greitt fyrir sam­kvæmt samn­ingum.“

Ekki er vitað hver mála­lok urðu milli selj­and­ans og kaup­and­ans hreina í Sel­ás­hverfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi