Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bryndís miður sín: „Hvers á ég að gjalda?“

Bryndís miður sín: „Hvers á ég að gjalda?“
Bryndís og Jón Baldvin

„Mér er óglatt. Ég neyddi sjálfa mig til að lesa athuga­semdir 57 Íslend­inga á fés­bók um grein mína, sem birt­ist á visir.is í gær, laug­ar­dag, þann 27. ágúst. Mér er enn flök­urt. Ég er enn með óbragð í munn­inum. Inn i hvers konar heim horfi ég? Illskan, hat­rið og ljót­leik­inn blasa við. Er þetta virki­lega rödd almenn­ings á Íslandi?“

Svona hefst Facebook-færsla Bryn­dísar Schram sem er afar ósátt við athuga­semdir við grein hennar sem birt­ist á Vísi um helg­ina. Í grein­inni rifj­aði hún upp ögur­stund í sjálf­stæð­is­bar­áttu Litháen er hringt var í eig­in­mann hennar, Jón Baldvin Hanni­bals­son og hann beð­inn um að koma undir eins til Vilni­usar því Rússar gerðu sig lík­lega til að „láta til skara skríða,“ líkt og Bryndís orð­aði það. Þar kemur einnig fram að Jón Baldvin hafi verið huns­aður á dög­unum þegar minn­ast átti sjálf­stæðis Eystra­salts­ríkj­anna. Í færsl­unni tal­aði Bryndís um illsku og rifjar upp atvikið í Andalúsíu árið 2018 þar sem mat­ar­gestir þeirra hjóna sök­uðu Jón Baldvin um óvið­eig­andi káf.

„Ég tek það fram, að þrátt fyrri háan aldur hef ég aldrei kynnst svona hugs­un­ar­hætti, aldrei heyrt þessa rödd illsk­unnar. Hvers á ég að gjalda?

En allar þessar ljótu sögur um mig og mann­inn, minna mig sam­stundis óþyrmi­lega á eitt­hvað í for­tíð­inni. Já, einmitt, sum­arið 2018, fyrir fjórum árum. Þá upp­lifði ég eitt­hvað svipað. Það var meira að segja á mínu eigin heim­ili., hugsið ykkur!Hún heitir Laufey Ósk Arn­órs­dóttir. Okkar kynni hófust á Ísa­fjarð­ar­árum okkar. Ég hafði boðið henni í heim­sókn hingað til okkar í Andalúsíu. Þarna sat hún við hlið mér við mat­ar­borðið, sem var hlaðið mat­föngum og ljúfum drykk. Vina­fögn­uður. Sólin skein, og allt var svo undur fal­legt.En allt í einu dró ský fyrir sólu. Mig svim­aði og mér sortn­aði fyrir augum. Þetta var óbæri­leg upp­lifun – óhugn­an­leg. Allt í einu byrj­aði Laufey að öskra á okkur, þar sem hún sat við hlið mér. Hún æpti að mann­inum mínum, sem sat við hinn enda borðs­ins. Þetta var í fyrsta sinn á ævinni, sem ég horfði inn í þennan heim hat­urs og illsku.Hún var stjórn­laus. Jós úr sér óþverr­anum – not­aði sömu orðin og les­endur á visir.is í morgun.: perri, barn­a­níð­ingur, drullu­sokkur…….. í það óend­an­lega.Hún var óstöðv­andi. Þegar Jón Baldvin stóð upp frá borðum í van­þóknun sinni, hljóp hún æpandi á eftir honum. Hún þagn­aði ekki fyrr en hann vís­aði henni á dyr – furðu­lost­inn og orð­laus, yfir­kom­inn rétt eins og ég.Þennan morgun kynnt­ist ég ljót­leik­anum, stjórn­lausu hatri og rudda­legri fram­komu í fyrsta sinn á ævinni.

Og þessi dap­ur­legi lestur í morgun minnti mig óþyrmi­lega á þessa ömur­legu lífs­reynslu fyrir fjórum árum.“

Færsla hennar vakti gríð­ar­lega athygli en 300 manns hefur sýnt stuðn­ing í verki með því að setja þumal, knús eða grát­karl við hana. Þá hafa fjöl­margir skrifað athuga­semdir, oft­ast til stuðn­ings þeim hjónum.

Margrét nokkur skrif­aði: „57 Íslend­ingar á Facebook eru her­inn hennar Lauf­eyjar og ekk­ert annað. Efað her­inn hefði verið 340 þús­und þá væri ástæða til að gráta. Brostu bara að vinum hennar Lauf­eyjar.“

Elisa tal­aði um öfund: „Það sparkar engin í hunds­hræ, öfund og afbrýði­semi. Ekkert annað, þig eruð frá­bær og látið engan segja ykkur annað,sendi faðm­lag til þín.“

Þor­finnur nokkur biður Bryndísi að láta þetta ekki fara inn að skinni: „Ekki láta þetta fara inn að skinni, enn síður inn fyrir. Svona komment eru bara eitt­hvert brota­brot og hitta skila­boða­skjóð­urnar verst fyrir, þeirra skömm. Hlýjar kveðjur til ykkar, kæru hjón.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi