Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mánaðarleg greiðslubyrði hefur hækkað um 46 prósent á einu ári: „Þetta er orðið fjarstæðukennt“

Mánaðarleg greiðslubyrði hefur hækkað um 46 prósent á einu ári: „Þetta er orðið fjarstæðukennt“
Mynd/Envato Elements Mynd: Valery Voennyy

Mán­að­ar­leg afborgun óverð­tryggðs 38 millj­óna króna hús­næð­is­láns með breyti­legum vöxtum hefur hækkað um tæp­lega 70 þús­und krónur á einu ári. Hækkunin nemur um 46 pró­sentum. Ef greiðslu­byrðin helst sú sama næsta árið, nemur hækk­unin ein og sér 840.000 krónum á ári. Það mun hún hins vegar ekki gera. Seðla­banka­stjóri hækk­aði nýverið stýri­vexti, í átt­unda sinn á einu ári, og slíkar hækk­anir skila sér almennt fljótt og vel til bank­anna.

Ein­stak­lingur sem Mannlíf ræddi við tók óverð­tryggt hús­næð­is­lán á breyti­legum vöxtum við íbúð­ar­kaup á síð­asta ári. Í sept­em­ber árið 2021, fyrir ári síðan, var vaxta­pró­sentan á lán­inu 3,45 pró­sent. Afborgun af lán­inu þann mán­uð­inn var 146.575 krónur. Ári síðar er afborgun sept­em­ber­mán­aðar komin upp í 214.176 krónur. Vextir á lán­inu eru nú 6,22 pró­sent og hækk­unin nemur 67.601 krónu.

Mánuður Afborgun
Sept­em­ber 2021 146.575 kr.
Sept­em­ber 2022 214.176 kr.

Hækkun í prósentum: 46%

„Þetta á bara eftir að hækka“

„Hvernig á fólk að geta þetta? Það hlýtur eitt­hvað að láta undan. Það eru alls ekki allir sem geta reitt fram auka 70 þús­und krónur á mán­uði. Og þetta á bara eftir að hækka, ef eitt­hvað er að marka fyr­ir­heit seðla­banka­stjóra og fyrri reynslu,“ segir lán­tak­inn, sem kýs að láta nafns síns ekki getið.

Lán­tak­inn segir því fara fjarri að hann hafi spennt bog­ann of hátt við kaupin. „Alls ekki. Ég réð vel við afborg­anir og láns­hlut­fallið er ekki of hátt. Ég hafði alveg svig­rúm fyrir ein­hverjar hækk­anir, en þetta er orðið fjar­stæðu­kennt. Launin mín hafa sann­ar­lega ekki hækkað á sama tíma.“

Hann seg­ist smeykur um fram­haldið, en ætla má að 0,75 pró­senta stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands á dög­unum komi til með að skila sér hratt og vel út í breyti­lega vexti bank­anna. „Það ger­ist alltaf. Bank­arnir eru alltaf fljótir að hækka vext­ina þegar stýri­vextir hækka. Það gengur ekki jafn hratt í hina átt­ina hins vegar, af ein­hverjum ástæðum.“

Barátta fyrstu kaupenda

Ljóst er að margir eru í svip­uðum sporum og lán­tak­inn sem ræddi við Mannlíf. Fyrstu kaup­endum var gert auð­veld­ara um vik að kaupa fyrstu eign í heims­far­aldri Covid-19, þegar vextir lækk­uðu umtals­vert sam­hliða því að kaup­máttur jókst. Á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2021 voru 33,8 pró­sent allra kaup­enda íbúð­ar­hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að kaupa sína fyrstu íbúð. Vin­sæl­ustu íbúða­lánin voru óverð­tryggð lán. Nú má reikna með að margir þess­ara fyrstu kaup­enda berj­ist í bökkum við að borga af láni sínu.

Í júní síð­ast­liðnum lækk­aði fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands hámark veð­setn­ing­ar­hlut­falls fast­eigna­lána fyrir fyrstu kaup­endur úr 90 pró­sentum niður í 85 pró­sent. Fyrstu kaup­endur þurfa því að reiða fram 15 pró­sent kaup­verðs í útborgun í stað 10 pró­senta, en sú upp­hæð hefur bólgnað enn frekar með hækk­andi fast­eigna­verði.

Auk þess­ara þátta er greiðslu­byrði óverð­tryggðra lána mun hærri en hún var fyrir ein­ungis ári, líkt og fram hefur komið, og því ljóst að þeir sem yfir­höfuð ráða við útborgun í fyrstu íbúð neyð­ast frekar til þess að taka verð­tryggð lán. Greiðslu­byrði þeirra lána en tals­vert lægri, en á sama tíma er það höf­uð­stóll­inn sem hækkar; láns­upp­hæðin sem lán­taki skuldar bank­anum bólgnar út í verð­bólgu. Verð­bólga í júlí var 9,9 pró­sent og hefur ekki verið meiri í nærri 13 ár.

Eftir síð­ustu hækkun standa stýri­vextir Seðla­banka Íslands í 5,5 pró­sentum. Þeir hafa ekki verið svo háir frá árs­lokum 2016. Íslands­banki spáir því að stýri­vextir verði 6 pró­sent í árs­lok, en Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri hefur gefið það út að hann muni hækka stýri­vexti eins oft og þurfa þykir til þess að vinna á móti verð­bólg­unni.

Hækkanir Seðlabanka Íslands á stýrivöxtum

Mánuður Hækkun í pró­sentum Stýri­vextir
Maí 2021 0,25 1,00%
Ágúst 2021 0,25 1,25%
Október 2021 0,25 1,50%
Nóvember 2021 0,50 2,00%
Febrúar 2022 0,75 2,75%
Maí 2022 1,00 3,75%
Júní 2022 1,00 4,75%
Ágúst 2022 0,75 5,50%

„Hlýtur að enda illa fyrir heimilin í landinu“

Lán ein­stak­lings­ins sem Mannlíf ræddi við er hjá Lands­bank­anum. Mán­að­ar­leg greiðslu­byrði hækk­aði um 56.858 krónur frá jan­úar 2022 til sept­em­ber 2022.

Á tíma­bil­inu maí til sept­em­ber á þessu ári hækk­aði mán­að­ar­leg greiðslu­byrði um 38.348 krónur.

Mánuður Afborgun Hækkun milli mán­aða
Janúar 2022 157.318 kr.
Febrúar 2022 163.870 kr. 6.552 kr.
Mars 2022 163.870 kr. 0 kr.
Apríl 2022 167.818 kr. 3.948 kr.
Maí 2022 175.828 kr. 8.010 kr.
Júní 2022 175.828 kr. 0 kr.
Júlí 2022 182.090 kr. 6.262 kr.
Ágúst 2022 193.109 kr. 11.019 kr.
Sept­em­ber 2022 214.176 kr. 21.067 kr.

Á þessum níu mán­uðum gerð­ist það ein­ungis tvisvar að afborg­unin hækk­aði ekki milli mán­aða. Mesta mán­að­ar­lega hækkun á tíma­bil­inu jan­úar til sept­em­ber var 21.067 krónur.

„Þetta hlýtur að enda illa fyrir heim­ilin í land­inu. Þetta gengur ekki mikið lengur,“ segir lán­tak­inn. Umfjöll­un­ina má lesa í heild sinni í nýju helg­ar­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi