Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ætlar „alla leið“: „Áverkar á barninu voru slíkir að læknir brast í grát þegar hann lýsti þeim“

Ætlar „alla leið“: „Áverkar á barninu voru slíkir að læknir brast í grát þegar hann lýsti þeim“

Hinn 13. júní 2016 var Kaj Anton Arnarson dæmdur í 26 mán­aða fang­elsi fyrir að hafa mis­þyrmt tveggja ára dreng hrotta­lega. Árás­irnar áttu sér stað um tveggja daga skeið í októ­ber 2015. Áverkar drengs­ins líkt­ust helst því að hann hefði lent í bílslysi. Hann var tví­hand­leggs­brot­inn, með heila­hrist­ing og áverka um allan lík­amann.

Kaj Anton hafði nýlega end­ur­nýjað kynni sín við móður drengs­ins og var gest­kom­andi á heim­ili mæðgin­anna í Stavan­ger í Noregi. Móðir drengs­ins hafði nýverið fengið vinnu í bænum og bauðst Kaj Anton til þess að gæta drengs­ins heima við. Það traust mis­not­aði hann gróf­lega.

Kaj Anton afplánaði dóminn í sérstöku fangelsi fyrir barnaníðinga

Kaj Anton sat í gæslu­varð­haldi í átta mán­uði vegna máls­ins eða þangað til að dómur féll í mál­inu 13. júní 2016. Réttað var yfir Kaj í Jæren Tings­rett, dóm­stólnum í Sandnes í Noregi. Kaj var dæmdur fyrir að hafa veitt barn­inu alvar­lega áverka. Barnið hand­leggs­brotn­aði, var með áverka á höfði, mar á hrygg, hnjám og rist.

Kaj neit­aði sök og hélt því fram að barnið hefði dottið oftar enn einu sinni. Stundin greinir frá því að lög­fræð­ingur Kaj hefði ætlað að áfrýja dómnum. Hann ætlar „alla leið,“ eins og lög­fræð­ing­ur­inn orð­aði það.

Áverkar á barn­inu voru slíkir að læknir brast í grát þegar hann lýsti þeim í vitna­stúku. Kaj Anton hélt fram sak­leysi sínu.

Málið vakti mikinn óhug

Þegar málið kom upp á sínum tíma vakti það mik­inn óhug, bæði í Noregi og á Íslandi. Í frétt DV segir að þennan örlaga­ríka föstu­dag, 23. októ­ber 2015, hafði íslensk móðir barns­ins treyst Kaj Antoni fyrir því að passa tveggja ára barn sem gat ekki mætt í leik­skóla sökum veik­inda. Móðirin hafði, sam­kvæmt upp­lýs­ingum DV, verið nýbyrjuð í nýrri vinnu og átti erfitt um vik að fá frí. Kaj Anton var treyst fyrir barn­inu. Þegar móðir barns­ins kom heim upp­götv­aði hún að barn hennar væri illa slasað. Fór hún með það á sjúkra­húsið í Stavan­ger í skyndi.

Kaj Anton mætti þangað skömmu síðar. Það sem kallað hefur verið ótrú­verð­ugar útskýr­ingar hans á áverkum barns­ins, urðu til að vekja grun­semdir lækna sem köll­uðu til lög­reglu sem hand­tók Kaj Anton. Kaj Anton hélt alltaf fram að barnið hefði dottið oftar enn einu sinni.

Í dóm­sal var and­rúms­loftið þungt. Bekk­ur­inn var þétt­set­inn af aðstand­endum sem fylgd­ust með aðal­með­ferð­inni. Læknar og hjúkr­un­ar­fræð­ingar, sem sinntu barn­inu á sjúkra­hús­inu, voru meðal þeirra sem gáfu vitn­is­burð á fimmtu­dags­morgun. Við­staddir veittu því sér­staka athygli að málið reynd­ist fag­fólk­inu sumu hverju mjög þung­bært.

Hlægileg refsing

Aðstand­endur litla drengs­ins sem var mis­þyrmt sögðu refs­ing­una  „hlægi­lega“ í sam­tali við Stundina á þessum tíma.

Áverk­arnir koma ekki heim og saman við frá­sögn Kaj Antons.

Engin fékk að vera við dóms­upp­kvaðn­ingu, þess í stað fékk móðir drengs­ins sím­tal þar sem henni var tjáð að Kaj Anton hafi verið fund­inn sekur og þá upp­hæð sem dreng­ur­inn hafi fengið í miska­bætur. Blaða­maður Stund­ar­innar fjall­aði ítar­lega um málið á þeim tíma frá því það kom upp í októ­ber 2015. Samkvæmt dóms­skjölum eru upp­lýs­ingar sem fram komu í frétt­inni á pari við það sem fór fram í dóms­salnum. Þar hélt Kaj Anton því meðal ann­ars fram að barnið hafi dottið tvisvar, mögu­lega þrisvar. Það hafi gerst út frá ein­hverri teg­und elt­inga­leiks þar sem barnið hljóp undan Kaj Antoni. Barnið hafi dottið tvisvar á sama stað, á sama þrös­k­uldi, tvo daga í röð.

Áverk­arnir, sam­kvæmt læknum og starfs­fólki sjúkra­húss­ins sem bar vitni fyrir dómnum, komu ekki heim og saman við frá­sögn Kaj Antons en áverk­arnir sem barnið hlaut eru í lík­ingu við það sem börn á hans aldri hljóta í alvar­legum bílslysum.

Sagðist vera saklaus

Kaj Anton Arn­ars­son sagði í sam­tali við DV árið 2017 vera sak­laus af því að hafa mis­þyrmt tveggja ára íslenskum dreng í Noregi. Hann lýsir dómi sínum í Noregi sem rétt­ar­morði og hyggst fara með málið fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu. Kaj vildi lítið tjá sig um málið á þessu stigi en segir þó margt ósagt.

Kaj Anton kom til Íslands í nóv­em­ber 2016 og afplán­aði eft­ir­stöðvar dóms­ins á Litla-Hrauni. Hann er nú laus þaðan og var kom­inn með vinnu í Reykja­vík, um það bil ári eftir að dómur féll í Noregi. Kaj var ákærður í októ­ber árið 2015 og hafði setið átta mán­uði af sér þegar dómur féll. Hann hefur ávallt haldið fram sak­leysi sínu.

Í sam­tali við DV sagði hann: „Mín hlið hefur ekki komið fram. Það sem gerð­ist í rétt­ar­salnum hefur ekki komið fram. Það er búið að grilla mitt mann­orð fyrir eitt­hvað sem ég gerði ekki. Það hefur líka ekki komið fram að ég er dæmdur á lík­indum, það eru engar sann­anir fyrir því að ég hafi lamið eitt­hvað barn. Ég myndi aldrei gera það, þú þarft að vera eitt­hvað veikur í hausnum til að geta lamið lítið barn,“ segir Kaj sem hyggst segja sína hlið á mál­inu í heild sinni þegar málið er komið lengra á veg.

Var í fyrstu hræddur en líður betur

Stundin fjall­aði ítar­lega um málið þar var meðal ann­ars full­yrt að við leit móð­ur­innar á heim­ili sínu hafi hún fundið umbúðir utan af núðlu­pakka. Í þessum tómu umbúðum fund­ust hár­flyksur frá drengnum en á stóru svæði á höfði hans vant­aði hárs­bút. Þá voru birtar myndir af áverkum drengs­ins, meðal ann­ars slæmu glóð­ar­auga sem dreng­ur­inn var með.

Í við­tali við Stundina, sagði Sindri Krist­jáns­son, faðir drengs­ins, að pilt­inum liði tals­vert betur í dag. „Honum líður ótrú­lega vel miðað við það sem hann hefur gengið í gegnum. Í fyrstu var hann mjög hræddur og öll læti urðu til þess að koma honum úr jafn­vægi. Ef það var bankað á úti­dyra­hurð­ina þá hljóp hann í fangið á mér.

„Þarna hefur barna­vernd­ar­nefndin hér í Noregi komið sterk inn. Þessi sál­fræði­við­töl sem við for­eldr­arnir höfum fengið, og strák­ur­inn líka, hafa orðið til þess að við vitum betur hvernig á að kljást við svona áfall,“ sagði Sindri þá.

Heimildir:

Atli Már Gylfason. 14. júní 2016. Kaj Anton ætlar að áfrýja: Gæti fengið þyngri dóm. Stundin.

Björn Þor­finns­son. 27. ágúst 2016. Þetta eru Íslend­ing­arnir sem sitja inni í fang­elsum erlendis.Sitja inni í Banda­ríkj­unum, Brasilíu, Ástralíu, Þýska­landi, Spáni og Noregi. DV.

Dóms- og lög­reglu­mál · Innlent. 14. júní.2016. Íslend­ingur dæmdur fyrir að mis­þyrma barni. RÚV.

Hjálmar Frið­riks­son. 21. júní 2017. Kaj Anton seg­ist sak­laus: „Það eru engar sann­anir fyrir því að ég hafi lamið eitt­hvað barn“ DV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi