Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Katrín Júlíusdóttir: „Ég bognaði því allhressilega“

Katrín Júlíusdóttir: „Ég bognaði því allhressilega“
Katrín Júl­í­us­dóttir

„Ég hef sinnt núver­andi starfi í tæp­lega sex ár og átt mjög góða tíma. Nú finnst mér tími kom­inn til að líta aðeins upp úr þeim verk­efnum og taka ein­hvers konar „kúnstpásu“ í þessu spil­verki sem lífið er,“ segir Katrín Júl­í­us­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja, sem hefur sagt starfi sínu lausu.

Hvað stendur upp úr á þessum árum hjá sam­tök­unum?

„Í fyrsta lagi verð ég að nefna allt fólkið sem ég hef verið svo lánsöm að starfa með að alls kyns ólíkum verk­efnum. Ég hef unnið með sterku fag­fólki og góðum mann­eskjum sem hafa kennt mér mikið. Ég mun sakna þeirra mikið þó að mörg þess­ara tengsla hafi leitt til fal­legrar vin­áttu sem mun end­ast ævina ef ég fæ ein­hverju ráðið. Í öðru lagi þá verð ég að nefna fjöl­breyti­leika starfs­ins. Hér er aldrei logn­molla.“

Fjár­mála­fyr­ir­tækin voru nýskap­andi í leiðum til að mæta aðsteðj­andi vanda.

Katrín segir margt standa upp úr þegar hún er spurð hvaða verk­efni séu eft­ir­minni­leg­ust og hafi skipt mestu máli. „Ég verð þar fyrst að nefna heims­far­ald­ur­inn og þau öfl­ugu við­brögð sem starfs­fólk fjár­mála­fyr­ir­tækja sýndi í þeirri óvissu sem við blasti strax í upp­hafi. Allir lögð­ust á eitt við að mæta fólki og fyr­ir­tækjum til að verja heim­ili og störf innan þess ramma sem þeim var heim­ilt. Fjár­mála­fyr­ir­tækin voru nýskap­andi í leiðum til að mæta aðsteðj­andi vanda og unnum við á skrif­stofu SFF til dæmis hratt og þétt með aðild­ar­fé­lögum okkar, líf­eyr­is­sjóðum og opin­berum aðilum að gerð sam­komu­lags um greiðslu­fresti á lánum fyr­ir­tækja og heim­ila. Þetta sam­komu­lag gerði fyr­ir­tækjum og heim­ilum kleift að kom­ast hratt í skjól á erf­iðum óvissu­tímum. Viljanum til að ganga eins langt og fram­ast var unnt gleymi ég seint. Fleiri verk­efni frá þessum tíma gæti ég líka nefnt en þau ein­kennd­ust öll af þessu sama við­horfi, að gera allt sem hægt er til að verja heim­ili og störf.

Mig langar líka að nefna nýlegt verk­efni sem er fræðslu­á­tak gegn netsvikum sem heitir „Taktu tvær“. Við settum í byrjun ágúst af stað aug­lýs­ingar og upp­lýs­inga­vef ásamt Samtökum atvinnu­lífs­ins og Neyt­enda­sam­tök­unum. Þar er farið yfir leiðir net­þrjóta til að svíkja út fé og hvernig við getum varið okkur sem best. Einnig leggjum við áherslu á að við ræðum þetta opin­skátt og skilum skömminni sem margir upp­lifa sem hafa orðið fyrir barð­inu á net­þjófum. Samtökin koma að mörgum svona verk­efnum sem hefur verið gaman að taka þátt í og rekum við meðal ann­ars öfl­uga fjár­mála­fræðslu með Lands­sam­tökum líf­eyr­is­sjóða sem heitir Fjár­mála­vit.“

Katrín seg­ist hafa lært mikið um fjár­mála­heim­inn og sam­fé­lagið á þessum árum hjá sam­tök­unum. „Ég hef kannski ekki síst séð enn betur hversu miklu máli fjár­mála­fyr­ir­tækin skipta í okkar sam­fé­lagi hvort heldur sem er í með- eða mót­vindi. Við þurfum að hafa sterk og vel rekin fjár­mála­fyr­ir­tæki og mér finnst flestir gera sér grein fyrir því þó að auð­vitað komi alltaf upp umræða um leið­irnar fram á við og hlut­verk fjár­mála­fyr­ir­tækja. Sú umræða er heil­brigð og eðli­leg í ljósi þess mik­il­væga hlut­verks sem þau gegna. Þá eru þau einnig að fá sífellt fleiri og stærri sam­fé­lags­leg hlut­verk svo sem í lofts­lags­málum og í bar­átt­unni gegn skipu­lagðri glæp­a­starf­semi. Ástæðuna fyrir því tel ég vera að þar býr mikil fag­leg þekk­ing og geta til að leggj­ast á árarnar með sam­fé­lag­inu í stórum mik­il­vægum málum.“

Ég er for­vitin og ævin­týra­gjörn að eðl­is­fari.

Hvað tekur nú við? „Ég held störfum mínum áfram um tíma eða þar til ráðn­ing nýs fram­kvæmda­stjóra liggur fyrir. Að því loknu ætla ég aðeins að anda og fara síðan að líta í kringum mig. Lífið hefur upp á svo margt að bjóða. Ég hef mjög fjöl­breytta reynslu, hef unnið í fiski, komið að rekstri barna­fata­versl­ana, unnið í hug­bún­að­ar­geir­anum og var lengi í stjórn­málum áður en ég hóf störf hér. Ég er for­vitin og ævin­týra­gjörn að eðl­is­fari. Það hefur hingað til leitt mig inn á skemmti­legar brautir. Þetta kemur því bara allt í ljós. Ég tek bara eitt skref í einu.

Spennusagnaverðlaun

Fisk­vinnsla, rekstur barna­fata­versl­ana, hug­bún­að­ar­geir­inn, ráð­herra… Svo er Katrín Júl­í­us­dóttir líka rit­höf­undur og fékk hún á sínum tíma spennu­sagna­verð­launin Svart­fugl fyrir sína fyrstu bók, Sykur.

„Ég verð að við­ur­kenna að ég hafði ekki gengið með rit­höf­unda­feril í mag­anum. En ég er svo lánsöm að hafa í upp­vext­inum fengið hvatn­ingu til að láta slag standa og prófa mig áfram. Síðan gerð­ist það að mað­ur­inn minn, sem er rit­höf­undur, hvatti mig til þess að prófa. Eftir 17 blað­síður sýndi ég honum þetta og hann sagði ein­fald­lega: „Þetta er frá­bært, haltu áfram.” Ég hef lesið mikið í gegnum tíð­ina, hlustað á hljóð­bækur og horft á bíó og heim­ilda­myndir. Ég horfi til dæmis mikið á þætti um raun­veru­lega glæpi, kannski til að reyna að skilja þetta. Hvað veldur því að fólk fremur glæpi? Er það illska? Græðgi? Reiði? Svik? Ótti? Þessi áhugi á fólki og löng­unin til að skilja af hverju fólk gerir óskilj­an­lega hluti er gott vega­nesti í skrifin. Þá pælir þú í þessu í gegnum per­sónu­sköpun. Mér finnst dínamík á milli ólíkra ein­stak­linga og innan fjöl­skyldna einnig áhuga­verð og þegar ég var byrjuð á bók­inni þá stækk­uðu kaflar sem fjöll­uðu um þau mál­efni þannig að það kom mér sjálfri á óvart.

Ég er til dæmis komin með frá­bæran umboðs­mann í Bret­landi eftir að hafa fengið verð­launin.

Það var alger­lega ótrú­legt að fá verð­launin og ég trúi því varla ennþá tveimur árum seinna. Það er fyrst og fremst mik­ill heiður og hvatn­ing til frek­ari skrifa ásamt því að opna á ný tæki­færi ef mér auðn­ast að vinna fyrir þeim. Ég er til dæmis komin með frá­bæran umboðs­mann í Bret­landi eftir að hafa fengið verð­launin og er mjög spennt fyrir því sam­starfi.“

Katrín er byrjuð að skrifa aðra bók sem byggir áfram á Sig­ur­dísi sem er aðal­per­sónan í Sykri. „Ég get ekki sleppt henni alveg strax því mér þykir líka bara svo vænt um hana. Hún er svo ung í Sykri að það er heil­mikið eftir af hennar sögu. Þetta er því glæpa­saga, með breyskum per­sónum, flók­inni fjöl­skyldud­ínamík en líka ást. Ég von­ast til að geta klárað hana á næsta ári.“

Katrín segir að þær bækur sem hún les séu margar og mis­jafnar. „Ég hef lesið mikið af spennu­sögum í gegnum tíð­ina og leita mikið í þær en einnig ævi­sögur af öllu tagi; þær hlusta ég mikið á þegar ég er að sinna heim­il­is­störfum. Þá les ég líka tölu­vert af skáld­sögum af ýmsu tagi og á það til að taka einn höf­und fyrir í einu ef ég dett niður á bók sem mér líkar.“

Mikill hraði hugsana

Ástin. Maðurinn hennar Katrínar er Bjarni M. Bjarna­son rit­höf­undur.

„Við eigum fjóra stráka á aldr­inum 10 til 23 ára og búa þrír þeirra hjá okkur en stjúp­sonur minn býr í Noregi hjá fjöl­skyldu sinni þar. Það er því líf og fjör og við viljum hafa heim­ilið opið. Hjá okkur eru því alltaf nokkrir gestir og á ólíkum aldri og þannig viljum við hafa það. Við fjöl­skyldan erum því voða heima­kær og finnst best að dúlla okkur heima við. Okkur er þó farið að langa til að ferð­ast meira og sýna strák­unum heim­inn. Mér finnst það mik­il­vægt til að gefa þeim víð­sýni og öryggi, til að elta drauma sína, í vega­nesti út í lífið.“

Hvað með lífs­stíl­inn og áhuga­málin?

Þá er gjarnan mik­ill hraði hugs­ana í hausnum á mér, enda greind ofvirk.

„Ég byrj­aði að fikra mig áfram í köldu pott­unum fyrir nokkrum árum og nú er kæl­ing orðin ómissandi hluti af lífi mínu. Við fjöl­skyldan förum mikið í sund og þá finnst mér best að enda sund­ferð­ina í kalda pott­inum. Síðan finnst mér alger dásemd að fara í vötn og er Kleif­ar­vatn í algeru upp­á­haldi en þangað fer ég með góðum vinum allan árs­ins hring nema þegar ísinn er það þykkur að hann loki vatn­inu. Þetta gefur svo góðan kraft en líka hvíld. Mér finnst þetta hafa góð áhrif á lík­amann og svo færðu góða „mont-orku“ í kjöl­farið en hana má ekki van­meta. Þá er gjarnan mik­ill hraði hugs­ana í hausnum á mér, enda greind ofvirk, og núvit­und eða hug­leiðsla hefur oft reynst mér erfið. Þessi heila­virkni er oft mik­ill kostur og hefur komið mér langt en getur verið ansi lýj­andi líka. Í kalda vatn­inu stoppar hrað­lestin og það hægir á öllu sem gefur góða hvíld í eril­sömum heimi.“

Mikil vanlíðan

Katrín segir að lífið sé sér gott.

„Ég hef fengið mörg tæki­færi sem hafa mótað mig. Þá á ég mikið af vinum sem hafa áhrif á mig á hverjum degi og hjálpa mér að vaxa sem mann­eskja. Stórir atburðir geta vissu­lega haft mikil áhrif á mann en við mót­umst mest af okkar dag­lega umhverfi held ég. Mér finnst mik­il­vægt að sækja í jákvæðan félags­skap þar sem fólk stendur saman, styður og styrkir hvert annað. Ég er því mold­rík kona af fjöl­skyldu og góðum vina­böndum sem hafa fylgt mér frá barns­aldri. Mig langar þó að nefna eitt sem hefur kannski mótað grunn­inn í mér einna mest og það er hversu snemma mér var treyst til að vinna alvöru störf og einnig nokkur sumur á aldr­inum 9 – 13 ára þegar ég var send ein í tungu­mála­nám erlendis. Mér var því kennt snemma að standa á eigin fótum, vera óhrædd og það er gjöf sem ég er for­eldrum mínum þakk­lát fyrir.“

Má þar til dæmis nefna blóð­tappa sem ég fékk í höf­uðið þegar ég var 29 ára.

Þótt lífið sé henni gott þá hefur hún fengið sinn skerf af áföllum.

„Við lendum öll í alls konar í gegnum lífið og ekki verður neitt ein­fald­ara með aldr­inum. Ég hef staðið frammi fyrir erf­iðum áskor­unum eins og margir. Má þar til dæmis nefna blóð­tappa sem ég fékk í höf­uðið þegar ég var 29 ára og nýlega kjörin inn á þing. Erfiðast var að vera kippt út úr líf­inu í nokkra mán­uði og frá syni mínum elsta sem þá var ein­ungis rétt að verða fimm ára gam­all. Þessi veik­indi voru þó bless­un­ar­lega þess eðlis að ég náði mér vel og hef ekki kennt mér meins síðan.

Í einni og sömu vik­unni í júní 2018 lést mér afar kær vinur og ég kom að ungum manni sem féll fyrir eigin hendi auk þess sem ég fékk þá grein­ingu að ég væri með brca2-stökk­breyt­ing­una

Eitt allra erf­ið­asta tíma­bil sem ég hef gengið í gegnum per­sónu­lega var þó fyrir rúm­lega fjórum árum en þá í einni og sömu vik­unni í júní 2018 lést mér afar kær vinur og ég kom að ungum manni sem féll fyrir eigin hendi auk þess sem ég fékk þá grein­ingu að ég væri með brca2-stökk­breyt­ing­una. Ég bogn­aði því all­hressi­lega þetta sumar og það tók mig tíma að vinna úr djúpu hjálp­ar­leys­inu sem hellt­ist yfir mig þessa viku. Ég lýsi þessu stundum þannig að í gegnum tíð­ina þá hef ég tekið erf­ið­leika á kass­ann og haldið áfram en í þetta sinn þá límd­ist þetta við brjóst­kass­ann á mér og fór bara ekki. Ég gekk í gegnum tíma­bil sem ein­kennd­ist af mik­illi van­líðan, kvíða og eins varð ég mjög þung í sinni og félags­fælin. Ég komst þó í gegnum þetta á ást­inni frá mann­inum mínum, strák­unum, vinum mínum og vinnu­fé­lögum sem ég get seint lýst með orðum hversu þakk­lát ég er fyrir. Fjöl­skylda unga, fal­lega manns­ins sem ég kom að hjálp­aði mér líka mikið og þar urðu til vina­bönd sem eru mér afar kær. En örlæti þeirra í minn garð þegar þau voru að ganga í gegnum sína dýpstu sorg sýndu mér líka það fal­leg­asta sem við mann­fólkið eigum í okkur sem er sam­kenndin og kær­leik­ur­inn.

Ég tók líka þá ákvörðun þetta sumar að fara í fyr­ir­byggj­andi aðgerðir vegna brca2 og hóf það ferli í byrjun árs 2019. Samhliða lík­am­lega bata­ferl­inu fór svo að birta til í sál­ar­tetr­inu og mér tókst að vinna úr þessu hjálp­ar­leysi og því sem af því leiddi. Ég lærði þarna að við komumst bara ákveðið langt á því að valta yfir eigið til­finn­inga­líf og keyra áfram. Stundum þurfum við að staldra við og horfast í augu við erf­iða líðan og díla við hana. Nú býr öll þessi reynsla í mér og gefur mér styrk til að halda áfram að vera ég sjálf og gera það besta úr hverjum degi. Ef eitt­hvað er þá er ég sátt­ari í eigin skinni en áður, hef róast og reyni að njóta líð­andi stundar. Sam­an­lagt hafa erf­iðir tímar líka kennt mér að leggja mig fram um að lifa líf­inu fal­lega. Eiga góð sam­skipti og koma fram við alla af virð­ingu því við göngum öll í gegnum erf­iða tíma og því alger óþarfi að búa til leið­indi vegna mála sem hægt er að leysa með því að ræða málin og hlusta hvert á annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi