Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Í góðum málum/Í slæmum málum

Í góðum málum/Í slæmum málum
Vítalía skemmti sér drottn­inga­lega á Ítalíu í sumar. Mynd: Instagram-skjáskot

Í góðum málum

Vítalía á fullri ferð áfram.

Vítalía Lazareva virð­ist í mjög góðum málum þessa dag­ana, ef marka má Instagram-reikn­ing hennar. Eins og alþjóð veit hefur hún ekki átt sjö dag­ana sæla frá því að hún upp­lýsti þjóð­ina um meint kyn­ferð­is­brot þriggja eldri manna í heitum potti í byrjun árs­ins. Hún hefur nú kært menn­ina, sem svo kærðu hana til baka fyrir upp­lognar sakir. En í stað þess að hír­ast á ísköldu land­inu sem japl­aði á máli hennar líkt og það væri harð­fiskur með smjöri, ákvað hin unga Vítalía að söðla um og dvelja á Ítalíu í sumar. Og þar hefur hún blómstrað eins og sjá má á Instagram-ljós­myndum hennar. Þar sést hún alsæl á svip um borð í hrað­bát og nýtur bæði hrað­ans og góða veð­urs­ins. Þá hefur hún einnig ferð­ast til Berlínar í sumar og notið góðs matar og lífs­ins. Hún virð­ist líka enn meira fitt en venju­lega og yfir­höfuð má segja að hún glói. Það má því búast við að hún komi end­ur­nærð frá sumr­inu og til­búin í slag­inn sem fram undan er.

Í slæmum málum

Lög­reglan að störfum Mynd/LG

Íslenska sam­fé­lagið er í slæmum málum um þessar mundir. Ég gæti nefnt vaxta­hækk­anir hús­næð­is­lána eða heil­brigð­is­kerfið. Ég gæti líka nefnt sum­arið eða mis­skipt­ingu auðs í land­inu, en nei, ég vil tala um að því er virð­ist tíð­ari ofbeld­is­verk í sam­fé­lag­inu, oft­ast, eðli máls­ins sam­kvæmt, á djamm­inu. Ef dag­bækur lög­reglu eru skoð­aðar má sjá að und­an­farið hafa borist fréttir af ofbeldi og brjál­æði og á lög­reglan hrós skilið fyrir að standa í að koma böndum á hina seku. Ef við skimum yfir fyr­ir­sagnir und­an­far­inna vikna má sjá setn­ingar eins og: Hrotta­leg hópárás í Breið­holti, Hlaut stungu­sár í vopn­uðu ráni, Hópur manna réðst á einn og lét höggin dynja, Hnífa­maður stakk mann í bakið og Illa leik­inn í and­liti eftir þrjá árás­ar­að­ila, og er þetta aðeins brota­brot. Þá virð­ast sífellt fleiri ganga ber­serks­gang, und­an­farið hefur það gerst í miðbæ Reykja­víkur, í Kópavogi og á bráða­mót­tök­unni svo eitt­hvað sé nefnt. Svo sá íslenskt sam­fé­lag ofbeldi í sinni verstu mynd á Blöndu­ósi á dög­unum þar sem tvær mann­eskjur létu lífið. Hvort um sé að kenna geð­heil­brigð­is­kerfi sem er í molum eða ein­hverju öðru skal ósagt látið, en eitt­hvað virð­ist það vera.

Nýjasta Mannlífs blaðið má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi