Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Erna Kristín missti allt í eldsvoða: „Maður er ennþá í panik“

Erna Kristín missti allt í eldsvoða: „Maður er ennþá í panik“
Erna Kristín Brynjars­dóttir

„Ég svaf varla í nótt; ég var alltaf að vakna. Maður er svo­lítið tauga­veikl­aður eftir þetta þannig að maður er svo­lítið svona þótt við séum núna í annarri íbúð. Maður er alltaf að vakna og getur ekki sofnað og hugsar um þetta. Maður er ennþá að melta þetta; að þetta hafi gerst fyrir okkur. En sem betur fer var eng­inn inni í íbúð­inni,“ segir Erna Kristín Brynjars­dóttir en í fyrra­dag kvikn­aði í leigu­í­búð sem hún og fjöl­skylda hennar bjuggu í í þriggja hæða fjöl­býl­is­húsi í Reykja­nesbæ. Íbúðin er stór­skemmd sem og allt sem í henni var en engar skemmdir urðu á öðrum íbúðum í hús­inu. Erna Kristín, eig­in­maður hennar, Benedikt Hjalti Sveins­son, og tvö börn þeirra bjuggu í íbúð­inni.

Það var hræði­legt að sjá þetta og vita að íbúðin væri skemmd sem og allar þessar eigur okkar sem voru þar inni.

Erna Kristín fór að venju með börn þeirra tvö, tveggja og þriggja ára, í leik­skól­ann þennan morgun. Hún er heima­vinn­andi en Benedikt Hjalti vinnur hjá End­ur­vinnsl­unni. Þegar hún kom til baka sá hún lög­reglu­bíla og slökkvi­liðs­bíla fyrir utan húsið auk ann­arra íbúa og lagði reyk út um svefn­her­berg­is­glugga hennar. „Það var hræði­legt að sjá þetta og vita að íbúðin væri skemmd sem og allar þessar eigur okkar sem voru þar inni. Þetta var áfall. Ég var mest­megnis grenj­andi af því að ég vissi ekk­ert hvað ég átti að gera. Ég var í því­líku áfalli.“

Talið er að eld­ur­inn hafi kviknað út frá hellu­borði. „Annað barnið mitt hefur örugg­lega rekið sig í takka á elda­vél­inni; þeir sner­ust eitt­hvað. Það var kveikt á elda­vél­inni.

Innbúið var tryggt og má geta þess að engar myndir eða mynda­albúm eyðilögð­ust í brun­anum.

Ég er eig­in­lega ennþá í sjokki yfir þessu. Þetta var ekki fal­leg sjón að sjá og það er mjög leið­in­legt að maður sé búinn að missa allar eigur sínar. Það er ekki gott að vera í þess­ari stöðu og það er gott að fá hjálp frá ætt­ingjum og öllu þessu fólki út um allt sem er að styðja okkur,“ segir Erna Kristín. Þess má geta að ókunn­ugur maður bauð þeim íbúð sína til afnota þar sem hann er í fríi og eru þau þakk­lát fyrir það boð en þau fengu hins vegar inni hjá móður hennar. Fjöl­skyldan mun svo síðar flytja inn í aðra leigu­í­búð í sama fjöl­býl­is­húsi.

Innbúið var tryggt og má geta þess að engar myndir eða mynda­albúm eyðilögð­ust í brun­anum. Erna Kristín talar sér­stak­lega um leik­föng barn­anna sem eyðilögð­ust í eld­inum sem og nýtt sjón­varp og nýtt hjóna­rúm.

Reykskynjarar

Erna Kristín er frá Akranesi en Benedikt Hjalti ólst upp í Keflavík. Hún segir að þau séu búin að vera saman í þrjú ár.

„Maður er að reyna að vera sterkur og reyna að gera sitt besta og standa saman, fjöl­skyldan, og vera til staðar fyrir hvort annað. Þetta er eins og rús­sí­bani í heil­anum; maður er ennþá í panik.“

Við munum fá barna­læs­ingar á allt sem hægt er að fá barna­læs­ingar á.

Erna Kristín seg­ist hafa lært af þess­ari reyslu. „Við ætlum að taka þetta alveg með trompi. Miðað við að vera búin að lenda í þessu þá ætlum við að taka allt í gegn frá a til ö þegar þar að kemur upp á að fara yfir hættur inn­an­húss og við munum fá barna­læs­ingar á allt sem hægt er að fá barna­læs­ingar á.“ Hún bætir við að fólk eigi að huga að því að reyk­skynjarar séu í húsum og eld­varnir séu almennt í lagi.

Hverjr eru draum­arnir?

„Að lifa frá­bæru lífi miðað við þetta, reyna að vera sterk, gera gott úr þessu og gera betra.“

Stofn­aður hefur verið söfn­un­ar­reikn­ingur fyrir fjöl­skyld­una. 542-26-2979. Kt.: 210596-3059.

Hér fyrir neðan má sjá mynd­band sem tekið var í íbúð­inni eftir brun­ann:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi