Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tekur fréttamenn til bæna fyrir óhlutdrægni: „Ríkisútvarpið boðar samkennd með yfirstéttinni“

Tekur fréttamenn til bæna fyrir óhlutdrægni: „Ríkisútvarpið boðar samkennd með yfirstéttinni“

„Þau þrjú síð­ustu sem hafa dáið úr kon­ungs­fjöl­skyld­unni bresku höfðu að með­al­tali lifað í 99 ára. Þetta er lítið úrtak og vara­samt að draga of miklar álykt­anir af því. En þetta fólk býr aug­ljós­lega við góðan kost.“

Þetta skrifar Gunnar Smári Egilsson, fjöl­miðla­maður og sós­í­alisti, en hann hjólar í RÚV fyrir óvenju jákvæðar umfjöllun um Elísa­betu, drottn­ingu breska heims­veld­is­ins. Hann bendir á að heppni hafi ekki ráð því hve lengi hún lifði.

„Lífslíkur í Bret­landi eru nú um 81 ár. En aðeins um 74 ár hjá fátæk­ustu tíund­inni. Á meðan best setta tíundin getur búist við að ná nærri 84 ára aldri. Og 99 ár síðan hjá toppnum, fólk­inu sem á allt til alls og almenn­ingur ber á höndum sér. Fátæk­asta tíundin, 6,7 miljón manns, myndi lifa tíu árum lengur ef hún fengi að búa við sama öryggi og vel­sæld og best setta tíundin. Þetta er mann­fórn upp á 67 milljón mannár. Og henni linnir ekki að óbreyttu kerfi því það fæð­ast sífellt ný börn inn í aðstæður sem halda þeim fátækum fram á graf­ar­bakk­ann, þræla þeim út og slíta. Þessi börn deyja of snemma, en lifa líka skemur við góða heilsu. Að með­al­tali missir fátæk­asta tíundin heils­una vegna erf­iðis og ills aðbún­aðar áður en hún kemst á eft­ir­launa­aldur. Eftir ára­tuga þrælkun tekur við stutt sjúkra­hús­lega og dauði.“

Gunnar Smári segir að nær væri fyrir Breta að horfast í augu við sögu sína. „Yfir­stétt­inni í Bret­landi tekst að við­halda þessu dráps­kerfi með því að ráð­ast gegn allri sam­kennd með þeim sem standa verst, en magna þess í stað upp ríka sam­kennd með þeim sem hafa það allra best. Nú hefur verið fyr­ir­skipuð þjóð­ar­sorg í Bret­landi vegna þess að 96 ára kona sofn­aði svefn­inum langa. Nær væri að þjóðin horfð­ist í augu við hinn raun­veru­lega harm sem hún býr við, til­gangs­lausar mann­fórnir hins grimmi­lega þjóð­skipu­lag,“ segir gunnar Smári.

Hann seg­ist þó hafa skiln­ing á við­brögðum margra sem syrgja drottn­ing­una. „En auð­vitað má skilja þessi við­brögð Breta. Svo til allir íbú­arnir hafa búið við það alla sína tíð að Elísabet drottn­ing hafi verið kynnt þeim sem nán­ast hluti fjöl­skyld­unnar. Flestir Breta vissi betur af fæð­ingu barna í kon­ungs­fjöl­skyld­unni en barna sem fædd­ust í næsta stiga­gangi, þurftu að hlusta og horfa á enda­lausar frá­sagnir af þessu fólki sem gerir ekk­ert og engum kemur í raun við,“ segir Gunnar Smári.

Hann segir þó óskilj­an­legt hvernig frétta­fólk á Íslandi hagi sér. „En það er full­kom­lega óskilj­an­legt að frétta­fólk Rík­is­út­varps­ins í lýð­veld­inu Íslandi mætti svart­k­lætt til að lesa fréttir af and­láti Elísa­betar. Það væri nær að frétta­menn­irnir væru með sorg­ar­borða alla daga yfir mis­skipt­ing­unni í Bret­landi og mann­fórnum hinnar spilltu yfir­stéttar þar. Og svo sem í mörgum öðrum löndum. Líka hér,“ segir Gunnar Smári.

Hann segir þetta póli­tíska yfir­lýs­ingu hjá frétta­fólki. „Lýðræðið byggir á jöfn­uði, að allt fólk sé jafnt og búi við sama rétt. En líka að allir eigi sama rétt á virð­ingu og helgi. Lýðræðið byggir á form­legum reglum, en líka siðum og venjum. Og það að flytja hingað inn við­brögð breska rík­is­út­varps­ins, að fella alla dag­skrá sam­stundis í sorg­ar­bún­ing þegar drottn­ingin fellur frá, er ekki um góða siði eða sjálf­sagðan virð­ing­ar­vott, heldur er þetta póli­tísk yfir­lýs­ing frétta­fólks­ins um að við skulum feta sömu braut og breska yfir­stéttin hefur markað, sýna þeim sem þjást vegna órétt­lætis sam­fé­lags­ins engan sam­hug en þjálfa með okkur sam­kennd með þeim sem ekk­ert skortir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi