Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Caroline Wanjiku Mwangi elskar íslenska veturinn: „Var krýnd Ungfrú Beauty Point Naíróbí árið 2016

Caroline Wanjiku Mwangi elskar íslenska veturinn: „Var krýnd Ungfrú Beauty Point Naíróbí árið 2016
Mynd/Steini

Caroline Wanjiku Mwangi, förð­un­ar­fræð­ingur frá Kenía, ólst upp á sveitabæ í heima­landi sínu. Hún kynnt­ist fyrir nokkrum árum Unn­steini S. Jóhanns­syni, bónda á Lax­ár­holti. Þar búa hjónin dag ásamt syni hennar. Caroline segir í við­tali við Kolbein Þor­steins­son að sig dreymi um að taka bíl­próf og fá vinnu hér á landi.

„Ég ólst upp á bóndabæ í Kenía. Við vorum með kýr og var farið með þær í skóg­inn á hverjum morgni; það verð ein­hver að fara með þær á morgn­ana og svo var komið með þær á kvöldin. Hér komst ég að því að kýrnar eru lok­aðar inni. Í Kenía mjólkum við kýrnar en hérna eru not­aðir róbótar,“ segir Caroline Wanjiku Mwangi frá Kenía sem er gift Unn­steini S. Jóhanns­syni, bónda á Lax­ár­holti. Hún flutti til lands­ins í mars. „Ég hef sinnt bústörfum hérna og þetta er auð­veld­ara en í Kenía. Mér finnst þetta vera áhuga­vert. Hérna gerir maður ekk­ert með hönd­unum; það eru aðal­lega not­aðar vélar.“

Caroline seg­ist vilja læra að aka traktor og hjálpa manni sínum í öllu.

Fólk slóst. Fólk stal.

Caroline talar um þjóð­fé­lagið þar sem hún ólst upp. „Fólk slóst. Fólk stal. Þetta er eðli­legt í Kenía. Það verður að loka hlið­unum og vera með stóra hunda úti. Ég er að reyna að aðlag­ast. Ég hef spurt Steina um ef ein­hver færi að slást við hann í Reykja­vík og hann hefur sagt að eng­inn færi að slást við sig af engu til­efni. Meiri­hluti fólks er góður. Það sýnir mér að Ísland er mjög frið­sælt land og ég er að reyna að aðlag­ast. Ég hef séð að íslenskir lög­reglu­menn eru ekki vopn­aðir. Lög­reglan er út um allt í Kenía og hún er vopnuð. Steini hefur sagt mér að hér sé eng­inn her en það er her í Kenía. Þetta gerir Ísland áhuga­vert.“

Í við­tali sem Kolbeinn hafði áður tekið við hjónin kemur fram að Caroline er af Kikuyu-ætt­bálki og hafi lokið námi í Naíróbí, gerst förð­un­ar­fræð­ingur og hafið eigin atvinnu­rekstur í því fagi og hafi einnig starfað sem fyr­ir­sæta. Þar segir að hún hafi verið krýnd Ungfrú Beauty Point Naíróbí árið 2015.

Fékk ekki heimsóknarleyfi

Caroline seg­ist ekk­ert hafa vitað um Ísland áður en hún kynnt­ist eig­in­manni sínum. „Ég fór að lesa mér til um Ísland eftir að við kynnt­umst. Mér fannst þetta vera fal­legt land og hafði áhuga á að setj­ast hér að sér­stak­lega út af fjöll­unum og ég elska vet­urna. Mér finnst vet­ur­inn vera svo heill­andi.“

Það tók Caroline langan tíma að kom­ast til Íslands.

„Það tók um sex mán­uði. Við höfðum reynt áður og sótt um heim­sókn­ar­leyfi en það gekk ekki.“

Það er mjög erfitt fyrir okkur Afr­íku­búa að fá vega­bréfs­á­ritun til að kom­ast til Evópu.

Hún seg­ist hafa orðið mjög leið þegar þetta gekk ekki. „Ég hélt þá að sam­bandið myndi ekki ganga en Steini er mjög ákveð­inn maður og hann sagði að við skyldum ekki gef­ast upp og skyldum nýta okkur annan val­mögu­leika sem var að ganga í hjóna­band. Það er mjög erfitt fyrir okkur Afr­íku­búa að fá vega­bréfs­á­ritun til að kom­ast til Evópu. Þeir eru mjög strangir gagn­vart Afr­íku­búum. En ég fékk svo dval­ar­leyfi eftir að við giftum okkur. Ég á marga vini sem hafa reynt að kom­ast til Íslands með því að sækja um heim­sókn­ar­leyfi og þeim hefur verið neitað um það. Þannig að það að ganga í hjóna­band er eini mögu­leik­inn til að kom­ast til Íslands.“

Caroline seg­ist ekki hafa trúað því þegar leyfið var í höfn. „Við vorum svo ham­ingju­söm.“

Menningarsjokk

Caroline kom til lands­ins ásamt ungum syni sínum í mars. Hvernig var til­finn­ingin?

„Þetta var eins og að vera í drauma­landi. Mér fannst þetta ekki vera raun­veru­legt. Ég hafði aldrei áður farið til ann­ars lands og ég hafði tæki­færi til að koma til Íslands með syni mínum. Allt var svo frá­brugðið. Kuldinn hellt­ist yfir mig.“ Hún talar um feg­urð lands­ins. Þögnina. Hrein­leik­ann. Fjöllin.

Ég fékk þó mikið menn­ing­ar­sjokk.

„Maðurinn minn beið eftir mér á flug­vell­inum með blóm­vönd og hann var mjög spenntur. Þetta var draumi lík­ast. Mér finnst ég ennþá vera í draumi vegna þess að allt er svo nýtt svo sem fólkið og veðrið. Ég fékk þó mikið menn­ing­ar­sjokk.“

Áður hafði verið minnst á glæpi í Kenía og að fólk sé með hlið við hús og stóra hunda fyrir utan. Caroline seg­ist vera hissa á að fólk sé ekki með hlið við hús sín hér á landi.

Heimþrá

Caroline seg­ist vera ánægð á Íslandi. „Ég hef ekki hitt neinn sem hefur verið með kyn­þátta­for­dóma eða ein­hvern sem hefur komið illa fram við mig. Mér finnst allir hérna vera mjög elsku­legir.“

Ég grét.

Hún fékk þó heim­þrá eftir að hún flutti til Íslands. „Ég sakn­aði matar í Kenía. Ég sagði við Steina að hann ætti að kaupa flug­miða fyrir mig og ég yrði heima alla­vega í tvo til þrjá mán­uði en að ég kæmi aftur. Ég grét. Ég hringdi í mömmu og sagði að ég yrði að koma heim en hún sagði að ég yrði að vera hérna. Núna líður mér vel. Ég tal­aði ein­hvern tím­ann um það við Steina hvort ég hafi virki­lega beðið hann um að kaupa flug­miða fyrir mig til Kenía. Ég er að aðlag­ast.“

Caroline segir að engin vanda­mál hafi komið upp í tengslum við ungan son hennar. „Hann leikur að dót­inu sínu og horfir á teikni­myndir. Það er ekk­ert sem truflar hann. Ég sé þó að hann saknar félags­skapar ann­arra barna og hann verður mjög spenntur þegar hann sér önnur börn. Það var leið­in­legt að hann gat ekki farið strax í leik­skóla og það þarf að bíða. Þess þarf ekki í Kenía; það er jafn­vel hægt að mæta með barn í leik­skóla dag­inn eftir.“

Caroline talar um að sonur sinni fái stundum ís sem hann var ekki vanur í Kenía. „Ég kom með mikið af lyfjum frá Kenía svo sem flensu­lyf og ég hef sagt við Steina að vera ekki að gefa syni mínum ís af því að ég sé hrædd um að hann fái þá flensu. En hann borðar ís og er í lagi. Þegar Steini er ekki í hús­inu set ég þrjár flöskur með heitu vatni í í rúmið okkar. Mér finnst vera svo kalt. En ég er að venj­ast þessu.“

Vill vera útivinnandi

Caroline tal­aði um hve erfitt sé fyrir Afr­íku­búa að fá heim­sókn­ar­leyfi en hún segir að kannski geti hún boðið for­eldrum sínum ein­hvern tím­ann í heim­sókn. Hún talar um hve fjöl­skylda sín sé áhuga­söm um lífið á Íslandi og hafa þau meðal ann­ars beðið hana um að senda sér mynd­bönd af kúnum á bænum.

Sem betur fer hefur hann hingað til verið ynd­is­legur eig­in­maður.

„Við erum sjö í fjöl­skyld­unni og allir eru að biðja um mynd­band. Þau höfðu áhyggjur; hvernig maður Steini væri og ef hann færi illa með mig þá væri ég svo langt í burtu frá þeim og hvað gætu þau þá gert. Sem betur fer hefur hann hingað til verið ynd­is­legur eig­in­maður. Það hefur ekk­ert vanda­mál komið upp og hann hefur stutt mig mikið. Ég brotna stundum saman þar sem ég er langt að heiman. Steini gerir svo mikið til að hjálpa mér að aðlag­ast sem og syni mínum og gera okkur lífið auð­velt.“

Caroline elskar Unnstein og hún segir að það sem hún elski við Ísland sé að fólk hafi tæki­færi til að vinna. Hana dreymir um að taka bíl­próf og fá vinnu hér á landi. „Það eru ekki tæki­færi í Kenía. Ég get ekki byrjað eftir að vinna. En hann segir að ég eigi að vinna heima.“

Kynntu þér nýjasta tölu­blað Mannlífs

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi