Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Orkukreppan kostar þig 86 þúsund á ári – Almennar bensínstöðvar með nánast algjörlega samræmt verð

Orkukreppan kostar þig 86 þúsund á ári – Almennar bensínstöðvar með nánast algjörlega samræmt verð

Gríð­ar­legar hækk­anir á elds­neyt­is­verði kom mjög við fjár­hag fjöl­skyldna. Frá því í ágúst 2021 og fram í sept­em­ber í ár hefur líter­inn af bens­íni hækkað um 34 pró­sent. En frá því að
lífs­kjara­samn­ing­ur­inn var gerður í apríl 2019 hefur bens­ínið hækkað um 41 pró­sent.
Í ágúst 2021 eyddi sá sem ók að með­al­tali 1200 kíló­metra á mán­uði rúmum 29 þús­und krónum sem er rúm­lega 7 þús­und króna hækkun frá því í ágúst í fyrra þegar sá hinn sami lagði út kr. 22 þús­und krónur. Á árs­grund­velli er mun­ur­inn um 84 þús­und krónur. Þetta mið­ast við bíl sem eyðir 10 lítrum á hundraði. Þetta er gríðr­leg hækkun sem þýðir að fjöl­skylda sem heldur úti teimur bílum þarf að greiða 168 þús­und á ári auka­lega vegna orku­krepp­unnar.

Sam­keppni milli fyr­ir­tækj­anna sem selja bensín er sára­lítil ef marka má skyndi­könnun Mannlífs á orku­verði um miðjan sept­em­ber. Aðeins ein bens­ín­stöð, Costco í Garðabæ, sker sig úr. Þar er þó aðeins um að ræða eina bens­ín­stöð og flestir þurfa að leggja lykkju á leið sína með til­heyr­andi kostn­að­iog  aka langar leiðir til að ná sér í ódýr­ara elds­neyti. Lægsta verð á bens­íni hjá Costco er 296 krónur.

Langódýrasta bens­ínið fæst í Costco.

Ef þú ert með aðild hjá Costco og verslar allt bensín þar og keyrir 1200 kíló­metra mán­uði miðað við eyðslu 10 lítra á hundraði á mán­uði þá er sparn­að­ur­inn krónur 3.624 krónur á mán­uði eða rúm­lega 43 þús­und krónur á ári. Þegar tekið hefur verið tilllit til kostn­aðar vegna aðildar að Costco, 4800 krónur á ári, er sparn­aður 39 þús­und krónur.

Hæsta bens­ín­verðið er hjá N1. Almennt verð þar er 326 krónur á lítr­ann. Þar munar því rúmum 30 krónum á hvern líter ef litið er til Costco. Það þýðir að sá sem fyllir 60 lítra tank þarf að greiða 1800 krónum meira en hjá Costco. Ef litið er almennt bens­ín­verð á öllum stöðvum er mun­ur­inn aðeins 2 til 3 krónur. Það þýðir að við­skipta­vin­ur­inn sem ber sig eftir lægsta verð­inu sparar innan við 200 krónur á tank­inum, í besta falli.

Lægsta verð hjá Orkunni er á Bústaða­vegi, Dalvegi, Reykja­vík­ur­vegi og Mýr­ar­vegi. Með Orku­lykli færðu 12 kr afslátt en þó ekki hjá ódýr­ustu stöð­unum. Með því að nota lykil hjá Orkunni í Njarðvík þar sem verðið er 311 krónur færðu líter­inn á 299 krónur sem er ódýr­ara en á ódýr­ustu stöðv­unum. Ódýrasta bens­ínið hjá Olís er á Akureyri. Ódýrasta bens­ínið hjá hjá ÓB er á Hlíð­ar­braut Akureyri, Arn­ar­smára, Bæj­ar­lind, Fjarð­ar­kaup og Hamra­borg
Ódýrasta bens­ínið hjá N1 er á Tryggva­braut Akureyri, Skóg­ar­lind, Reykja­vík­ur­vegi og Norð­ur­hellu.

Hjá Atl­antsolíu fá félagar í FÍB 16 kr afslátt en þó ekki af þeim stöðvum sem eru ódýrastar. Almennur afsláttur er 5 krónur á líter ef greitt er með lykli. Lægsta verð hjá Atl­antsolíu er í Kaplakrika, Sprengisandi og Bald­urs­nesi Akureyri. Margir nýta sér lykla hjá stöðv­unum og ná hag­stæð­ara verði.

Það er vand­séð hvernig fólk getur haldið niðri kostn­aði á elds­neyti með verð­sam­an­burði. Verð­lagn­ing olíu­fé­lag­anna er þannig að sára­lít­ill munur er almennt á verð­inu. Afslættir á ein­stökum stöðvum eru til­vilj­ana­kenndir og engin leið að elta slíkt til að ná fram sparn­aði í raun.

Box: 13 leiðir til að spara bensín

1. Veldu bíl sem er spar­neyt­inn.

2. Allt sem gert er til að draga úr bens­íneyðslu sparar pen­inga

3. Hafðu í huga að hægt er að fá hjól­barða sem draga úr nún­ings­mót­stöðu vegar.

4. Gakktu eða hjól­aðu styttri vega­lengdir.

5. Skipu­leggðu sam­flot í bíl með öðrum.

6. Skipu­leggðu útrétt­ingar.

7. Hraðakstur eykur bens­íneyðslu. Aktu á lög­legum hraða.

8. Sparaðu inn­gjöf­ina og forðastu snögg­hemlun. Þú sparar bensín og dregur úr mengun.

9. Skiptu reglu­lega um olíu, loft- og olíusíu.

10. Hafðu loft­þrýst­ing í hjól­börð­unum sem næst því hámarki sem fram­leið­andi gefur
upp. Það dregur úr bens­íneyðslu og eykur end­ingu hjól­barð­anna.

11. Mjög mik­il­vægt er að stilla gang bíls­ins.

12. Aktu ekki með óþarfa hluti sem auka þyngd bíls­ins. Hvert aukakíló í bílnum þýðir aukna bens­ín­notkun.

13. Forðastu að aka um með tóma far­ang­urs­grind eða opna glugga, það eykur
veru­lega loft­mót­stöðu og þar með bens­íneyðslu og mengun.

*Sparn­að­ar­ráð FÍB. Upp­lýs­ingar um verð­þróun frá ASÍ *Elds­neyt­is­verð 13.09.22 *Aðild að FÍB kostar kr 9.180 en þar eru ýmis fleiri fríð­indi í boði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi