Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ísing olli hræðilegu flugslysi í Ljósufjöllum – Pálmar missti eiginkonu og ungbarn

Ísing olli hræðilegu flugslysi í Ljósufjöllum – Pálmar missti eiginkonu og ungbarn

Laug­ar­dag­inn 5. apríl árið 1986 lögðu hjón af stað í flug ásamt 11 mán­aða gam­alli dóttur sinni. Leiðin lá frá Ísafirði til Reykja­víkur en þrír aðrir far­þegar voru sam­ferða hjón­unum. Veðrið var mjög slæmt en þegar flug­vélin flaug yfir Stykk­is­hólmi sendi flug­mað­ur­inn beiðni um að fá að lækka flugið úr 6.000 fetum niður í 5.000.

Stuttu síðar hvarf vélin af radar.

Rúmum klukku­tíma síðar heyrð­ist í neyð­arsendi úr vél­inni sem gaf til kynna að vélin væri í 640 metra hæð í Ljósu­fjöllum á Snæ­fells­nesi. Þegar við­bragðs­að­ilar komust loks að brak­inu blast við hræði­leg sjón. Flug­mað­ur­inn og þrír far­þegar hans voru látnir, þar á meðal unga dóttir hjón­anna. Auk hjón­anna var maður um þrí­tugt á lífi en voru þau illa slösuð. Svo fór að lokum að konan lést.

Flug­slysið í Ljósu­fjöllum er eitt mann­skæð­asta flug­slys Íslands­sög­unnar.

DV fjall­aði um málið á sínum tíma: 

Fimm fór­ust í flug­slys­inu á Snæ­fells­nesi:

Ísing og nið­ur­streymi orsök flug­slyss­ins? – þegar TF-ORM hrap­aði í Ljósu­fjöllum. Tveir menn komust lífs af

Talið er að mjög slæmt veður, ísing og nið­ur­streymi yfir Ljósu­fjöllum hafi orsakað flug­slysið á Snæ­fells­nesi á laug­ar­dag, þegar tveggja hreyfla Piper Aztec flug­vél, TF-ORM frá Flug­fé­lag­inu Ernir á Ísafirði, hrap­aði suður af Sól­eyj­ar­dal. Fimm fór­ust en tveir menn komust lífs af, mikið slas­aðir. Flug­vélin var í blind­flugi frá Ísafirði til Reykja­víkur. Síðast heyrð­ist til flug­vél­ar­innar kl. 13.19. Þá var hún yfir Stykk­is­hólmi. Margt bendir til að flug­mað­ur­inn hafi lent í erf­ið­leikum með flug­vél­ina vegna ísingar því að hann bað um leyfi til að lækka flugið úr 6.000 fetum niður í 5.000 fet. Stuttu seinna hvarf flug­vélin af radar flug­um­ferð­ar­stjórnar á Kefla­vík­ur­flug­velli og einnig út af frumradar. Þá var strax ljóst að óhapp hafði hent vél­ina. Flugvél Flug­mála­stjórnar var strax send vestur yfir Snæ­fells­nes og kl. 14.29 heyrð­ist í neyð­arsendi TF-ORM sem gaf til kynna að flug­vélin væri í 640 metra hæð í Ljósu­fjöllum.



Mikil ókyrrð og ísing var í lofti og sterkir svipti­vindar yfir Ljósu­fjöllum – nið­ur­streymi mikið. Mældist 50 hnúta vind­hraði í 4.000 feta hæð þannig að þar hafa verið um tíu vind­stig, en í það miklu nið­ur­streymi er ógjörn­ingur að fljúga flug­vél og þá sér­stak­lega sé ísing á henni. Talið er að flug­vélin hafi lent í nið­ur­streymi og steypst niður í hlíðar Ljósu­fjalla, suður af Sól­eyj­ar­dal. Þar er hæð fjalls­ins um 1.000 metrar. Brak flug­vél­ar­innar, sem var heil­legt, fannst í brattri snævi þak­inni hlíð, í 640 m hæð.

Nef flug­vél­ar­innar var mikið laskað og vængir hennar lausir frá þegar hún fannst, kl. 23.57 á laug­ar­dags­kvöldið, lið­lega níu klukku­stundum eftir að slysið varð. Það voru menn frá Flug­björg­un­ar­sveit­inni í Reykja­vík, sem fóru upp eftir Drauga­dal og yfir í Sól­eyj­ar­dal, sem komu fyrst að flug­vél­inni. Veður var mjög slæmt þar sem flug­vélin var, þoka og mik­ill vindur og snjór. Fljót­lega kom í ljós að þrír far­þegar flug­vél­ar­innar voru á lífi, en mikið slas­aðir. Þeir voru allir aft­ast í vél­inni, hjón og einn karl­maður. Ungt barn hjón­anna var látið.

Björg­un­ar­sveit­ar­menn­irnir komu slös­uðum fyrir í snjó­bíl og síðan var haldið niður í átt til Álfta­fjarðar. Þegar snjó­bíll­inn var kom­inn 2 km frá slys­stað, kl. 02.16, kom þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar til að ná í þá slös­uðu. Konan var þá látin. Þyrlan flutti menn­ina tvo til flug­vall­ar­ins í Stykk­is­hólmi þar sem tvær tveggja hreyfla flug­vélar frá Sverri Þór­odds­syni biðu. TF-GTO flutti hina slös­uðu til Reykja­víkur þar sem þeir voru lagðir inn á Borg­ar­spít­al­ann. Þar liggja menni­mir mikið slas­aðir og þungt haldnir. Þeir eru ekki taldir í lífs­hættu. Líkin fimm voru flutt niður í Álfta­fjörð með snjó­bílum og þau flutt til Stykk­is­hólms um nótt­ina. Komið var með líkin til Reykja­víkur í gær­kvöldi.

DV lýsti einnig björg­un­ara­frek­inu en aðstæð­urnar voru hreint ekki góðar enda veður afar slæmt:

Slæmt leita­veður:

„Strák­arnir urðu að skríða að flak­inu“ – sagði Amgrímur Her­manns­son hjá Flug­bjövg­un­ar­sveit­inni í Reykja­vík

Það voru sex mjög vanir fjall­göngu­menn frá Flug­björg­un­ar­sveit­inni í Reykja­vík og Friðrik Jónsson, hér­aðs­læknir í Stykk­is­hólmi, sem komu fyrstir að flaki TF-ORM í Ljósu­fjöllum. Þeir lögðu upp frá Örlygs­stöðum kl. 20.30 á laug­ar­dags­kvöldið og voru komnir að flak­inu kl. 23.57. Þeir fóru upp á nýjum ítölskum snjó­bíl sem er mjög bratt­gengur.

„Veðrið var slæmt og aðstæður ekki góðar. Stráka­mir og Friðrik þurftu að skríða upp bratt­ann að flak­inu og um leið að leið­beina snjó­bílnum,“ sagði Amgrímur Her­manns­son hjá Flug­björg­un­ar­sveit­inni í Reykja­vík.

„Þegar búið var að ná far­þeg­unum þremur, sem voru með lífs­marki í flug­vél­arflak­inu, út úr því var haldið niður. Þegar snjó­bíll­inn var kom­inn niður um tvo km frá slys­stað tókst þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar að læð­ast upp í sömu hæð og finna lend­ing­ar­stað. Þeir slös­uðu voru teknir um borð í þyrl­una og fluttir á flug­völl­inn í Stykk­is­hólmi þar sem tveggja hreyfla flug­vél, sem er fljót­ari í förum heldur en þyrlan, flutti þá til Reykja­víkur,“ sagði Arn­grímur.

Hann sagði einnig að leitin og björg­unin hefðu ekki getað gengið betur þegar í huga er haft slæmt veður og erfið færð.

„Björg­un­ar­menn frá Ber­serkjum í Stykk­is­hólmi, sem lögðu fyrstir afstað, gang­andi, áttu í erf­ið­leikum. Það vom 11-12 vind­stig í fjall­inu þegar þeir vom á ferð­inni. Þeir fuku um koll og urðu að hætta þegar þeir áttu stutt eftir að flak­inu,“ sagði Arn­grímur.

Þeir sem komust af:

Menn­irnir tveir sem komust af úr flug­slys­inu á Snæ­fells­nesi eru: Pálmar Gunn­ars­son, lög­reglu­maður á Ísafirði, og Kristján Guð­munds­son, sjó­maður frá Bol­ung­ar­vík.

Þeir sem fór­ust: 

Þeir sem fómst í flug­slys­inu á Snæ­fells­nesi voru:
• Sigurður Auð­uns­son hag­ræð­ing­ar­ráðu­nautur, 57 ára, Efra­hvoli, Mos­fell­sveit. Hann lætur eftir sig konu og þrjú upp­komin börn.
• Kristján Sig­urðs­son, bóndi að Ármúla við Ísa­fjarð­ar­djúp, 49 ára. Hann lætur eft­ir­sig konu og sex böm.
• Smári Ferdin­ands­son flug­maður, 35 ára, Hjalla­braut 35, Hafn­ar­firði.
Hann lætur eftir sig unn­ustu.
• Auður Alberts­dóttir, 28 ára, Ísa­fjarð­ar­vegi 4, Hnífsdal, og eins árs
dóttir hennar, Erla Björk Pálm­ars­dóttir. Auður lætur eftir sig fjög­urra ára
dóttur. Hún var kona Pálmars Gunn­ars­sonar lög­reglu­þjóns sem komst af
í flug­slys­inu.

Einungis þremur dögum eftir slysið tók Morg­un­blaðið við­tal við Pálmar Gunn­ars­son, sem lifði slysið af við illan leik en missti eig­in­konu sína og unga­barn í slys­inu. Olli við­talið miklu fjaðrafoki og fengu læknar á Borg­ar­spít­al­anum og Morg­un­blaðið tölu­verða gagn­rýni fyrir.

Flug­slysa­nefnd og Flug­mála­stjórn komust að þeirri nið­ur­stöðu í rann­sókn sinni á slys­inu að flug­vélin hafi lent í nið­ur­streymi sem varð til þess að hún hrap­aði í hlíðum Ljósa­fjalla. Aukreitis var nið­ur­staðan sú að hluti orsak­ar­innar hafi verið að flug­mað­ur­inn hafi ekki verið með full­nægj­andi veð­ur­fars­upp­lýs­ingar af svæð­inu.

Leiddi það af sér breyt­ingar á reglu­gerðum sem og verk­lagi til að auka flæði upp­færðra veð­ur­spáa á milli Veð­ur­stofu Íslands og flug­manna. Einnig leiddi það af sér end­ur­skoðun á aðgerð­ar­skrám flug­manna, bæk­lingum og fleiri fræð­andi efnum sem gefið var út af Flug­mála­stjórn auk þess sem það var notað við kennslu flug­manna.

Nið­ur­staða rann­sóknar Flug­slysa­nefndar og Flug­mála­stjórnar var að flug­vélin hafi lent í nið­ur­streymi sem leiddi til þess að hún hrap­aði í hlíðum Ljósu­fjalla. Hún komst einnig að þeirri nið­ur­stöðu að hluti orsak­ar­innar hafi verið flug­mað­ur­inn hafi verið með ófull­nægj­andi veð­ur­fars­upp­lýs­ingar af svæð­inu.[10] Það leiddi af sér breyt­ingar í reglu­gerðum og verk­lagi til að auka flæði upp­færðra veð­ur­spáa á milli flug­manna og Veð­ur­stofu Íslands. Það leiddi einnig af sér end­ur­skoðun á aðgerð­ar­skrám flug­manna, bæk­lingum og öðru fræð­andi efni sem gefið var út af Flug­mála­stjórn og notað við kennslu flug­manna.[6]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi