Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Stjórn Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda harmar þá stöðu sem upp er komin“

„Stjórn Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda harmar þá stöðu sem upp er komin“
Anton Máni Svav­ars­son.

„Stjórn SÍK harmar nið­ur­skurð í fjár­lögum og lýsir yfir von­brigðum með ummæli ráð­herra Yfir­lýs­ing SÍK vegna nið­ur­skurðar til kvik­mynda­sjóða,“ segir í til­kynn­ingu frá Sambandi íslenskra kvik­mynda­fram­leið­enda.

Þar segir einnig:

„Í fram­haldi af fjöl­miðlaum­fjöllun í vik­unni um nið­ur­skurð til kvik­mynda­sjóða í fjár­lögum vill stjórn Sambands íslenskra kvik­mynda­fram­leið­enda, SÍK, koma eft­ir­far­andi á fram­færi:

Stjórn Sambands íslenskra kvik­mynda­fram­leið­enda harmar þá stöðu sem upp er komin í kvik­mynda­iðn­aði, þar sem boð­aður er nið­ur­skurður í frum­varpi til fjár­laga 2023 sem gengur þvert gegn Kvik­mynda­stefnu stjórn­valda til árs­ins 2030. SÍK ásamt öðrum hag­að­ilum grein­ar­innar í sam­ráði við stjórn­völd hefur lagt mikla vinnu í gerð heild­stæðrar stefnu fyrir íslenska kvik­mynda­gerð sem ætlað er að styrkja íslenska menn­ingu, tungu og sam­fé­lag.“

Einnig er komið inná að „nið­ur­skurð­ur­inn sem boð­aður er til kvik­mynda­sjóða í frum­varpi til fjár­laga 2023 nemur 433 millj­ónum króna og mun hafa alvar­legar afleið­ingar fyrir fram­leiðslu verk­efna sem eru þýð­ing­ar­mikil í list­rænu og menn­ing­ar­legu sam­bandi.

Aðgerð­irnar ganga í ber­höggi við Kvik­mynda­stefnu til árs­ins 2030 þar sem lögð er áhersla á varð­veislu íslenskrar tungu, menn­ingu, sjálfs­mynd þjóð­ar­innar, efl­ingu íslensks atvinnu­lífs og sterkt orð­spor Íslands. Það er ljóst að sterkara sjóða­kerfi sem styður við fjöl­breytt íslensk kvik­mynda­verk og setn­ing nýs styrkja­flokks fyrir sjón­varps­þátt­ar­gerð er for­gangs­verk­efni innan Kvik­mynda­stefn­unnar enda til­greint sem fyrsta aðgerð í ann­ars metn­að­ar­fullri áætlun. Sá nið­ur­skurður sem boð­aður er mun þvert á móti hafa þær afleið­ingar í för með sér að færri kvik­mynda­verk verða fram­leidd og sér­stakur styrkja­flokkur vegna gerðar sjón­varps­þátta mun ekki líta dags­ins ljós.“

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Samsett mynd.

Í þessu sam­hengi lýsir SÍK einnig „yfir von­brigðum með ummæli menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra sem við­höfð voru í Bítinu á Bylgj­unni í morgun þar sem ráð­herra gaf til kynna að gagn­rýnin byggði á mis­skiln­ingi innan grein­ar­innar, um að við­bót­ar­fram­lög til kvik­mynda­sjóða hefðu komið til vegna fjár­fest­ing­ar­átaks í tengslum við heims­far­aldur Covid-19.

Hið rétta er að við­bót­ar­inn­spýt­ing í kvik­mynda­sjóði var ákveðin í tengslum við eft­ir­fylgni Kvik­mynda­stefn­unnar. Fyr­ir­sjá­an­leiki í stuðn­ings­um­hverfi kvik­mynda­iðn­aðar skiptir sköpum. Ákvarð­anir um fjár­fest­ingu í verk­efnum eru teknar á grund­velli opin­berra vil­yrða og áætl­ana.“

Að lokum er bent á að „um er að ræða veru­legar fjár­fest­ingar í hverju verk­efni en ferli kvik­mynda­verk­efna frá hug­mynd til sýn­ingar telur oft á tíðum í fjölda ára. Það skiptir því veru­legu máli að sam­ræmi sé í opin­berum yfir­lýs­ingum og stefnum og svo aðgerðum, til að mynda fjár­lögum.

Stjórn sam­bands íslenskra kvik­mynda­fram­leið­enda á nú í sam­tali við menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neytið og ráð­herra menn­ingar- og við­skipta vegna stöð­unnar sem upp er komin og von­ast til þess að stjórn­völd bregð­ist við ákalli grein­ar­innar og end­ur­skoði umræddan fjár­laga­lið.

SÍK væntir áfram­hald­andi upp­byggi­legs sam­tals við menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra um málið á næstu dögum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi