Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Hrafn var náttúruafl sem fékk fólk til að blómstra en svo gat flætt um eins og glóandi hraun“

„Hrafn var náttúruafl sem fékk fólk til að blómstra en svo gat flætt um eins og glóandi hraun“

„Hrafn var nátt­úru­afl, eins og þau sem þekktu til hans munu segja ykkur á næstu dögum. Gat bæði fengið fólk og félög til að blómstra. En gat svo flætt um eins og gló­andi hraun; ómót­aður kraftur sem ómögu­legt var að segja til um hvað yrði úr eða ætl­aði sér. Og það gat orðið ansi heitt og háska­leg nærri Hrafni. Og kalt í busk­anum fyrir þau sem elsk­uðu hann, þegar hann var skyndi­lega horf­inn burt til ann­arra verka,“ skrifar Gunnar Smári Egilsson for­maður Sós­í­alista­flokks Íslands, um félaga sinn Hrafn Jök­uls­son sem nú er lát­inn.

Gunnar Smári Egilsson

„Hrafn reynd­ist mér vel þegar eng­inn vildi ráða mig til nokk­urra verka seint á síð­ustu öld. Hann var þá rit­stjóri á Alþýðu­blað­inu og leyfði mér að skrifa þar greinar, meira að segja að hæð­ast að nýkjörnum for­seta í eins­konar fram­halds­sögu sem við köll­uðum Bessa­staða­bæk­urnar. Hann las líka yfir bók sem ég skrif­aði. Í raun skrif­aði ég bók­ina fyrir Hrafn, mætti með nýjan kafla í hverri viku eins og Hrafn þyrfti að senda hann í prentun þá um kvöldið.“

Gunnar Smári bætir því við að hann og Hrafn voru „samt ekki miklir mátar í sjálfu sér, höfðum unnið saman, þekktum hvorn annan og gátum skemmt okkur með sam­tali. En við vorum ekki það sem kalla má vini. Ég hafði orðið vél­ar­vana út á sjó, siglt í höfn hjá Hrafni og stungið mér í sam­band við orku­vél­ina sem hann var. Eins og svo margir gerðu. Síðustu sam­skipti okkar voru þegar hann var allt í einu mættur í pon­sjó inn á stofu­gólf og sagði sjö sögur í einu. Við náðum ekki öllu en Mosi hund­ur­inn okkar öllu. Mosi gapti af lotn­ingu á Hrafn og það var eins og hann vildi segja að ef hann væri maður þá væri hann akkúrat eins og Hrafn. Hrafn væri maður sem hafði sprengt af sér þessar hömlur sem gerðu menn svo þving­aða og herpta í augum hunda. Og þetta var gagn­kvæm ást og virð­ing. Hvar sem Hrafn hafði farið var fólk að reyna að hemja hann og dempa. Mosi stóð hins vegar með honum í einu og öllu. Mér fannst því að Mosi einn gæti fylgt Hrafni og passað, hann yrði að verða vernd­ar­eng­ill Hrafns í háska hans.“

Gunnar Smári segir frá því þegar hann, Mosi og Hrafn fóru í ferða­lag:

„Við keyrðum þrír norður yfir heiðar um kvöldið; ferð sem varð sögu­leg og end­aði í dramat­ískum hápunkti, en er svo flókin og djúp að ég hef ekki enn vit til að segja hana.“

Bætir við:

„Ég hitti Hrafn nokkrum sinnum eftir þetta. Hann sagði mér frá nauð­ung­ar­vistun og því ofbeldi sem fólk má þola inn á geð­deildum. Ég þekkti til þessa, hafði unnið á Kleppi sem ungur maður. Allt er þetta sorg­leg saga. Það væri hægt að kom­ast hjá miklu ofbeldi og kúgun ef fólk fengi oftar að vera eins og það er. Stundum er lækn­ingin verri en sjúk­dóm­ur­inn. Og hvaða máli skiptir þótt ein­hver sé ekki í jafn­vægi? Það er ekki eins og við hin séum alltaf í lagi. Stundum er það meira að segja hálf sturlað að þykj­ast vera í lagi í ver­öld þar sem sárs­auki og órétt­læti ólga undir yfir­borði sem helst slétt vegna daun­illar fitu­brákar sem liggur yfir öllu.

Ég sendi fólk­inu hans Hrafns sam­úð­ar­kveðjur. Þau eiga auð­vitað stór­kost­legar minn­ingar um þennan log­andi anda. Sem brann svo skyndi­lega upp og er horf­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi