Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ökumaður framvísaði fölsuðu skírteini – Reyndist aðeins 14 ára gamall

Ökumaður framvísaði fölsuðu skírteini – Reyndist aðeins 14 ára gamall
Lög­reglan að störfum. Mynd: Lára Garðarsdóttir

Tal­verður erill var í gær­kvöldi og í nótt hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­kvæmt dag­bók hennar.

Í mið­bænum barst til­kynn­ing um klukkan 19:00 um raf­hlaupa­hjólaslys. Vitni sá 66 ára gamlan mann detta á raf­hlaupa­hjól og á hús­vegg. Er mað­ur­inn tal­inn hafa misst með­vit­und við fallið en það blæddi úr nefi hans. Var hann fluttur með sjúkra­bif­reið til aðhlynn­ingar á Bráða­deild.

Þá slas­að­ist ungur maður á raf­hlaupa­hjóli í Hlíðunum í nótt. Hlaut hann áverka á auga­brún en sagð­ist lítið muna hvað gerð­ist. Var hann fluttur til aðhlynn­ingar á Bráða­deild. Er mað­ur­inn grun­aður um ölvun við akstur.

Í Hafn­ar­firði mætti maður inn á hótel og gerði sig lítið fyrir og stal yfir­höfn og far­síma af starfs­manni en í yfir­höfn­inni voru bíllyklar hans. Náðist þjófn­að­ur­inn á örygg­is­mynda­vélum.

Aukreitis fund­ust fíkni­efni á leik­velli í Hafn­ar­firði. Veg­far­andi afhenti lög­reglu nest­is­box með ætl­uðum fíkni­efnum sem fannst á leik­velli. Talið er að boxið til­heyri ung­mennum sem venja komur sínar þangað. Lög­reglan lagði hald á efnin.

Í Garðabæ var öku­níð­ingur stopp­aður eftir að hafa mælst á 146 km/klst á Reykja­nes­braut þar sem má keyra á 80 km/klst.

Þótt ótrú­legt sé var nagla­dekkj­a­níð­ingur stopp­aður í Kópavogi í gær en hann var á tveimur nagla­dekkjum og var hann kærður fyrir óheim­ila notkun á nagla­dekkjum.

Í Breið­holti var ekið á 11 ára dreng á raf­hlaupa­hjóli. Kvartaði hann um verki í fæti og baki og var fluttur með sjúkra­bíl til aðhlynn­ingar á Bráða­deild en sem betur fer var móðir hans á vett­vangi.

Þá var bif­reið stöðvuð í Kópavogi í gær­kvöldi en öku­mað­ur­inn fram­vís­aði fölsuðu öku­skír­teini. Reyndist hann ekki hafa öðl­ast öku­rétt­indi enda aðeins 14. ára gam­all. Samband var haft við for­eldra drengs­ins og unnið með þeim í mál­inu.

Í Hóla­hverfi í Breið­holti var maður hand­tek­inn grun­aður um að hafa ráð­ist á starfs­mann Pizzastaðar. Var hann hand­tek­inn og vistaður í fanga­geymslu fyrir rann­sókn máls­ins. Ekki er vitað um áverka hjá árása­þola.

Í Graf­ar­vogi var 17 ára öku­maður stöðv­aður en hann var grun­aður um akstur undir áhrifum fíkni­efna sem og vörslu fíkni­efna. Málið er nú unnið með aðkomu móður drengs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi