Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Játningar læknis að Laugalandi: „Hitti grátandi unga stúlku sem hafði áverka á enni“

Játningar læknis að Laugalandi: „Hitti grátandi unga stúlku sem hafði áverka á enni“

Læknir sem um tíma starf­aði við með­ferð­ar­heim­ilið að Lauga­landi seg­ist í dag skamm­ast sín fyrir að hafa ekki tekið sjálf­stæða ákvörðun um að hjálpa stúlk­unum sem þar dvöldu. Lækn­ir­inn vill ekki láta nafn síns getið og full­yrðir hann að lög­reglan hafi sagt sér að ekki ætti að trúa frá­sögnum stúlkn­anna frá heim­il­inu.

Nærri 90 pró­sent þeirra ung­lings­stúlkna sem vistaðar voru að með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, áður Varp­holti, upp­lifðu ofbeldi af hálfu Ingjalds Arn­þórs­sonar for­stöðu­manns. Yfir­gnæf­andi meiri­hluti stúlkn­anna, nánar til­tekið 88 pró­sent þeirra eða 30 stúlkur af 34, upp­lifði and­legt ofbeldi af hans hálfu og um helm­ingur þeirra ýmist varð fyrir eða varð vitni að lík­am­legu ofbeldi á með­ferð­ar­heim­il­inu.

Lækn­ir­inn stað­festir að hann hafi þurft að sinna útköllum þar sem sjá mátti lík­am­lega áverka á stúlk­unum að Lauga­landi. Hann nefnir dæmi því til stuðn­ings:

„Ég var á lauga­dals­kvöldi kall­aður þangað af lög­reglu eftir að stúlka þar hafði slasast. Ég keyrði þangað og hitti grát­andi unga stúlku sem hafði áverka á enni, ekki lífs­hættu­lega, en sem sagði mér að henni hefði verið hrint niður stiga,“ segir lækn­ir­inn og heldur áfram:

„Lög­reglan hafði hringt í mig þegar ég var á leið­inni og sagt að stúlk­urnar á þessu heim­ili væru þannig að ég ætti ekki að trúa þeim. Ég skamm­ast mín fyrir að hafa ekki tekið sjálf­stæða ákvörðun. Ég trúði henni ekki og lét málið kyrrt liggja. Hún nefndi Ingjald sér­stak­lega á nafn sem ger­anda.“

Loksins hlustað

Líkt og Mannlíf greindi frá í jan­úar í fyrra tók tugur kvenna, sem dvaldi á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, höndum saman og fór fram á að farið yrði ofan í saumana á starf­semi heim­il­is­ins. Þær lýstu erf­iðri og sárs­auka­fullri dvöl og töldu að frá­sögnum þeirra hafi verið sópað undir teppi af hálfu barna­vernd­ar­yf­ir­valda.

Loksins varar hlustað á stúlk­urnar. Ásmundur Daði Ein­ars­son ráð­herra fól Gæða- og eft­ir­lits­stofnun vel­ferð­ar­mála (GEV) „að kanna hvort og þá í hvaða mæli börn, sem vistuð voru á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti/Lauga­landi á árunum 1997 til 2007, hafi sætt illri með­ferð, and­legu eða lík­am­legu ofbeldi meðan á dvöl þeirra stóð“. Nefnd, skipuð fjórum sér­fræð­ingum með þekk­ingu á rann­sóknum, barna­vernd og áföllum vann að úttekt­inni og skil­aði á dög­unum kol­svartri skýrslu um með­ferð­ar­starfið að Lauga­landi.

Kolsvört skýrsla

Í skýrsl­unni kemur fram að mik­ill meiri­hluti fyrrum vist­barna seg­ist hafa upp­lifað and­legt ofbeldi, einu sinni eða oftar á með­ferð­ar­tím­anum, eða 30 af 34 ein­stak­lingum. Voru þessar frá­sagnir oft­ast af ótta­stjórnun, harð­ræði eða nið­ur­broti, aðal­lega af hendi for­stöðu­manns en einnig for­stöðu­konu. Margir við­mæl­endur sögðu frá fleiri atvikum en einu. Samtals 27 úr við­mæl­enda­hópnum greindu frá atvikum sem fela í sér ein­hvers konar ótta­stjórnun eða harð­ræði af hendi for­stöðu­að­ila.

Alls 20 vist­börn af 34 töl­uðu um mót­tök­urnar þegar þau komu fyrst á Lauga­land og 12 lýstu nei­kvæðri upp­lifun. Alls 14 vist­börn af 34 sögð­ust hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Í frá­sögnum 12 þeirra er for­stöðu­mað­ur­inn til­greindur ger­andi, en tvær stúlkur til­greina for­stöðu­kon­una. Til við­bótar sögð­ust 11 hafa orðið vitni að því að lík­am­legu ofbeldi hafi verið beitt af hálfu for­stöðu­manns.

Alls 10 vist­börn af 34 kvört­uðu yfir að sím­töl hafi verið hleruð, sem hafi gert það að verkum að þau hafi ekki geta talað eins frjáls­lega og þau hefðu viljað. Alls 13 vist­börn af 34 töl­uðu um að hafa upp­lifað reglur um fatnað og eigur á nei­kvæðan hátt og jafn­framt að hafa ekki mátt hlusta á þá tón­list sem þau vildu. Þá hafi verið gerðar athuga­semdir við útlit þeirra og ein stúlka lýsir því að hafa þurft að láta klippa og aflita á sér hárið gegn vilja sínum.

Alls 9 vist­börn af 34 sögð­ust hafa reynt að kvarta á ein­hverjum tíma­punkti við
barna­vernd­ar­starfs­mann eða Barna­vernd­ar­stofu og upp­lifðu að það hefði engu breytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi