Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórður ritstjóri um Pál skipstjóra: „Ekk­ert liggur fyrir um að eitrað hafi verið fyrir mann­in­um“

Þórður ritstjóri um Pál skipstjóra: „Ekk­ert liggur fyrir um að eitrað hafi verið fyrir mann­in­um“
Páll Stein­gríms eins og hann birt­ist les­endum við harð­línupistla fyrir skömmu

Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, segir að engin fyr­ir­liggj­andi gögn né hand­fastar vís­bend­ingar séu uppi fyrir því að reynt hafi verið að eitra fyrir Páli Stein­gríms­syni, skip­stjóra Samherja. Rit­stjór­inn sætir lög­reglu­rann­sókn, ásamt þremur öðrum blaða­mönnuum, fyrir að hafa framið staf­rænt kyn­ferð­is­brot gegn skip­stjór­anum.

Páll hefur full­yrt að eitrað hafi verið fyrir honum og far­síma hans síðan stolið. Gögn úr hinum stolna far­síma hafi síðan verið dreift til fjöl­miðla­manna og verið notuð sem grunnur í frétta­flutn­ingi. Þórður segir gögn máls­ins hins vegar sýna það svart á hvítu að ekk­ert liggi fyrir um að eitrað hafi verið fyrir Páli.

Það kemur fram í ítar­legri skýr­ing­ar­grein Þórðar sem hann birtir á eigin miðli. Við skulum gefa Þórði Snæ orðið:

„Páll Stein­gríms­son hefur haldið því fram að fyrir honum hafi verið eitrað með þeim afleið­ingum að hann hafi misst með­vit­und og verið fluttur á sjúkra­hús í Reykja­vík með sjúkra­flugi. Farið hefur verið með þessa stað­hæf­ingu sem stað­reynd víða í þjóð­mála­um­ræð­unni síð­ustu mán­uði, eða allt frá því að mbl.is birti mynd af Páli í sjúkra­rúmi 25. maí 2021.

Við skýrslu­töku sagði Páll að hann teldi að honum hefði verið byrlað svefn­lyf­inu Imovane. Páll hélt því fram að lyf­inu hafi verið blandað í bjór sem honum var færð­ur. Hann sagð­ist auk þess þekkja lyfið vel þar sem „hann var vanur að nota það tengt vinn­u.“

Gögn máls­ins sýna sann­ar­lega að Páll veikt­ist snemma í maí í fyrra og að hann hafi verið í krítísku ásig­komu­lagi. Þau sýna að hann hafi verið fluttur til Reykja­víkur frá Akur­eyri vegna ástands síns. En þau sýna líka svart á hvítu að ekk­ert liggur fyrir um að eitrað hafi verið fyrir mann­in­um. Í þeim eru hins ýmsar aðrar mögu­legar ástæður fyrir ástandi hans viðr­aðar af mun meiri alvöru.

Þess­ari nið­ur­stöðu var skilað inn til lög­reglu 15. sept­em­ber 2021, að sögn Þórðar.

Í fyrsta lagi liggur ekki fyrir játn­ing þess aðila sem hann sakar um að hafa byrlað sér. Þvert á móti neitar sá aðili því stað­fast­lega, tví­veg­is, við skýrslu­töku að hafa eitrað fyrir Páli. Í öðru lagi liggja fyrir sjúkra­skýrsl­ur, bæði frá Akur­eyri og Reykja­vík, þar sem skýrt kemur fram að ekk­ert bendi til þess að eitrað hafi verið fyrir hon­um. 

Á sjúkra­hús­inu á Akur­eyri, þann 4. maí 2021, voru fram­kvæmdar fjöl­margar rann­sóknir á Páli en engin ástæða fannst fyrir með­vit­und­ar­skerð­ingu hans. Svo­kallað tox-screen fyrir eit­ur­efnum var nei­kvætt. Það fannst ekk­ert í blóði hans. Í grein­ar­gerð til lög­reglu stend­ur: „Við fundum ekki neinar prufur sem bentu til eitr­un­ar.“ Páll brást heldur ekki við því þegar honum voru gefin mótefni fyrir mor­fín- eða róandi lyfjum á borð við Imovane.

Í rétt­ar­fræði­legri mats­gerð rétt­ar­meina­fræð­ings, sem lög­reglan á Norð­ur­landi eystra keypti fyrir 113.570 krón­ur, kemur fram að hægt sé að gera eit­ur­efna­mæl­ingu á höf­uð­hári. Það krefst þess að minnst 4-6 vikur séu liðnar frá atburð­inum áður en hár­sýni er tekið og að við­kom­andi hafi ekki farið í lit­un/aflitun á hári né meiri­háttar klipp­ingu. Í mats­gerð­inni seg­ir: „Í þessu til­viki upp­lýsti lög­reglan að mað­ur­inn, sem var mjög þunn­hærð­ur, hafði farið a.m.k. 3 sinnum í klipp­ingu og var mjög stutt­klippt­ur. Lög­reglan mat það svo að það væri mjög lang­sótt að hægt væri að fá not­hæft sýni frá mann­in­um, og var fallið frá því að láta á það reyna.“

Nið­ur­staða rétt­ar­mein­ar­fræð­ings­ins er skýr: „Ekki er hægt að kom­ast að frek­ari nið­ur­stöðu hvað olli ástandi manns­ins að svo stöddu. Í fyr­ir­liggj­andi gögnum fund­ust engar hand­fastar vís­bend­ingar um að reynt hafi verið að eitra fyrir hon­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi