Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Formaður Blaðamannafélagsins: „Bjarni Benediktsson reiðir enn til höggs gegn blaðamönnum“

Formaður Blaðamannafélagsins: „Bjarni Benediktsson reiðir enn til höggs gegn blaðamönnum“

Sigríður Dögg Auðns­dóttir, for­maður BÍ, er ekki sátt við Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra. og segir:

„Bjarni Bene­dikts­son reiðir enn til höggs gegn blaða­mönnum í færslu á Facebook-síðu sinni í gær. Hann víkur meðal ann­ars að ályktun sem Blaða­manna­fé­lag Íslands og Félag frétta­manna stóðu saman að í febr­úar í tengslum við ákvörðun lög­regl­unnar á Norð­ur­landi Eystra að kalla fjóra blaða­menn til yfir­heyrslu vegna skrifa um skæru­liða­deild Samherja.“

Hún segir að „til­efni skrifa Bjarna að þessu sinni er grein Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans og eins fjór­menn­ing­anna, sem birt­ist í gær. Mér þykir miður að þurfa að standa í rit­deilum við for­mann stærsta stjórn­mála­flokks lands­ins, en lít á það sem skyldu mína að standa vörð um rétt blaða­manna til þess að vinna vinnu sína í þágu almenn­ings, en ekki síður að leið­rétta alvar­legar rang­færslur í full­yrð­ingum Bjarna.“

Sigríður Dögg nefnir að „í fyrr­nefndri færslu segir Bjarni að ályktun blaða­manna og frétta­manna hafi verið byggð á get­gátum og röngum for­sendum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bjarni heldur því rang­lega fram að gagn­rýni Blaða­manna­fé­lags­ins á ákvörðun lög­reglu að kalla fjóra blaða­menn til yfir­heyrslu sé byggð á röngum for­sendum. Í Facebook-færslu hans frá því í febr­úar lætur hann að því liggja að önnur ástæða hafi verið fyrir yfir­heyrsl­unum en að blaða­menn­irnir hafi nýtt gögn til að skrifa fréttir – líkt og blaða­menn hafi haft „get­gátur“ um.

„Þeir segja okkur að þeim sé gefið að sök að hafa nýtt gögn til að skrifa fréttir. En hvað vita þeir svo sem um það á þessu stigi máls?“ spurði Bjarni.

Það sem blaða­menn vissu á því stigi máls var byggt á upp­lýs­ingum frá lög­reglu og stað­fest í yfir­heyrslum yfir fjór­menn­ing­unum, líkt og fram kemur í grein Þórðar Snæs í gær, sem og grein Aðal­steins Kjart­ans­sonar, blaða­manns á Stund­inni og vara­for­manns Blaða­manna­fé­lags Íslands, sem hann birti einnig í gær. Þeir lýsa því báðir að yfir­heyrsla lög­reglu hafi ein­vörð­ungu snú­ist um að afla upp­lýs­inga um heim­ild­ar­menn, umfjöll­un­ar­efni frétt­anna, og frétta­mat blaða­mann­anna og þeirra rit­stjórna sem þeir starfa á. Með öðrum orðum: Þeir voru – þótt Bjarni neiti að trúa því – færðir til yfir­heyrslu fyrir það eitt að vinna vinn­una sína.“

Og það er að mati Sigríðar Daggar „einmitt kjarni þess sem Blaða­manna­fé­lagið hefur gagn­rýnt. Í milli­tíð­inni hafa fjöl­miðlar einnig bent á – og Þórður fjallar um það í grein sinni, sem er til­efni skrifa Bjarna – að sak­sókn­ari í mál­inu segir í grein­ar­gerð sinni „mik­il­vægt að lög­regla rann­saki mál þar sem reyni á þessi mörk [frið­helgi einka­lífs­ins og tján­ing­ar­frels­is­ins] þannig að dóm­stólum verði gert fært að fjalla efn­is­lega um þessi mörk”.

En kannski er skilj­an­legt að Bjarni neiti að trúa því að ástæða yfir­heyrsl­anna sé raun­veru­lega þessi: að blaða­menn­irnir hafi stöðu sak­born­inga fyrir það eitt að hafa unnið vinn­una sína. Því auð­vitað er það frá­leitt. Slíkt þekk­ist ekki í þeim lýð­ræð­is­ríkjum sem við viljum bera okkur saman við, þar sem litið er á vernd heim­ild­ar­manna sem horn­stein fjöl­miðla­frelsis, og þar með lýð­ræð­is­ins.“

Hún bætir við:

„Við höfum inn­leitt slíka vernd í lög hér, þar sem blaða­mönnum er bein­línis bannað með lögum að veita upp­lýs­ingar um heim­ild­ar­menn. Engu að síður hefur lög­reglan á Norð­ur­landi eystra kallað blaða­menn til yfir­heyrslu til þess að reyna að fá þá til að brjóta þessi grund­vall­ar­lög fjöl­miðla- og tján­ing­ar­frels­is­ins. Því eins og Þórður segir frá í grein sinni hefur Blaða­manna­fé­lag Íslands nú fengið í hendur öll þau gögn sem lög­reglan hefur afhent sak­born­ingum í þessu máli þessu máli. Og þau sýna svart á hvítu, líkt og sak­born­ingar hafa margoft sjálfir haldið fram, að meg­in­á­stæður yfir­heyrslna yfir Þórði Snæ eru þessar:

„Opin­ber­lega skýrt frá einka­mál­efnum án þess að ástæður séu fyrir hendi“ (228. grein hegn­ing­ar­laga), og einnig: „Brot gegn frið­helgi einka­lífs ann­ars með því að hnýs­ast í, útbúa, afla afrita…“ (229. grein hegn­ing­ar­laga).

Þetta eru nákvæm­lega sömu greinar og vísað var til í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu fag­fé­laga blaða­manna. Bjarni hefði ef til vill gagn af því að lesa þá yfir­lýs­ingu aftur, því í henni er farið vand­lega yfir ástæður þess að það er áhyggju­efni í lýð­ræð­is­ríki að lög­regla kalli blaða­menn til yfir­heyrslu vegna meintra brota á þessum greinum, einkum þar sem Alþingi hefur bætt við lögin sér­stökum ákvæðum til að tryggja refsi­leysi blaða­manna þar sem almanna­hags­munir eru taldir brýnir. Þetta veit Bjarni að sjálf­sögðu, og dóm­stólar hafa fellt marga dóma um þetta – íslenskir sem alþjóð­legir. Sjálf þekki ég þessi ákvæði vel, þar sem ég átti hlut í einu þess­ara mála, þar sem unnar voru fréttir upp úr per­sónu­legum tölvu­póstum milli ein­stak­linga, sem haldið var fram að hafi verið fengnir með ólög­mætum hætti úr einka­tölvu eins þeirra – tölvu­pósta­mál­inu svo­kall­aða.“

Hún bendir á að „málið varð­aði þessar sömu tvær greinar hegn­ing­ar­lag­anna (þeim hefur lít­il­lega verið breytt síðan) og fór fyrir bæði dóm­stig hér á landi og að lokum til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Alls staðar var nið­ur­staðan sú sama: að taka skuli mið af meg­in­reglum varð­andi frelsi fjöl­miðla til þess að miðla upp­lýs­ingum um mál sem erindi eiga til almenn­ings og rétt almenn­ings til aðgangs að slíkum upp­lýs­ingum.

Þetta er málið í hnot­skurn: Réttur almenn­ings til aðgangs að upp­lýs­ingum og frelsi fjöl­miðla til þess að miðla þeim.“

Sigríður Dögg bendir á að „Alþingi hefur meira að segja hnykkt á refsi­leysi blaða­manna eftir að dómur féll í tölvu­pósta­mál­inu með því að bæta ákvæð­unum við þessar tvær laga­greinar. Það sem Bjarni virð­ist einnig neita að skilja er að hér er ekki um að ræða mál sem ástæða er til að gera blaða­menn að sak­born­ingum í og kalla þá til yfir­heyrslu. Telji ein­hver á sér brotið í þeim fréttum sem til rann­sóknar eru hjá lög­reglu, er sjálf­sagt að dóm­stólar skeri úr um lög­mæti þess að birta frétt­irnar. Þær voru byggðar á upp­lýs­ingum sem sann­ar­lega voru einka­gögn, líkt og blaða­menn­irnir hafa margoft skýrt frá. Sjálf­sagt er að dóm­stólar skeri úr um hvort almenn­ingur hafi átt rétt á þeim upp­lýs­ingum sem þar komu fram og hvort hags­munir almenn­ings af því að fá þær upp­lýs­ingar vegi þyngra en hags­munir þeirra ein­stak­linga sem fjallað var um í frétt­unum. Til þess að skera úr um það er ein­fald­lega hægt að meta frétt­irnar sjálfar – og óþarfi – og bein­línis skað­legt, líkt og Evr­ópu­ráðið hefur meðal ann­ars bent á – að kalla blaða­menn til yfir­heyrslu, hvað þá að veita þeim stöðu sak­born­ings fyrir að vinna vinn­una sína – sem er að gæta hags­muna almenn­ings og veita stjórn­mála­mönnum og stór­fyr­ir­tækjum aðhald.“

Segir að lokum:

„Stjórn­mála­leið­togar í lýð­ræð­is­ríkjum hafa á und­an­förnum mán­uðum verið óþyrmi­lega minntir á nauð­syn frjálsrar, fag­legrar blaða­mennsku, á meðan valda­menn í þeim ríkjum sem hneigj­ast til ólýð­ræð­is­legra stjórn­ar­hátta leggja stein í götu frjálsra fjöl­miðla, tak­marka athafna­frelsi þeirra og ofsækja blaða­menn, meðal ann­ars með hjálp lög­reglu. Íslenskir stjórn­mála­menn standa ekki fyrir utan þessi átök. Ég vona að þeir beri gæfu til að standa með blaða­mönnum þjóð­ar­innar í bar­átt­unni fyrir fjöl­miðla­frelsi, tján­ing­ar­frelsi og lýð­ræði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi