Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Allt um hryðjuverkamálið – „Trumpistar. Illa upplýstir bjánar“

Allt um hryðjuverkamálið – „Trumpistar. Illa upplýstir bjánar“

Fjórir íslenskir karl­menn á þrí­tugs­aldri voru hand­teknir í gær. Þeir eru grun­aðir um að hafa ætlað að fremja hryðju­verk á Íslandi, mögu­lega gegn Alþingi. Menn­irnir eru taldir hafa haft tengsl við hægri öfga­hópa á hinum Norð­ur­lönd­unum.

Lögregla boð­aði til blaða­manna­fundar í gær vegna máls­ins en rann­sóknin er sögð á frum­stigum. Lagt var hald á fjölda skot­vopna, síma og tölva, sem nú verður rann­sak­aður. Tveir voru úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald vegna máls­ins, annar í viku og hinn í tvær vikur.

Erlendir fjöl­miðlar á borð við CNN og The Guardian hafa fjallað um aðgerðir lög­reglu hér á landi í vik­unni.

Ef marka má Morg­un­blaðið er talið að hugs­an­legar árásir mann­anna hafi verið yfir­vof­andi á næstu dögum. Svo lítið bar á var gæsla hert við Alþing­is­húsið og höfðu menn­irnir einnig sér­stakan áhuga á árs­há­tíð lög­reglu­manna sem haldin verður í næstu viku.

Rit­höf­und­ur­inn Illugi Jök­uls­son vill að lög­reglan gefi taf­ar­laust frek­ari upp­lýs­ingar um hryðju­verka­málið. „Lög­reglan þarf að gefa umsvifa­laust frek­ari upp­lýs­ingar um þá hand­teknu og hvað vitað er um þá. Hún þarf ekki að kjafta öllu – ef ein­hverja rann­sókn­ar­hags­muni þarf enn að vernda – en þögn og pukur um svo ógn­væn­legar fréttir ganga ekki,“ segir Illugi ákveð­inn.

Og Sam­fé­lags­rýn­ir­inn úr Grinda­vík, Björn Birg­is­son, tjáir sig um málið á vegg sínum á Facebook. Honum virð­ist nokkuð heitt í hamsi:

„Trump­istar. Hægri sinn­aðir öfga­menn – er það fyrsta sem manni dettur í hug. Svipaðir skrílnum sem réð­ist á banda­ríska þing­húsið. Illa upp­lýstir bjánar,“ segir Björn.Í sam­tali við Frétta­blaðið segir Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra að til skoð­unar sé aukin vopna­burður lög­regl­unnar. „Staða skipu­lagðrar glæp­a­starf­semi er alvar­legri en fólk gerir sér grein fyrir,“ segir Jón.

Hér fyrir neðan eru molar um það sem vitað er í hryðju­verka­mál­inu:

  • Fjór­ir ís­lensk­ir karl­menn á þrí­tugs­aldri voru hand­tekn­ir af sér­sveit­inni í gær í um­fangs­mikl­um aðgerðum í Holta­smára í Kópa­vogi og á iðn­að­ar­svæði í Mos­fells­bæ.
  • Menn­irn­ir eru grun­aðir um að und­ir­búa hryðju­verk og ann­ars veg­ar inn­flutn­ing skot­vopna, íhluta í skot­vopn og skot­færa og hins veg­ar fram­leiðslu skot­vopna.
  • Menn­irn­ir eru grun­aðir um að hafa fram­leitt íhluti í vopn með þrí­vídd­ar­prent­ara.
  • Tveir þeirra, báðir 28 ára gamlir, hafa verið úr­sk­urð­aðir í gæslu­v­arð­hald, ann­ar í viku, hinn í tvær vik­ur.
  • Hús­leit hef­ur verið fram­kvæmd á níu stöðum.
  • Lög­regla hef­ur lagt hald á tugi skot­vopna, þar á meðal hálf­sjálf­virk­ar byss­ur, ásamt þús­und­um skot­færa.
  • Brot­in varða grein hegn­ing­ar­laga þar sem kveðið er á um að fyrir hryðju­verk skuli refsa með allt að ævi­löngu fang­elsi. Fyrir að hót­a að fremja slík brot fæst sama refs­ins.
  • Þjóðarör­ygg­is­ráð var upp­lýst um aðgerðir lög­reglu um það leyti sem þær hóf­ust í gær.
  • Lög­regl­an hef­ur einnig lagt hald á tölv­ur og síma.
  • Lög­regla tel­ur sig vera með stærsta hluta vopn­anna í sinni vörslu.
  • Allt að 50 lög­reglu­menn voru að störf­um vegna máls­ins.
  • Lög­regl­an úti­lokar ekki að fleiri ein­stak­ling­ar teng­ist mál­inu.
  • Lík­lega í fyrsta skipti sem lög­regl­an á Íslandi hef­ur rann­sakað und­ir­bún­ing að hryðju­verk­um.
  • Rann­sókn á al­var­legu vopna­laga­broti var upp­hafið að mál­inu.
  • Við rann­sókn lög­reglu komu fram upp­lýs­ing­ar sem leiddu til gruns um að í und­ir­bún­ingi væru árás­ir gegn borg­ur­um rík­is­ins og stofn­un­um þess.
  • Ætla má að árás­ar­menn­irn­ir hafi beint sjón­um sín­um að Alþingi eða lög­reglu.
  • Lög­regl­an á Íslandi er í sam­tali við er­lend lög­gæslu­yf­ir­völd en verið er að skoða hvort að ein­stak­ling­arn­ir teng­ist er­lend­um öfga­sam­tök­um.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi