Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Orðspor Íslands í Namibíu í rjúkandi rúst

Orðspor Íslands í Namibíu í rjúkandi rúst

Þró­un­ar­sam­vinnu­stofnun Íslands eða ÞSSÍ starf­aði frá 1981 til 2015 þegar hún var lögð niður og verk­efni hennar sett undir Utan­rík­is­ráðu­neytið. Meðal verk­efna sem stofn­unin stóð fyrir var þró­un­ar­starf í Namibíu. Auk þess að útvega mann­skap til haf­rann­sókna átti stofn­unin þátt í að koma sjó­manna­skóla á lagg­irnar í afr­íku­rík­inu en hóf hann starf­semi árið 1994. Í skýrslu sem gerð var fyrir Utan­rík­is­ráðu­neytið segir að skól­inn starfi þar enn og vegni vel. Fyrr­ver­andi kenn­ari við skól­ann er á öðru máli. 

Árið 2014 kom út skýrsla um þró­un­ar­sam­vinnu Íslands sem gerð var fyrir Utan­rík­is­ráðu­neytið. Þar var farið yfir þá þró­un­ar­sam­vinnu sem Ísland hefur stundað und­an­farna ára­tugi í hinum ýmsu löndum. Varðandi slíka sam­vinnu í Namibíu segir orð­rétt í skýrsl­unni: Nýút­komin úttekt á sam­vinnu ÞSSÍ við stjórn­völd í Namibíu 1990 – 2010 sýnir fram á merki­legan árangur. Í henni kemur fram hvernig íslensk aðstoð í fiski­geir­anum, sem átti sér stað á 20 ára tíma­bili, átti ríkan þátt í að byggja upp fisk­iðnað í land­inu sem nú stendur undir 4% af þjóð­ar­fram­leiðslu og 9% á tíma­bili á árum áður. Þessi árangur er í úttekt­inni kall­aður „raun­veru­legt iðn­væð­ing­ar­krafta­verk. „Í landi þar sem voru engar atvinnu­veiðar á fiski og almenn­ingur var ekki vanur sjó og fisk­veiðar voru nýstár­legar þá er þetta ekki lít­ill árangur,” segir í skýrsl­unni. „Á mjög skömmum tíma varð sjáv­ar­út­vegur í Namibíu ein af kjarna­iðn­greinum í land­inu, lagði til tölu­verðan hluta af þjóð­ar­tekjum og veitti fjölda fólks ný atvinnu­tæki­færi.”  

Þá er einnig minnst á ágóða íslenskra fyr­ir­tækja á þró­un­ar­sam­vinn­unni í Namibíu í skýrsl­unni: Íslensk fyr­ir­tæki hafa að ein­hverju marki tekið þátt í – og notið góðs af – íslenskri þró­un­ar­sam­vinnu frá fyrstu tíð. Þannig ruddi stuðn­ingur á vegum ÞSSÍ við sjáv­ar­út­veg í Namibíu braut­ina fyrir íslensk fyr­ir­tæki á því sviði. Eftir tíu ára starf­semi ÞSSÍ í land­inu, um alda­mótin, bjuggu þar milli 60 og 70 Íslend­ingar á vegum ýmissa aðila.

Stefnulaust þróunarstarf

Sigurður Jónsson var kenn­ari í Sjó­manna­skóla Namibíu og hefur allt aðra sögu að segja en fram kemur í téðri skýrslu.

Namibian Maritime and Fis­heries Institute

„Þetta var svona laus­beislað þró­un­ar­starf til að byrja með, án stefnu,“ sagði Sigurður Jónsson í sam­tali við Mannlíf en hann kenndi í skól­anum á sínum tíma. Hann hélt áfram: „Það var engin stefna og hinir og þessir fengnir til að kenna á veið­ar­færi og hinir og þessir fengnir til að gera hitt og þetta. En svo er ráð­inn af skól­anum Víðir Sig­urðs­son og hann er feng­inn til þess að taka þetta svo­lítið fast­ari tökum. Og hann fær mig með sér og fyrir voru þar menn frá Noregi og Alfreð Steinar Rafnsson, kenn­ari við skól­ann. Og þá var hug­myndin að gera þetta að almenni­legum skóla. Og það hóf Víðir að gera, má segja.“

Sagði Sigurður að Víðir hafi hins vegar aldrei fengið þau tök sem voru nauð­syn­leg og að „kerfi“ Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­un­ar­innar hafi ætíð verið við­loð­andi skól­ann. „Síðan er sendur maður þarna niður eftir sem að fór yfir rekst­ur­inn á þessu og það kemur í ljós að rekst­ur­inn er ekki til fyr­ir­myndar. Og þetta bland­að­ist allt saman sko, Namib­íu­menn sem vildu hafa putt­ana í þessu því það komu inn í þetta pen­ingar, bæði frá Íslandi og Noregi og seinna Spáni og þar sem eru pen­ingar saman komnir á einn stað, þyrp­ast saman menn sem vilja kom­ast í þá. Og upp frá því var farið að tala um ýmsa hluti, eins og það að það þyrfti að leggja niður mikla meira lang­tímaplan og Íslend­ing­arnir þyrftu að vera óháðir ein­hverjum póli­tískum duttl­ungum. En póli­tískir duttl­ungar urðu ofan á.“

Sigurður sagði að fyrir vikið hefði skól­inn aldrei orðið neitt. Sagði hann enn­fremur að skýrsla um skól­ann sem gerð var eftir heim­sókn starfs­manns Þró­unn­ar­sam­vinnu­stofn­un­ar­innar, hafi verið starfs­mönnum hans mjög mikil von­brigði því það virt­ist sem skýrslan hafi verið gerð fyrir þá sem pönt­uðu hana. „Sig­hvatur Björg­vins­son var fram­kvæmd­ar­stjóri stofn­un­ar­innar og Björn Ingi Hrafns­son var stjórn­ar­for­maður. Þannig að þetta var mjög póli­tískt,“ sagði Sigurður og hélt áfram: „Og póli­tíkin gat aldrei séð það að til þess að skilja vel við þennan skóla, hefðum við þurft að hafa eitt­hvað lang­tíma mark­mið og standa við það.“ Aðspurður hvort hann teldi að skýrslu­höf­undi hafi verið ætlað að skila ákveð­inni nið­ur­stöðu um skól­ann svar­aði Sigurður: „Ja sko, ég man eftir einni spurn­ingu sem var svona; „Telur þú að skól­inn hafi verið til góðs eða ills fyrir Namib­íu­menn?“. Og hverju svarar þú svona spurn­ingu? Geturðu sagt nei og rök­stutt það eða verður þú að segja já og allir verða glaðir? Þetta er ekki já og nei spurn­ing. Það verður að skýra þetta mál aðeins öðru­vísi. Og út af því að það var eig­in­lega ekki hægt að segja nei og færa rök fyrir því þá varð maður að segja já. Og þegar þeir eru búnir að leggja fyrir þig svona spurn­ingar og það sýnir að þetta sé voða flott allt saman, þá geta þeir bara sagt „Ok! Nú erum við bara hættir og farnir.“, en skilja svo við þetta í lausu lofti.“

Hægt er að lesa grein­ina í heild sinni í nýjasta blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi