Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helgi býður sig fram: „Mitt mat er að óbreyttu haldi fylgi Sjálfstæðisflokksins áfram að hnigna“

Helgi býður sig fram: „Mitt mat er að óbreyttu haldi fylgi Sjálfstæðisflokksins áfram að hnigna“
Helgi Áss Grét­ars­son.

Stór­meist­ar­inn Helgi Áss Grét­ars­son – fram­bjóð­andi til emb­ættis rit­ara Sjálf­stæð­is­flokks­ins – segir í grein sinni, Að taka í hand­brems­una, „að stundum getur staða manns í skák litið vel út á yfir­borð­inu en samt er taf­lið eig­in­lega tapað þar eð það er ein­göngu and­stæð­ing­ur­inn sem getur þróað og bætt stöðu sína. Sé ekk­ert gert til að hrista upp í hlut­unum þá versnar staðan hægt og síg­andi þar til að taf­lið tap­ast.“

Bætir við:

„Fram­sýnir skák­menn hins vegar bregð­ast við þessum aðstæðum og reyna að breyta gangi mála, t.d. með óvæntum útspilum eins og að fórna liði í því skyni að gera taf­lið flókn­ara fyrir and­stæð­ing­inn.“

Helgi segir að „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur verið stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins frá því að hann var stofn­aður árið 1929. Flokk­ur­inn hefur verið burð­ar­stólpi í þróun íslensks sam­fé­lags. Lengst af var hann með hreinan meiri­hluta í borg­ar­stjórn Reykja­víkur og á lands­vísu var kjör­fylgi hans oft og einatt nálægt 40%. Þessir tímar virð­ast liðnir,“ segir skák­meist­ar­inn og heldur áfram:

„Síðast komst flokk­ur­inn yfir 30% á lands­vísu í alþing­is­kosn­ingum árið 2007 og síð­ast komst hann yfir 40% í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum árið 2006. Fylgið hefur staðnað eða dvínað en samt heldur flokk­ur­inn stöðu sinni sem stærsti flokkur lands­ins. Lægsta fylgi hans í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum var núna sl. vor og í síð­ustu tvennum alþing­is­kosn­ingum árin 2017 og 2021 hlaut hann sína verstu útkomu, að frá­töldum kosn­ing­unum sem haldnar voru skömmu eftir efna­hags­hrunið haustið 2008, þ.e. vorið 2009.“

Helgi bendir á að „töl­fræði er eitt, félags­legur veru­leiki er annað. Að mínu mati býr Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn enn yfir þreki til að snúa tafl­inu við. Klukkan tifar hins vegar og það kemur ekki að sjálfu sér að breyta hinni póli­tísku víg­stöðu. Það þarf að end­ur­skipu­leggja með hvaða hætti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nær til kjós­enda, ekki síst til þeirra sem yngri eru.“

Að mati Helga er „grund­vall­ar­at­riðið í þessum efnum er að flokk­ur­inn ástundi fag­leg vinnu­brögð í sínum eigin málum og hafi líf­legt félags- og flokks­starf. Á þeim stutta tíma sem ég unnið á vett­vangi Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem stjórn­mála­maður hef ég sann­færst um að þar sé um auð­uguan garð að gresja af fólki sem vill leggja sitt af mörkum til að flokk­ur­inn dafni og vaxi. Þennan mannauð þarf hins vegar að virkja með mark­viss­ari hætti.“

Hann segir frá því að „ófáar hug­myndir hef ég í þeim efnum og það er helsta ástæða þess að ég gef kost á mér til emb­ættis rit­ara Sjálf­stæð­is­flokks­ins á lands­fundi sem hald­inn verður í Laug­ar­dals­höll í byrjun nóv­em­ber. Framboð mitt byggir einnig á þeirri for­sendu að full­trúi gras­rótar flokks­ins eigi að vera á meðal þeirra sem gegna æðstu emb­ættum flokks­ins og að það sé kostur að þar sé full­trúi sveit­ar­stjórn­ar­stigs­ins en ekki að í öllum þeim emb­ættum sitji alþing­is­menn og ráð­herrar.

Að lokum, mitt mat er að óbreyttu haldi fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins áfram að hnigna. Fyrir því eru engin knýj­andi rök. Mitt fram­boð til rit­ara flokks­ins snýst öðrum þræði um að benda á þá þörf að flokk­ur­inn grípi í hand­brems­una og efni til ærlegra skoð­ana­skipta í því skyni að efla fylgi sitt. Með réttum við­brögðum núna er nefni­lega hægt að snúa vörn í sókn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi