Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Olena Nikitenko flúði Úkraínu: „Áfallið sem ég varð fyrir er meira en orð geta lýst!“

Olena Nikitenko flúði Úkraínu: „Áfallið sem ég varð fyrir er meira en orð geta lýst!“
Olena Nikitenko

„Að morgni 24. febr­úar fengum við öll SMS frá vinn­unni: „Ekki fara í vinn­una! Stríðið er hafið! Áfallið sem ég varð fyrir er meira en orð geta lýst! Histería, ótti og ég grét,“ segir Olena Nikitenko sem flúði heima­land sitt, Úkraínu, og er komin til Íslands. Hún seg­ist vera 45 ára hag­fræð­ingur, frá­skilin og eiga 24 ára gamlan son.

Hún er frá borg­inni Kon­stantinovka á Donetsk-svæð­inu en var búin að búa í Kyev í átta ár þegar Rússar réð­ust inn í landið í febr­úar. Hún bjó í Donetsk þegar stríðið braust út árið 2014. Skrif­stofan þar sem hún vann þá var í nágrenni flug­vall­ar­ins og eftir að stríðið skall á flutti hún til Kyiv þar sem hún vann í banka.

„Um mán­uði fyrir inn­rás Rússa í febr­úar síð­ast­liðnum fengum við starfs­menn­irnir upp­lýs­ingar um hvað ætti að gera ef til inn­rásar kæmi; hvert ætti að hlaupa og hvar sprengju­skýlin væru. Ég trúði ekki að af þessu yrði fyrr en undir það síð­asta.“

Sonur Olena bjó í næsta húsi og þremur dögum eftir inn­rás­ina bað hún hann um að koma til sín þar sem henni fannst skelfi­legt að vera ein í íbúð­inni sinni.

Á sjötta degi stríðs­ins voru spreng­ing­arnar svo öfl­ugar að húsið hrist­ist.

„Sprengjum var varpað á borg­irnar Irpen og Bucha sem eru nálægt Kyiv og það heyrð­ist mjög vel í þeim og 26. febr­úar reyndu Rússar að ná Kyiv. Skot­bar­dagar voru í borg­inni og eld­flaugum var skotið á borg­ina. Eftir því sem dag­arnir liðu þá féllu sprengjur sífellt nær hús­inu og á sjötta degi stríðs­ins voru spreng­ing­arnar svo öfl­ugar að húsið hrist­ist.“

Olena seg­ist hafa hætt að borða og sofa. „Hendur mínar fóru að titra og ég var hrædd við að loka aug­unum á kvöldin. Ég svaf í einn til tvo tíma á sól­ar­hring.“

Til í hvað sem er

For­eldrar Olena eru frá Rúss­landi og fluttu til Donbass á sínum tíma. Hún seg­ist upp­lifa svik vina og ætt­ingja í Rúss­landi.

„Þegar Rússar fóru að varpa sprengjum á Úkraínu þá sögðu allir ætt­ingjar mínir í Rúss­landi að það væri í lagi og að Pútín væri að gera allt rétt. Þau tóku ekk­ert mark á því sem ég sagði, við rif­umst og við tölum ekki lengur saman. Þau styðja full­kom­lega yfir­gang Pútíns.“

Olena segir að vinir sínir hafi allir yfir­gefið Kyiv en að eng­inn hafi boðið sér aðstoð.

„Á 10. degi stríðs­ins átt­aði ég mig á því að ég gæti ekki lengur verið í Kyiv. Mig lang­aði til að flýja en ég gat það ekki. Lest­ar­stöðv­arnar voru troð­fullar af fólki og í fyrstu voru það konur og lítil börn sem fóru. Ég á full­orð­inn son og tvo hunda og okkur var ekki leyft að fara í lest­ina. Ég hafði sam­band við yfir­mann minn og bað um hjálp og hann gaf mér síma­númer hjá konu sem sagð­ist myndu hjálpa mér upp á að kom­ast að landa­mærum Moldóvu. Ég var til í hvað sem var. Ég setti niður í töskur og beið eftir að við yrðum sótt.“

Svo var náð í Olena, son hennar og hundana tvo. Með­ferðis hafði hún þrjár ferða­töskur.

Enginn bauð hins vegar fram aðstoð sína.

„Við komum að kvöldi til í lítið þorp ekki svo langt frá landa­mærum Moldóvu og gistum á gólfi tón­list­ar­skól­ans í bænum. Svo var mér sagt að ég gæti farið hvert sem ég vildi. En ég þekkti engan. Ég var svo langt að heiman og á eigin spýtur. En eitt­hvað í mér hafði breyst. Ég var hug­rökk og tók mig saman. Ég fann rútu og við lögðum af stað til borg­ar­innar Chernivtsi sem er í suð­vest­ur­hluta Úkraínu. Ég hringdi í neyð­ar­lín­una þar og þar var okkur komið fyrir á leik­skóla. Eftir tvo daga hringdi ég í alla vini mína og bað þá um að aðstoða mig við að finna hús­næði. Enginn bauð hins vegar fram aðstoð sína. Við gátum ekki fengið íbúð í Chernivtsi þar sem við vorum flótta­menn og var því haldið fram að við gætum þess vegna átt erfitt með að standa að greiðslum.Ég varð mjög æst og bað son minn að hringja í alla vini sína. Yfir­maður hans gaf honum síma­númer vinar síns sem bjó í Lvov sem átti íbúð sem var mann­laus. Við tókum þess vegna lest þangað. Þarna hjálp­aði okkur blá­ó­kunn­ugur maður.“

Mæðginin voru komin til Lvov um klukkan eitt eftir mið­nætti.

„Það var kalt úti og um fjög­urra stiga frost. Það var útgöngu­bann og við máttum ekki fara út úr lest­ar­stöð­inni þannig að við vorum þar til morg­uns. Sonur minn svaf á gólf­inu með ferða­tösku undir höfð­inu og ég stakk hund­unum tveimur undir jakk­ann minn og gekk með þá fram á morgun svo þeir dræpust ekki úr kulda.“

Olena seg­ist hafa verið í Lviv í tvo mán­uði. Hún segir að bank­inn þar sem hún vann hafi sagt starfs­fólki upp.

Til Íslands

Olena seg­ist hafa farið að spjalla við ókunn­ugan mann á net­inu og að hann hafi stungið upp á því að hún færi til Íslands þar sem margir Úkra­ínu­menn væru komnir. Og hún ákvað að fara til Íslands. 10 dögum eftir kom­una til lands­ins fékk hún vinnu við að þrífa hót­el­her­bergi.

Mér finnst ég alls ekki vera flótta­maður hérna.

„Ég er ánægð,“ segir hún. „Ég er mjög þakk­lát Íslend­ingum fyrir að hafa tekið við mér og að ég hafi allan rétt eins og Íslend­ingar. Mér finnst ég alls ekki vera flótta­maður hérna. Ísland og Íslend­ingar eru frá­bærir.“

Sonur Olena býr í Kyiv. Móðir hennar hafði búið í Donbass en vegna árása Rússa þar flutti móðir hennar til Kyiv.

„Hún er þar með hundana mína sem ég ætla að sækja í des­em­ber. En mamma vill fara heim.“

Ég á engin orð til að lýsa til­finn­ingum mínum til þeirra.“

Olena seg­ist hata Rússa.

„Ég á engin orð til að lýsa til­finn­ingum mínum til þeirra.“

Hún seg­ist dreyma um að Rússar yfir­gefi Úkraínu svo að fjöl­skyldan geti sam­ein­ast á ný; hún, sonur hennar og móðir.

„Ég er stolt af sjálfri mér fyrir að hafa ekki grátið heldur orðið sterk­ari eftir að stríðið hófst og þegar vinir mínir sviku mig. Og ég yfir­gaf ekki hundana mína. Ég tók málin í mínar hendur og bjarg­aði fjöl­skyld­unni minni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi