Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Í góðum málum / Í slæmum málum

Í góðum málum / Í slæmum málum
Auðun Lúth­ers­son

Í góðum málum

Tón­list­ar­mað­ur­inn Auðunn Lúth­ers­son, öðru nafni Auður, er í mjög góðum málum í augna­blik­inu enda var hann að gefa út glæ­nýtt lag með þjóð­ar­ger­semi Íslands, Bubba Morthens. Lagið heitir Tárin falla hægt og þykir passa vel við söngv­ar­ana en Bubbi hefur ekki alltaf verið allra enda verið óheflaður og opinn um eit­ur­lyfja­neyslu fyrri ára sinna. Auður dró sig í hlé eftir að ásak­anir komu fram á sam­fé­lags­miðlum árið 2021 þar sem hann var sagður stigið yfir mörk nokk­urra kvenna. Hann við­ur­kenndi síðar að hafa farið yfir mörk ungrar konu árið 2019. En nú er hann sem sagt kom­inn aftur á ról og byrjar af krafti en búast má við að nýja lag þeirra félaga muni skríða hægt og rólega upp vin­sæld­ar­lista útvarps­stöðv­anna eins og fyrri lög þeirra beggja. Af til­efni útgáfu lags­ins sagði Auður: „Það er heiður að gera lag með þjóð­ar­skáldi. Þegar Bubbi bað mig um að vinna með sér gat ég ekki annað en sagt já. Sem krakki mæm­aði ég með Utan­garðs­mönnum, spil­aði á luft­gítar, hopp­aði í rúm­inu og þótt­ist vera á sviði einn inni í her­bergi. Fjöllin hafa vakað er fyrsta lagið sem ég lærði á gítar. Núna er ég að gefa út lag með honum.“ Bubbi sagði af sama til­efni: „Frá því ég heyrði í Auð í fyrsta skipti vissi ég að þarna væri kom­inn lista­maður sem hefði vægi. Og ég hugs­aði: Ég verð að vinna með honum einn dag­inn.“ Fallegt.

Í slæmum málum

Vináttan er í slæmum málum þessi dægrin. Nánast í hverri viku birt­ast fréttir af vinaslitum þekktra ein­stak­linga sem áður voru óað­skilj­an­legir, þannig séð. Fyrstur í þess­ari bylgju var  sjálfur seðla­banka­stjór­inn, Ásgeir Jónsson sem sleit vin­áttu sinni við verk­fræð­ing­inn og tón­list­ar­mann­inn Val Arn­ars­son. Eða hann „unfri­end­aði“ Val á Facebook vegna mis­heppn­aðs (að mati Ásgeirs) gríns á kostnað Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Valur tók vina­slit­inum við seðla­banka­stjór­ann ekki illa og sagði af því til­efni: „Mikið væri nú gott ef stýri­vext­irnir hans unfri­end­uðu mig líka.“
Stuttu síðar kom frétt sem fæstir bjugg­ust nokk­urn­tím­ann við að lesa, enda voru lík­urnar stjarn­fræði­lega litlar að slíkt gæti gerst. Ald­ar­gömlu vin­irnir Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri og hitt og þetta og núver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, og Jón Steinar Gunn­laugs­son fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, slitu vin­áttu sinni. Sagði dóm­ar­inn fyrr­ver­andi frá þessu sorg­lega máli í hlað­varps­þætti Sölva Tryggva­sonar þar sem hann sagði að þeir fyrrum BFF hefðu ekki tal­ast við í meira en ár. Sagði hann meðal ann­ars í þætt­inum: „Hann hætti bara að tala við mig og hefur lík­lega farið í fýlu út í mig. Hann hefur ekki feng­ist til að segja mér hvað veldur þessum vinslitum. Kannski af því að ég lét ég í ljósi andúð mína á með­ferð hæsta­réttar á broti þar sem banka­menn voru dæmdir umvörpum í fang­elsi fyrir umboðs­svika­brot.“ Á dauða mínum átti ég von á en ekki þessu. En Davíð hefur þó alltaf Hannes.
Nýleg­asta dæmið í þess­ari bylgju vinaslita eru slit vin­áttu Birgis Hólm Björg­vins­sonar, fyrr­ver­andi gjald­kera Sjó­manna­fé­lags Reykja­víkur og Jónasar Garð­ars­sonar, þáver­andi for­manns Sjó­manna­fé­lags­ins. Þeir félagar höfðu ávalt verið einmitt það, félagar og studdi Birgir við bakið á Jónasi er hann strand­aði bát sínum með þeim afleið­ingum að tvennt lést. En í hlað­varps­þætt­inum Sjóarinn sagði Birgir frá vinslit­unum en vildi ekki fara nánar út í málið að svo stöddu. Vonandi líkur hér með vinaslitum merki­legra ein­stak­linga og öll dýrin í skóg­inum haldi áfram að vera vinir. Svona eins og Bubbi og Auður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi