Sveinn Rúnar V. Pálsson, eigandi ræstingarfyrirtæksins Þrif og ræstivörur á Akureyri hefur verið ákærður fyrir meiriháttar skattalagabrot og peningaþvætti við rekstur fyrirtæksins. DV greinir frá og verður aðalmeðferð fyrir héraðsdómi 13. október næstkomandi.
Ákæran á hendur Sveini var gefin úr í byrjun desember árið 2020. Þar er hann sakaður um að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti fyrir þrjú rekstarár, 2016, 2017 og 2018, fyrir rúmar 200 milljónir króna. Eða 203.562.442 krónur fyrir þá sem hafa gaman af tölum.
Sveinn Rúnar var daglegur stjórnandi fyrirtækisins á þessum tíma. Honum er einnig gefið að sök að hafa aflað félaginu ávinnings að þessari sömu fjárhæð, nýtt ávinninginn í þágu hlutafélagsins en það flokkast undir peningaþvætti.
Ræstingafyrirtækið er með fjölda fólks í vinnu á Akureyri.





















Athugasemdir