Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hvetur landsmenn að sniðganga landslið þar til Aron Einar fer: „Ekki minn fyrirliði“

Hvetur landsmenn að sniðganga landslið þar til Aron Einar fer: „Ekki minn fyrirliði“
Aron Einar Gunn­ars­son.

„Merki KSÍ er fyrir mér merk­ing­ar­laust fyr­ir­bæri sem snertir mig ekki, ég finn engan sam­hljóm með því sem þau gera. Fyrir mér er það þannig að þau sem spila undir þessu merki eru að sam­þykkja þann gjörn­ing sem hefur klofið hluta þjóð­ar­innar frá lands­lið­inu. Sjálfur hef ég engan áhuga á að fylgja Knatt­spyrnu­sam­bandi ger­enda sem heitir fyrir mér KG, héðan í frá.“

Þetta segir Valur Arnarson, verk­fræð­ingur og tón­list­ar­maður, en hann kallar eftir því að lands­menn hundsi lands­liðið í fót­bolta meðan Aron Einar Gunn­ars­son er hluti af lið­inu. Aron Einar var kærður fyrir nauðgun en Hér­að­sak­sókn­ari felldi niður málið á dög­unum. Valur segir í pistli sem hann birtir innan Facebook-hóps­ins Bar­áttu­hópur gegn ofbeld­is­menn­ingu að nauð­syn­legt sé að sýna sam­stöðu með þolendum kyn­ferð­is­brota. Margir taka undir með honum og vilja sýna óánægju sína í verki. Nokkrir segja það sama: „Ekki minn fyr­ir­liði.“

„Það er á ábyrgð Arnars Þórs Við­ar­sonar að velja mann í lands­liðið sem hefur verið kærður fyrir hópnauðgun. Það er á ábyrgð KSÍ, stjórn og þá sér­stak­lega for­manns, að lands­liðs­þjálf­ari geti gert þetta. Með þessum gjörn­ingi er verið að segja. Heillindi knatt­spyrnu­fólks skipta engu máli, bara geta. Ekkert annað. Árangur á vell­inum er númer eitt, tvö og þrjú. Ég geri mér grein fyrir því að þessi ábyrgð er ekki á öðrum lands­liðum KSÍ. Það er mik­ill heiður að fá að spila lands­leik fyrir lands­liðið sitt og þannig heiður vekur athygli á leik­mönnum. Leik­mönnum yngri lands­liða og A-lands­liðum. En þetta ábyrgð­ar­leysi Arnars Þórs og stjórnar KSÍ er nefni­lega ekk­ert þeirra einka­mál og önnur lands­lið geta því miður ekki horft fram hjá þess­ari yfir­sjón, vegna þess að hún er mikil og alvar­leg,“ segir Valur.

Hann biður fólk um að setja sig í spor fjöl­skyldu þess sem kærði Aron fyrir nauðgun. „Þarna er ein­stak­lingur sem hefur verið kærður fyrir hópnauðgun fengin, ekki bara til að spila leik­ina, heldur leiða liðið. Hann fær sitt platt­form, hann er hylltur af áhorf­endum þegar vel gengur. Honum er troðið framan í and­litið á okkur í tíma og ótíma, í aug­lýs­ingum vegna lands­leika, í promo verk­efnum á vegum KSÍ og svona mætti lengi halda áfram. Við áhorf­endur getum sýnt þol­anda hans stuðn­ing með því að horfa ekki á leik­ina, deila engu um leik­ina á sam­fé­lags­miðlum, gera aldrei læk á neitt sem teng­ist A-lands­lið karla. En við sem tengj­umst ekki mál­inu og erum ekki sjálf þolendur erum í raun í for­rétt­inda­stöðu. Það á t.d. við um mig sjálfan. Ég get sett á mute þegar það eru íþrótta­f­réttir um A-lands­liðið, slökkt þegar leikir byrja. Það er lítið mál. En ímyndið ykkur hvernig þetta er fyrir þol­anda þessa manns, fjöl­skyldu hennar og vini sem hafa fylgst með því hvernig þetta mál hefur farið með hana nú í meira en ára­tug,“ segir Valur.

Hann segir að öllum ætti að vera ljóst að þetta lands­lið verði aldrei lands­lið allra Íslend­inga. „Það er ekki létt­vægt fyrir hana þegar þessum manni er stöðugt hampað sem hetju og hann gerður að ein­hvers­konar fyr­ir­mynd fyrir yngri iðk­endur, þrátt fyrir það sem hann gerði og hvernig hann hefur svo hagað sér. Hann hefur gaslýst þol­anda sinn og logið að stuðn­ings­mönnum og það eru auð­vitað margir sem styðja hann og lifa fyrir það að sjá gömlu „hetj­una“ sína aftur í bún­ingnum en það á alls ekki við um alla. Aron Einar er því ekki fyr­ir­liði allra Íslend­inga á svo djúp­stæðan hátt að því verður vart lýst með orðum. Fyr­ir­liði með þessa stöðu gerir það líka að verkum að lands­liðið er alls ekk­ert lands­lið allra Íslend­inga. Alls ekki. En þetta er það sem lands­liðs­þjálf­ari A-lands­liðs karla og stjórn KSÍ hefur valið að gera. Svona vilja þau nákvæm­lega hafa hlut­ina,“ segir Valur.

„Það að ein­hver smá­partur af þjóð­inni yfir­gefi skút­una hefur mjög lítið að segja en ef t.d. önnur lands­lið innan KSÍ myndu standa upp og segja; við spilum ekki fyrir Knatt­spyrnu­sam­band sem kemur svona fram við þolendur. Þá hefði það alvöru áhrif og alvöru afleið­ingar fyrir KSÍ. Þó að ég geri það með efa­blöndnum til­finn­ingum að þá hef ég ákveðið að hunsa öll lands­lið KSÍ, ekki bara A-lands­lið karla og er það vegna alls þess sem sagt hefur verið í þessum pistli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi