Framleiðslufyrirtæki fyrrum landsliðsmarkvarðarins, Hannesar Þórs Halldórssonar, Floodlights, hefur fest kaup á kvikmyndaréttinn að glæpasögu Stefáns Mána, Húsið, sem kom út árið 2012 og er alvöru krimmi af bestu gerð:

„Stefán Máni er ótrúlega orkumikill rithöfundur sem skrifar myndrænar og kynngimagnaðar bækur. Húsið er dimm og drungaleg saga og ég var ekki búinn að lesa margar blaðsíður þegar ég fann að hér væri efni í góða kvikmynd. Það er auðvitað langt í land ennþá en handritavinnan er komin af stað og vonandi sjáum við Hörð Grímsson á hvíta tjaldinu áður en langt um líður,“ segir Hannes Þór.
Og rithöfundurinn Stefán Máni er einnig afar ánægður með samkomulagið; hlakkar mikið til að fylgjast með þróuninni:
„Ég er hrikalega ánægður með þennan samning. Það er tími til kominn að Hörður Grímsson fái njóta sín á hvíta tjaldinu og Hannes Þór er hárréttur maður í verkið. Aðdáendur lögreglumannsins hljóta að gleðjast,“ segir Stefán.

Fyrsta kvikmynd Hannesar Þórs í fullri lengd var Leynilögga, sem var frumsýnd á síðasta ári og gekk vel í íslenskum kvikmyndahúsum.
Þess má geta að áður hefur verið gerð íslensk kvikmynd sem ber sama nafn, Húsið, en hún var frumsýnd árið 1983 og var leikstýrt af Agli Eðvarðssyni. Var sú mynd svokölluð draugamynd, og heppnaðist hreint prýðilega.





















Athugasemdir