Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helga Vala um sjálfsvíg ungs fólks: „Það er furðu­lítill á­hugi stjórn­valda á því mikla böli“

Helga Vala um sjálfsvíg ungs fólks: „Það er furðu­lítill á­hugi stjórn­valda á því mikla böli“

Þing­konan Helga Vala Helga­dóttir segir í nýrri grein að „í síð­ustu viku upp­lifðum við nýjan veru­leika hér á landi þegar upp­lýst var á blaða­manna­fundi ríkis­lög­reglu­stjóra að tveir ungir menn sætu í gæslu­varð­haldi vegna gruns um skipu­lagn­ingu á hryðju­verkum hér á landi. Lög­reglan gaf þær upp­lýs­ingar sem hægt var að veita á þessu stigi rann­sóknar og á­fram hélt um­ræðan í sam­fé­lag­inu næstu daga.“

Bætir við:

„Dóms­mála­ráð­herra steig fram með gamal­kunnan tón, boðar for­virkar rann­sóknar­heim­ildir, ein­hverjir nefna að auka þurfi við vopna­burð lög­reglu og enn aðrir að efla þurfi rann­sóknir með störfum lög­reglu. Um­ræða um störf og vald­heim­ildir lög­reglu er afar mikil­væg enda verður hvers konar skerð­ing á frelsi og frið­helgi borg­ar­anna að vera tekin af vand­lega yfir­veg­uðu máli og af slíku til­efni að öryggi borg­ar­anna verði ekki fengið með neinum öðrum ráðum.“

Helga Vala bendir á að „fyrir liggur að lög­regl­unni er gert að draga saman starf­semi sína á næsta ári, að­halds­krafa er á mála­flokknum í fjár­laga­frum­varpi ríkis­stjórnar á sama tíma og lög­reglan er undir­mönnuð og glímir við æ flókn­ari og viða­meiri verk­efni. Um ára­bil hefur verið kallað eftir auknu fjár­magni til lög­gæslu í land­inu án þess að því hafi verið svarað. Þá hefur líka verið kallað eftir meiri stefnu­mótun í störfum lög­reglu, hvar setja skuli á­herslur í störfum lög­reglu, hvort hægt sé að flýta máls­með­ferð flók­inna mála eins og kyn­ferðis­brota og ann­arra of­beldis­brota sem og hefur verið rætt að skipu­lögð glæpa­starf­semi sé að aukast hér á landi og við því þurfi að bregð­ast. Ekkert af þessu gerum við án þess að tryggja nægan mann­afla og fjár­magn inn í mála­flokk­inn og það áður en tekin er á­kvörðun um að heim­ila allar að­gerðir lög­reglu án að­komu dóm­stóla.“

Hún segir einnig að í „um­ræðu síð­ustu daga hef ég einnig reynt að vekja at­hygli á því sem um­ræðan á að snú­ast um; hvað kom fyrir í lífi ungra manna sem mögu­lega taka á­kvörðun um skipu­lagn­ingu hryðju­verks? Hvað er það í okkar sam­fé­lagi sem elur af sér slíka heift? Það er að mínu mati mál mál­anna að við skoðum gaum­gæfi­lega hvernig við búum að börnum okkar og ung­mennum. Hvernig við sköpum þeim tæki­færi til að eiga gott líf um­vafin öryggi heim­ilis og fjöl­skyldu en ekki síður innan veggja skóla.“

Helga Vala nefnir að „far­sældar­málin sem unnin voru meðal ann­ars í þing­manna­nefnd um mál­efni barna á síð­asta kjör­tíma­bili eru góðra gjalda verð en það verður að fylgja eftir þeim á­formum sem þar voru svo þau kom­ist til fram­kvæmda í verki en verði ekki orðin tóm. Far­sældar­frum­vörpin inni­héldu tæki til að kom­ast að vand­anum en færri tæki til að mæta vand­anum sem fund­inn er. Á því hafði ég orð við með­ferð máls­ins í þing­inu. Við þurfum vit­undar­vakn­ingu í sam­fé­lag­inu fyrir því hversu mörg börn og ung­menni eru að sýna merki van­líð­unar.“

Hún telur til að árið 2014 hafi 81% barna í efstu bekkjum grunn­skóla metið and­lega heilsu sína góða eða mjög góða en að í dag meti ein­ungis 57% barna and­lega heilsu sína góða eða mjög góða.

Hún spyr:

„Hvað er það í sam­fé­lag­inu okkar sem veldur þess­ari niður­sveiflu? Það er eitt­hvað mikið að í ríku sam­fé­lagi þegar æ fleiri ungar mann­eskjur velja það að taka líf sitt áður en á full­orð­ins­árin er komið og það er furðu­lít­ill á­hugi stjórn­valda á því mikla böli. Það ríkir líka and­vara­leysi yfir því hversu margir ungir menn velja að hætta námi á fram­halds- og há­skóla­stigi og ættu töl­urnar um út­skrif­aða úr há­skólum lands­ins, sem sýna 70% kven­stúd­enta á móti 30% karls­túd­entum, að láta við­vör­unar­bjöll­urnar hljóma um allt sam­fé­lag.“

Að mati Helgu Völu er „fé­lags­legt ó­jafn­ræði, sem skap­ast af ó­jafnri menntun milli kynj­anna, skað­legt sam­fé­lagi til fram­tíðar; eykur á ó­jafn­ræði milli kynj­anna sem við unnum mikið verk í að lag­færa þegar hall­aði á konur á síð­ustu öld. Þar unnum við sigur en virð­umst minna með­vituð um þetta mikil­væga verk í dag. Aukin skautun í sam­fé­lag­inu, þar sem hópum er egnt saman, gerir ekk­ert annað en að ýta minni­hluta­hópum enn frekar út á jaðar sam­fé­lags­ins. Við verðum að spyrja okkur hvaðan kemur hat­rið, hvaðan kemur ill­skan, hvað kom fyrir unga menn sem mögu­lega lögðu af stað í skipu­lagn­ingu á hryðju­verkum í ís­lensku sam­fé­lagi. Það er mál mál­anna og þar þurfum við sam­fé­lags­legt átak.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi