Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óþokkar á Yaris réðust á hjólreiðafólk við Þingvelli – María: „Ég gjörsamlega trylltist af hræðslu“

Óþokkar á Yaris réðust á hjólreiðafólk við Þingvelli – María: „Ég gjörsamlega trylltist af hræðslu“
Þessi mynd var tek­inn stuttu áður en ósköpin dundu yfir fjöl­skyld­una.

„Ég tal­aði við vin minn hjá lög­regl­unni, en ég hef oft unnið með lög­regl­unni í sam­bandi við umferða­mál hjól­reiða og slíkt. En hann sagði mér að þetta væri hrein og bein lík­ams­árás sem við þyrftum að kæra, sem við svo gerðum. Dreng­ur­inn var kall­aður í yfir­heyrslu og mætti með pabba sínum sem var skráður eig­andi bíls­ins, það fór svo að dreng­ur­inn sagð­ist hafa verið sof­andi og viti ekki til þess að þetta hafi gerst. Nota bene, þá var hann ekki sof­andi hann var að teygja úr sér fyrir utan bíl­inn nokkrum mín­útum áður. Málið fór ekki lengra.“

Þetta segir María Ögn Guð­munds­dóttir, hjól­reið­ar­kona og sál­fræð­ingur, í pistli sem hún birtir innan Facebook-hóps­ins Sam­göngu­hjól­reiðar en hún hefur einnig gefið Mannlíf góð­fús­legt leyfi til að birta frá­sögn sína. Hún segir þar frá því þegar ung­menni á Yaris hafi ráð­ist á fjöl­skyldu sína þegar þau voru að hjóla við Þing­velli. Lög­reglan gerði ekk­ert líkt og kemur fram hér fyrir ofan. Hér fyrir neðan má lesa pistil Maríu í heild sinni.

Ég hef hugsað mjög oft hvort ég ætti að segja frá þessarri lífs­reynslu minni og okkar, en hef bara ekki verið til­búin til þess. Alltaf þegar það kemur upp nún­ingur í garð hjól­reiða­fólks þá hugsa ég til þessa dags.

Laug­ar­dag­ur­inn 25 apríl 2020, fyrir hádegi, það var nýbúið að kynna okkur fyrir Covid, sam­göngu­tak­mark­anir í gangi og lífið bara rólegt.

Ég, Haf­steinn og Elvar vinur okkar ákveðum að hjóla til Þing­valla, nýta tæki­færð því það var engin ferða­mannatraffík. Við hjólum til Þing­valla, Elvar hafði bakað hjóna­bands­sælu og tekið með sér því sjoppan var að sjálf­sögðu lokuð, en það er mjög gömul hefð fyrir því að hjóla til Þing­valla og fá sér kaffi og heima­bak­aða hjóna­bands­sælu (áður en nýjir rekstr­ar­að­ilar tóku við).

Við hjólum svo til baka og erum komin rétt við bíla­stæði ofan við Almanna­gjá þegar ég sé þrjú ung­menni tvo stráka og eina stelpu stíga út úr hvítum Yaris og teygja úr sér, ég hugs­aði oh en fal­legt, vin­irnir að taka rúnt snemma á þessum covid laug­ar­dags­morgni.

Þegar við nálg­umst afleggjara að Grafning þá koma bílar fram úr okkur, fram að því hafði varla verið traffík á veg­inum, þarna koma þrír bílar, bíll fremst, svo Yaris og svo blár eða grænn Landcruiser. Haf­steinn hjólaði fremstur, ég fyrir aftan hann og Elvar var aðeins fyrir aftan okkur, en við öll út við hægri kant.

Það sem ger­ist þegar bíl­arnir fara fram úr okkur er að Yarisinn kemur algjör­lega allur inn á akgrein­ina okkar og einn strák­ur­inn (í hvítri hettu­peysu) fer vel út um glugg­ann og slær Hafstein nokkrum sinnum í and­litið og öxl­ina með hvítri síma­hleðslu­snúru eða head­pho­nes, sem sagt ræðst bara á Hafstein, sem verður til þess að hann fip­ast allsvaka­lega, nær að halda sér á hjól­inu en ég klessi með fram­dekkið í hjólið hans (það kom stórt bruna ”sár” á aft­ur­skipt­inn hjá honum eftir dekkið mitt) sem verður til þess að ég missi jafn­vægið, riða út um allt og er að detta í göt­una í átt­ina að bílnum sem er fyrir aftan Yarisinn nema næ að setja vinstri fót­inn út í loft og ein­hvern­vegin svo ótrú­lega næ að halda þannig jafn­væg­inu og í því ati snerti ég þennan græna landcruiser með fæt­inum í stað þess að lenda undir honum. Elvar sem var aðeins fyrir aftan okkur náði bíl­núm­er­inu á Yarisnum, stopp­aði og skrif­aði það á sím­ann sinn áður en hann myndi gleyma því. Við Haf­steinn náðum sem sagt bæði að bjarga okkur frá því að detta í göt­una í þessu rugli, en það er bara af því að við erum bæði alveg rosa­lega góð á hjóli, íslands­meist­arar og allur pakk­inn.

Ég gjör­sam­lega tryllt­ist af hræðslu þegar ég náði að átta mig á því hvað hefði gerst, strák­arnir hringja strax í 112 og byðja um að lög­reglan komi frá Mosó á móti Yarisnum á Mos­fells­heið­inni og grípi bíl­inn, mann­eskjan í sím­anum tók sím­tal­inu ekki alvar­lega, gerði lítið úr og engin lög­regla kom.

Ég titr­aði í langan tíma eftir þetta, var marga daga að jafna mig og er mögu­lega bara ekk­ert alveg búin að jafna mig. Ég tók þessu mjög per­sónu­lega, af hverju lang­aði þessum krökkum að ráð­ast svona á okkur, af hverju er svona mörgum ókunn­ugum illa við mig, vilja hreyta í mig og hata mig þegar ég er hjólandi María Ögn, en ókunn­ugum finnst María Ögn án hjálms­ins hins­vegar bara vera frá­bær mann­eskja.

Ég fletti upp bílnu­mer­inu og sá að við­kom­andi átti heima í Árbænum, við Haf­steinn fórum á rúnt­inn um kvöldið, létum Hafrúnu Bríeti sofna í bílnum og fórum í Árbæinn, ætl­uðum að skera á dekkin á bílnum, við vorum svo reið og við höfðum bara þörf fyrir að gera eitt­hvað í reið­inni. Bíllinn var ekki heima þegar við komum á stæðið, við horfðum á hvort annað og sögðum ókeyókey við erum að verða 40 ára, með 3 ára barn sof­andi í bílnum og ætl­uðum að skera á dekk á bíl í Árbænum…þroskað hummm. Þegar við vorum að snúa við þá mætum við bílnum, púls­inn á mér fór upp í 200, en við keyrðum í burtu og skárum aldrei á dekkin.

Ég tal­aði við vin minn hjá lög­regl­unni, en ég hef oft unnið með lög­regl­unni í sam­bandi við umferða­mál hjól­reiða og slíkt. En hann sagði mér að þetta væri hrein og bein lík­ams­árás sem við þyrftum að kæra, sem við svo gerðum. Dreng­ur­inn var kall­aður í yfir­heyrslu og mætti með pabba sínum sem var skráður eig­andi bíls­ins, það fór svo að dreng­ur­inn sagð­ist hafa verið sof­andi og viti ekki til þess að þetta hafi gerst. Nota bene, þá var hann ekki sof­andi hann var að teygja úr sér fyrir utan bíl­inn nokkrum mín­útum áður. Málið fór ekki lengra.

Hjól­reiða­fólk hoppar ekki í það að skrifa enda­lausa leið­indapistla um alla þá nei­kvæðu upp­lifun sem fólk á reið­hjóli þarf að þola frá ókunn­ugum sam­borg­urum á hverskyns stígum eða vegum. En það er aðal­lega af því að um leið og það kemur nei­kvæð umræða í fjöl­miðlum sama hvers eðlis eða hvaðan hún er sprottin þá finnum hjól­reiða­fólk fyrir því í umhverf­inu okkar, heiftin í garð hjól­reiða­fólks ýfist í hjarta þeirra sem finnst við vera fyrir, óvel­komin. Vorin eru til dæmis sér­stak­lega slæmur tími, en þá setur maður á sig skráp og tekur þetta á ennið.

Við erum sam­ferða í þessu lífi, ef þú getur ómögu­lega sýnt náung­anum í sam­fé­lag­inu þínu umburða­lyndi, vertu þá bara heima hjá þér, pant­aðu allt í heim­send­ingu og ekki fara út fyrir garð­inn þinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi