Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Alexandra er umhverfisvæn og vill forðast plast: „Versla í matinn fyrir lágmark þrjá daga í einu“

Alexandra er umhverfisvæn og vill forðast plast: „Versla í matinn fyrir lágmark þrjá daga í einu“
Alex­andra Sif Her­leifs­dóttir Mynd: 244910363027102

Neytandi vik­unnar er Alex­andra Sif Her­leifs­dóttir, á maka, eitt barn og annað á leið­inni. Fjöl­skyldan býr í Innri Njarðvík. Hún er íþrótta­fræð­ingur að mennt og heldur úti heilsu­m­iðl­inum Lexa heilsa á instagram og heldur heilsu­fyr­ir­lestra. Einnig er hún með annan fót­inn inn í fyr­ir­tæki sem heitir Ekki gef­ast upp! sem er lík­ams­rækt fyrir ung­menni sem glíma við kvíða. Alex­andra er neyt­andi vik­unnar.

Alex­andra Sif Her­leifs­dóttir.

Hvernig hagar þú innkaupum til að neyta hollrar fæðu?

Hollusta í matar­æði er svo ótrú­lega ein­stak­lings­bundið. Ég til dæmis borða ekki mjólk­ur­vörur, borða mikið plöntu­fæði og reyni að velja eitt­hvað sem ég veit að mér muni líða vel af. Oft not­ast ég við upp­skriftir á veganistur.is.

Hvar verslar þú helst?

Við fjöl­skyldan verslum helst mat­vörur í Krónunni og Bónus. Fatnað reyni ég að kaupa í búðum eins og Barna­loppan, Hringekjan, Versl­un­ar­höllin og þess háttar versl­unum. Hins vegar er ég 181cm og á það til að versla ein­staka flíkur í Tall deild­inni á Asos. Einnig er ég hrifin af Lindex en þar standa mann­úð­ar­á­stæður og gæði upp úr.

Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu?

Kærast­inn minn er dug­legri í þessu en ég en við reynum að vera með­vituð, sér­stak­lega núna þegar mat­ar­k­arfan er að hækka upp úr öllu valdi.

Hvað með sparnað í matarinnkaupum og hverju vilt þú breyta sem neytandi?

Ég vil fara í búð og versla í mat­inn fyrir lág­mark þrjá daga í einu. Um leið og það er skipu­lag með kvöld­mat­inn þá eru minni líkur á að við kaupum skyndi­bita eða eitt­hvað til­búið.  

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Vörum sem eru nauð­synjar á heim­ilið en koma í alltof miklu plasti. Ég væri til í að minnka umbúðir, eins og ávexti og græn­meti. Finnst fárán­legt hvað það er erfitt að minnka kaup á vörum í plasti. Einnig er ég ekki nógu skipu­lögð með að taka mat með mér svo ég á það til að grípa í mat ef ég er á ferð­inni.

Endurnýtir þú? Hvaða ráð hefur þú til annarra?

Eitt af mínum helstu mark­miðum í líf­inu er að vera eins umhverf­is­væn og ég get. Ég end­ur­nýti til dæmis alla plast­poka sem falla til, við end­ur­vinnum allt sem hægt er að end­ur­vinna, kaupum notað og erum með­vituð um kaup­hegðun.

umhverf­is­vernd skiptir mig miklu máli

Eitt af mínum mottóum er að umhverf­is­væn­asta varan sem þú kaupir er varan sem þú kaupir ekki. Ef ég kaupi mér flík t.d. vil ég hafa gott nota­gildi fyrir hana Ég geymi skraut af pökkum til að nota áfram, jafn­vel gjafa­pappír ef það er hægt.

Umhverfisvernd, skiptir hún þig máli ?

Já umhverf­is­vernd skiptir mig miklu máli og á að skipta okkur öll máli. Við sem neyt­endur höfum vissu­lega áhrif. Við sjáum það að með því að neyt­endur vilja kaupa minna af plast umbúðum að fyr­ir­tæki eru að breyta þessu þótt það sé að ger­ast hægt. Nú í dag er fólk að kaupa eyrnap­inna úr pappír í pappa­boxum en ekki plast­p­inna í plast­boxi. Þetta skiptir auð­vitað allt máli. Við reynum að vera með­vituð um fyr­ir­tæki sem við verslum við, snið­göngum ákveðin fyr­ir­tæki sem fara ekki vel með starfs­fólkið sitt til dæmis eða eru með slæma sögu. Við notum taubl­eyjur, borðum plöntu­miðað fæði, notum snyrti­vörur sem koma í umhverf­is­vænum pakkn­ingum, hugsum um kolefn­is­sporið sem varan þarf, sleppum óþarfa að mestu og allt þar fram eftir göt­unum. Hins vegar er mik­il­vægt að muna að eng­inn getur allt, allir geta eitt­hvað og saman getum við breytt heil­miklu.

Hreyfing og hollt mataræði. Hvernig spilar það saman?

Við vitum auð­vitað öll að það er mik­il­vægt að hreyfa sig og borða hollan og nær­inga­ríkan mat. Ég held að það sé mik­il­vægt að finna samt sinn eigin takt í þessu og vera ekki að hlusta á hvað megr­un­ar­menn­ingin er að segja við okkur. Hreyfing sem hentar okkur er sú hreyf­ing sem okkur finnst skemmti­leg og veitir okkur gleði. Það sama á við um mat­inn.

Hér er instragram­síða Alexöndru. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi