Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gísli tónskáld býr til draugahljóð: „Ég er spenntur að heyra hvernig það kemur út“

Gísli tónskáld býr til draugahljóð: „Ég er spenntur að heyra hvernig það kemur út“
Gísli Magn­ús­son

„Það sem er á döf­inni eru meðal ann­ars tón­leikar á Norrænum mús­ík­dögum um miðjan októ­ber. Þá mun kamm­er­sveitin Caput frum­flytja nýtt verk eftir mig, Skugga­ljós. Þetta er um 15 mín­útna langt verk í sex stuttum köflum. Það er flókið og margt í því sem sem ég er að gera í fyrsta skipti og ég er spenntur að heyra hvernig það kemur út. Það verður spilað á alls konar óhefð­bundin hljóð­færi; slag­verks­hljóð­færi sem ég hef ekki notað áður og önnur óhefð­bundin hljóð­færi svo sem simbalom sem er mikið notað í ung­verskri þjóð­lagatón­list. Í verk­inu er einnig spilað á waterphone, sem er mjög áhuga­vert hljóð­færi, en vatn í hljóð­fær­inu sveigir hljómana og brenglar hljóðið. Sumum finnst þetta vera drauga­legt hljóð,“segir Gísli Magn­ús­son tón­skáld.

Banda­ríska kamm­er­sveitin Tempo flytur síðan 2. októ­ber verkið Aurora eftir Gísla á tón­leikum í Kali­forníu. „Þau flytja verk eftir tón­skáld héðan og þaðan á tvennum tón­leikum í vetur sem til­eink­aðir eru nýrri tón­list. Þetta kom þannig til að þessi hópur aug­lýsti eftir verkum í sam­keppni og gátu tón­skáld sent inn sín verk. Það end­aði á því að mitt verk og nokkur önnur voru valin til flutn­ings.“

Skapa eitthvað

Gísli Magn­ús­son segir að hann komi úr mik­illi tón­list­ar­fjöl­skyldu í bæði móður- og föð­ur­ætt.

„Afi minn, Gísli Magn­ús­son, var konsert­pí­anó­leik­ari og kom oft fram með Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands. Einhvern veg­inn lá beint við að ég færi í klass­ískt tón­list­ar­nám. Ég var sendur sex ára gam­all í for­skóla til að læra á blokk­flautu og fékk eig­in­lega strax góðan grunn í tón­fræði.“

Ég var jafn­vel áhuga­sam­ari um tón­fræð­ina heldur en píanó­n­ámið.

Svo fór Gísli að læra á píanó og hélt áfram í tón­fræði. „Það er mis­jafnt hvernig tón­fræði leggst í tón­list­ar­nem­endur en ég var jafn­vel áhuga­sam­ari um tón­fræð­ina heldur en píanó­n­ámið. Síðan leið langur tími þar til ég fór að tengja þetta við tón­smíðar eða hugsa um tón­smíðar sem starfs­vett­vang af ein­hverri alvöru. Ég var þó mikið að prófa mig áfram. Skapa eitt­hvað.“

Hann fór í mennta­skóla og tók sér frí frá píanó­n­ám­inu. Hann fór síðan í und­ir­bún­ings­nám í arki­tektúr en tón­listin kall­aði svo hátt að 22 ára gam­all hóf hann nám í tón­smíðum við Lista­há­skóla Íslands. Árið 2013 lauk hann nám­inu með BA-prófi og hélt síðan til Amster­dam og útskrif­að­ist með meist­ara­próf í tón­smíðum nokkrum árum síðar.

Í dag starfar Gísli sem tón­list­ar­kenn­ari -kennir tón­fræði, hljóm­fræði, tón­heyrn og á píanó – og skapar heilu ævin­týrin úr tónum.

Að segja sögu

Hvað ein­kennir tón­list Gísla Magn­ús­sonar?

„Ég var á tíma­bili mjög fók­user­aður á teng­ingu við nátt­úr­una; hvernig hægt er að túlka hana með tónum, hvernig áferð og orka er í nátt­úr­unni og hvernig hægt er að heim­færa það upp á tón­list. Ég samdi verk þar sem ég var bein­línis að taka nátt­úru­fyr­ir­brigði fyrir. Það er þó ekk­ert nýtt að nota nátt­úru sem inn­blástur í tón­list en ég fór dálítið langt með það. Á meðan ég var í nám­inu samdi ég til dæms verk sem er hljóð­ræn eft­ir­mynd af Strokki – gos­hvernum. Í verk­inu reyndi ég að ná fram áhrifum orkunnar í honum með spennu og eft­ir­vænt­ingu.

Stundum lít ég á sum verk eftir mig meira sem hljóð­list heldur en tón­list.

Núna nálg­ast ég tón­smíð­arnar meira út frá hljóðum og hugsa frekar hljóð­rænt en út frá tónum. Stundum lít ég á sum verk eftir mig meira sem hljóð­list heldur en tón­list. Hljóðið sjálft verður ein­hvern veg­inn í for­gangi.“

Hann seg­ist mest semja akústíska tón­list; fyrir hljóð­færi. „Ég hef samt gaman af að láta tækn­ina hjálpa mér.“

Þetta er nútímatón­list. „Ég hef gaman af alls konar tón­list og sæki inn­blástur í ólík tíma­bil. Mér finnst líka gaman að vinna með gömul form og setja í nýjan bún­ing. Ég sæki í arf tón­list­ar­sög­unnar og hef gaman af því að afla mér upp­lýs­inga um eldri tón­list og tón­list frá öðrum menn­ing­ar­heimum.“

Gísli skapar lista­verk eins og málar­inn sem stendur með pensil­inn fyrir framan trön­urnar eða rit­höf­und­ur­inn. „Maður reynir yfir­leitt að segja ein­hverja sögu. Stundum hef ég unnið út frá ljóðum. Í ljóðum eru oft dregnar upp myndir mér finnst vera áhuga­verðar, sem ég tengi við og veita mér inn­blástur.“

Hinn hreini tónn

Tón­listin gefur. „Hún getur verið hugg­andi og ef maður á erfitt þá getur hún veitt manni styrk. Það er oft mikil gleði sem fylgir tón­list. Einhver lífs­gleði.“

Stundum er tón­listin þó abstrakt

Líðan og til­finn­ingar geta haft áhrif á pens­il­strokur mynd­list­ar­manns­ins og lita­val hans. Hvað með slík áhrif á tón­skáldið?

„Jú, stundum sér maður það ekki sjálfur fyrr en eftir á þegar maður fer að skoða hlut­ina í sam­hengi. Maður sér þetta þá skýrar heldur en þegar maður var í hring­iðunni. Það hvernig manni líður og er stemmdur hefur áhrif á hvað maður lætur frá sér eða hvað maður gerir. Stundum er tón­listin þó abstrakt og þá er erfitt að sjá teng­ing­arnar. Per­sónu­leiki lista­manns­ins kemur þó held ég alltaf í gegn.“

Nóbels­skáldið skrif­aði um hinn hreina tón. Hver er hinn hreini tónn í huga tón­skálds­ins? Er hann til? „Ég hugsa mikið um tær hljóð versus óhrein hljóð eða suð. Hinn hreini tónn er þá tónn sem er ekki meng­aður af öðrum hljóðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi