Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ung kona kramdist undir fataskáp: „Hvíldu í friði fallega stelpa“

Ung kona kramdist undir fataskáp: „Hvíldu í friði fallega stelpa“
Chloe Haynes

Tuttugu og eins árs kona fannst látin á hót­el­her­bergi í Liverpool þann 10 sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Talið er að skápur hafi fallið á hana og ollið dauða hennar. Móðir hennar skrif­aði færslu á sam­fé­lags­miðli þar sem hún minn­ist dóttur sinnar.

Chloe Haynes fannst látin inni á hót­el­her­bergi í hinu fræga Adelphi hót­eli í Liverpool um klukkan 6:37 þann 10 sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Virðist sem stór og þungur fata­skápur sem ekki var festur við vegg­inn, hafi fallið á hana og kramið til bana. Móðir Chloe, hin 49 ára Nicola Williams sagði í færslu á sam­fé­lags­miðli að hún væri stað­ráðin í að vita öll smá­at­riði máls­ins.

Mæðgurnar

Chloe, sem átti tví­bura­bróður og þrjú önnur systk­ini, ferð­að­ist til Bítla­borg­ar­innar frá Hafan y Mor Haven Holiday Park í Phllheli í norður Wales, þar sem hún vann en planið var að fara út og sletta úr klauf­unum. Deildi hún hót­el­her­bergi með vinnu­fé­laga sínum en það var einmitt hann sem kom að líki hennar.

Móðirin sagði að dóttir hennar hafi farið frá Pwllheli um klukkan 19:40 og á Adelphi hót­elið til að fara í trú­lof­un­ar­veislu. „Um mið­nætti hafði hún verið búin að drekka skot og fleira og var orðin nokkuð slompuð, þannig að vinur hennar fór með hana upp á hót­el­her­bergi svo hún gæti farið að sofa, áður en hann snéri svo aftur í veisl­una. Svo virð­ist sem hún hafi vaknað og staðið upp og verið ringluð, ekki áttað sig á því hvar hún væri og að hún hafi opnað skápa­hurð­ina, hald­andi að þetta væri bað­her­berg­is­hurðin eða aðal­dyrnar. Þetta var stór, gam­all og þungur fata­skápur og hann féll á hana og krambi bark­ann á henni.“

Sagði móð­irin að vinur Chloe hafi snúið til bara snemma um morg­un­inn og hafi þá séð þessa hrotta­legu sýn. Hann hafi öskrað eftir hjálp og að tveir menn úr nær­liggj­andi her­bergjum hafi komið og lyft skápnum af henni en það hafi verið um seinan.

Menn­irnir þrír voru í byrjun yfir­heyrðir af lög­reglu en svo sleppt án ákæru. Lög­reglan hefur stað­fest að litið sé á and­látið sem slys.

Við­bragðs­að­ilar við hót­elið

Sam­úð­ar­kveðjum og virð­inga­vottum hefur flætt yfir sam­fé­lags­miðl­ana þar sem einn vinur hennar segir til að mynda: „Hvíldu í friði fal­lega stelpa“ og annar sagð­ist: „Algjör­lega hrygg­brotin.“

Móðirin minn­ist dóttur sinnar einnig: „Hún elskaði dýr, hún átti lít­inn hund sem hún kall­aði Archie en hún dýrk­aði hann. Það eru til svo margar ljós­myndir af þeim saman. Ég kall­aði hana alltaf fugl (e. birdy). Hún var svo smá­gerð og lítil og hún var eins og lít­ill fugl þegar hún borð­aði. Hún var þögul, ein af þeim sem tal­aði ekki nema þegar ástæða var til. En síð­ustu 12 mán­uði hafði hún verið farin að koma út úr skel­inni, var farin að fá sjálfs­traust og átti stóran vina­hóp. Hún var góð og umhyggju­söm og hún virt­ist ná góðri teng­ingu við sam­kyn­hneigða menn en það var einmitt þess vegna sem hún hitti vin sinn sem hún fór til Liverpool með.“

Sagði hún að dóttir sín hefði verið að safna fyrir bíl­prófi og utan­lands­ferð. „Hhún var að plana að taka bíl­próf og var búin að safna smá pen­ing fyrir því og svo lang­aði hana að fara til útlanda í frí með vinum sínum. Hún var bara að gera allt það sem 21 árs myndi gera.“

Mirror fjall­aði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta