Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Barátta á Bústaðavegi: „Kom þetta að mér í nautsformi og bar ég fyrir mig hendurnar og brann illa“

Barátta á Bústaðavegi: „Kom þetta að mér í nautsformi og bar ég fyrir mig hendurnar og brann illa“

Segja má með sanni að drauga­gangur af allra versta gerð hafi herjað á íbúa við Bústaða­veg í Reykja­vík,það herr­ans ár 1994.

Kemur fram í aðal­upp­slætti DV þann 5. maí þetta ár,  að óvættir hafi verið hraktir á brott úr húsi við Bústaða­veg í Reykja­vík.

Var rætt við miðil sem og íbúa sem lýstu algjöru ófremd­ar­á­standi í íbúð­inni:

„Það skipti engum togum að kvöldið sem ég kom frá þessum miðli varð allt nán­ast vit­laust hér inni. Það má segja að það hafi verið sam­bland af eld­glær­ingum og norð­ur­ljósum,“ sagði Hreiðar Jónsson, eig­andi íbúð­ar­innar við Bústaða­veg.

Hann lýsti því í DV að þetta hefði byrjað þremur árum fyrr þegar hann hefði byrjað að sjá „óskýr­an­legar myndir fyrir augum sér.“

Þetta var allsvaka­legt, og raf­magns­tæki urðu óvirk; þjó­varna­kerfi fór í gang þegar mest gekk á í íbúð­inni á Bústað­ar­vegi.

Tveimur vikum fyrir við­talið áður­nefnda hafði Hreiðar leitað til bresks mið­ils; þá hafði ýmis­legt gengið á; meðal ann­ars hafi ein­hverju verið brugðið um háls­inn á konu hans í atgang­inum. Þá hafi ágang­ur­inn verið svo mik­ill að þjófa­varna­kerfið hafi farið í gang í nær­liggj­andi verslun:

„Þetta hélt svo áfram í nokkrar nætur, rúmið gekk til og það var hreyf­ing á öllu hvar sem við sett­umst niður, sér­stak­lega þegar við báðumst fyrir. Í eitt skipti kom þetta að mér í nauts­formi og þá bar ég fyrir mig hend­urnar og brann illa á þeim: En brun­inn kom frá mér sjálfum því ég hef svo mik­inn kraft í mér,“ sagði Hreiðar við DV.

Hann hafði sam­band við Njál Torfason miðil, fyrir til­stuðlan Sál­ar­rann­sókn­ar­fé­lags Íslands; hófst Njáll strax að hreinsa út óværuna, og lýsti ástand­inu þannig:

„Þegar ég kom hingað fann ég fyrir fólki hér. Ég lið­sinnti því, fór með fað­ir­vorið og bað það að fara sína leið, betri leið, og fara sem sagt upp. Ég sá allar þessar verur en annað slagið var eins og það kæmi svona raf­spenna. Ég fór her­bergi úr her­bergi og fór ekki úr þeim fyrr en ég var búinn að hreinsa hvert og eitt og loka þeim. Þá meina ég ekki að loka dyr­unum heldur hreinsa þau. Eftir að búið var að hreinsa her­bergi var eins og hleypt væri loft­þrýst­ingi af manni. Það er eins og maður hafi búið við yfir­þrýst­ing í langan tíma.“

Það vakti athygli blaða­manns DV að Njáll og Hreiðar teikn­uðu báðir ver­urnar sem voru á ferli, á blað, hvor í sínu lagi; bar þeim saman í öllum meg­in­at­riðum. Sögðu þeir aðra ver­una á teikn­ing­unum full­trúa hins illa og geta tekið á sig ýmsar myndir; hin var rauð að lit; full­trúi reið­innar. Hún hafi hvolfst inn í sjálfa sig og orðið að eldi.

Njáll sagði við blaða­mann DV að hann starf­aði sem nudd­ari, en að hann hafi verið skyggn og hafi aðstoðað fólk sem hafi átt í vand­ræðum með eitt og annað; hann sagð­ist búa yfir ógn­ar­krafti sem komi frá ljós­inu eða Guði almátt­ugum.

Njáll vildi alls ekki kalla þetta sær­ingar, frekar eins konar samn­inga­við­ræður – þar sem hann hjálp­aði fólki eða öndum að kom­ast inn á rétta braut; sagði ótrú­lega mikla orku fara í þetta – en af henni hafi hann átt nóg af; og hafi á skömmum tíma beint verum í sex húsum á rétta braut:

„Svo þegar þetta er búið birtir til og ég sé ekk­ert annað en kerta­ljós, hvíta krossa og svo kemur eng­ill sem fer um allt á eftir. Þegar ég hef lokið verki mínu er eins og búið sé að létta af mér fleiri, fleiri kílóum. Mér líður ótrú­lega vel,“ sagði Njáll.

Kom fram að bæði Njáll og Hreiðar lýstu því að sam­hliða þessum látum hafi verið mikil orka; til að mynda hafi Hreiðar oft og tíðum þurft að fara með raf­magns­tæki á heim­il­inu í við­gerð, en þegar hann hafi komið að ná í þau hafi hann fengið þau til baka með þeim orðum að ekk­ert væri að þeim. Það var reyndar eftir að Njáll hreins­aði út að Hreiðar og konan hans gátu horft á sjón­varpið í friði.

DV ræddi einnig við Konráð Adolfs­son, for­seta Sál­ar­rann­sókna­fé­lags Íslands, sem sagði að árið 1994 hefði félag­inu borist á milli sex og sjö hund­ruð beiðnir um aðstoð vegna óvætta í húsum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi